Áhrif orkudrykkja á börn og ungmenni
Undanfarin ár hefur neysla orkudrykkja færst í aukana hér á landi og hefur úrval þessara drykkja einnig aukist mikið. Koffín er það innihaldsefni í þessum drykkjum sem geta reynst börnum og ungmennum skaðlegt sérstaklega þegar það er innbyrgt í þeim mæli sem gert er þegar þessir drykkir eru notaðir sem svaladrykkir.
�??Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða�?? (6h.is)
Hámarksneysla koffíns á dag fyrir mismunandi hópa:
Fullorðnir 400 mg koffín
Barnshafandi konur 200 mg koffín
Börn og unglingar 2,5 mg/kg koffín
Dæmi um magn koffíns í drykkjum og súkkulaði:
Orkuskot ( 50-60 ml) 80- 220 mg koffín
Orkudrykkur (500ml) allt að 160 mg koffín
Kaffibolli (200ml) 100 mg koffín
Kóladrykkur (500ml) 65 mg koffín
Svart te (200ml) 35 mg koffín
Dökkt súkkulaði (50g) 33 mg koffín
Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum koffíns og getur neysla þess valdið ýmsum breytingum á hegðun þeirra, s.s. svefnerfiðleikum, óróleika, pirringi og kvíða ásamt áðurnefndum áhrifum.�?? (6h.is)
Vert er að hafa í huga að sum einkenni eins og svefnerfiðleikar geta komið fram við mun lægri neyslu en hámarksgildið er.
�?að er því mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir skaðseminni og reyni eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að börn neyti þessara drykkja.
Ekki kaupa orkudrykki fyrir börn og ungmenni !!
f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Unnur �?ormóðdóttir hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar á Selfossi

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.