Áhugi er fyrir því að kaupa frá Færeyjum til Íslands ferjuna Teistuna, sem sl. tuttugu ár hefur verið notuð til siglinga til Sandeyjar frá Skopun á Sandey, skammt frá Þórshöfn. Frá þessu var greint í gær á vef Kringvarps, sem er ríkisútvarpið í Færeyjum og mbl.is segir frá.
Í fréttinni eru þessar fyrirætlanir sagðar tengjast því að Færeyingar fái Herjólfi III, sem hefur að mestu legið við bryggju í Vestmannaeyjum ónotaður síðan Herjólfur IV kom til landsins sumarið 2019.
Hefur í því sambandi meðal annars verið rætt meðal fulltrúa Vegagerðarinnar og Strandfarskipa, sem sinna almenningssamgöngum í Færeyjum, að hægt verði að fá Herjólf til baka með stuttum fyrirvara, ef á þarf að halda vegna siglinga til og frá Vestmannaeyjum. Meðal Færeyinga hefur verið áhugi á að nota Herjólf til siglinga milli Þórshafnar og Þvereyrar á Suðurey, en þar í millum er að jafnaði um tveggja stunda sigling á opnu hafi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.