Í kvöld verður félagsfundur hjá ÍBV-íþróttafélagi en fundurinn hefst klukkan 20:00 í Týsheimilinu. Fundarefnið er kynning á stefnumótuninn sem farið var í með félagsmönnum á síðasta ári. Félagið hélt þá nokkra fundi, með ákveðnum hópum innan félagsins en síðan þá hefur verið unnið úr þeim niðurstöðum sem komu fram á fundunum. Heildarniðurstaðan var svo mótuð í stefnumótun félagsins. Auk þess að kynna stefnumótun félagins, verður fjallað um æfingagjöld, fjárhagsnefnd, framkvæmdanefnd og þjóðhátíðarnefnd.