Alexander Örn - Litlu atriðin skipta mestu máli
Alexander Örn Friðriksson á útskriftardaginn.

Alexander Örn Friðriksson útskrifaðist úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og Afreksakademíu ÍBV í lok síðasta mánaðar. Hann útskrifaðist af stúdentsbraut, opinni línu.  Alexander stundaði knattspyrnu meðfram námi sínu í FÍV og var hluti af átta manna hóp sem útskrifaðist einnig úr Afreksakademíu ÍBV. Hann segist mæla eindregið með því að fara í Akademíuna ef fólk vill ná langt í íþróttum. ,,Ég valdi akademíuna því ég hef mikinn áhuga á fótbolta og vildi bæta mig í hlutum sem maður gerir ekki endilega á venjulegum æfingum. Þar hef ég lært mikið og fengið tækifæri til að þróa mig áfram sem leikmann.”

Alexander segir að það sem hafi staðið mest upp úr frá tíma sínum í FÍV sé klárlega kompan. ,,Þar borðuðum við nestið okkar og eyddum öllum frítímanum saman. Ég held ég það hafi verið horft á alla þættina úr Fóstbræðrum þar. Svo var líka mjög gaman að vera í akademíunni og mæta tvisvar í viku á aukaæfingar. Þar gat maður þróað leikinn sinn betur og unnið í litlu hlutunum sem virðast kannski ekki stórir, en skipta gríðarlega miklu máli ef maður ætlar að ná lengra.”

Alexander tókst mjög vel að samræma nám og æfingar. Hann segir að skólinn hafi sýnt íþróttafólki mikinn skilning og þau fengið svigrúm þegar þau þurftu að mæta á æfingar eða í leiki. Hann segir þó að kennararnir hafi stundum verið orðnir þreyttir á þessu, en þannig sé bara lífið þegar reynt er að samræma nám og íþróttir.

Hver var stærsta áskorunin sem þú stóðst frammi fyrir á þessum tíma? ,,Stærsta áskorunin var þegar ég fór í æfingaferð með ÍBV á síðustu önninni minni. Ég lærði lítið sem ekkert á meðan ég var á Spáni og það kom heldur betur í bakið á mér þegar ég kom heim. Þá var ég orðinn langt á eftir í náminu og þurfti að leggja mun meira á mig heima en flestir aðrir til að ná upp því sem ég hafði misst af”. 

Alexander segir að allt hafi gengið mjög vel í skólanum, nema kannski enskan. ,,Hún var ákveðin brekka sem ég þurfti að klífa, en náði því að lokum. Fólk sem þekkir mig veit að enskan hefur aldrei verið mín sterkasta hlið.”

Í sumar og næsta haust ætlar Alexander að spila fótbolta og vinna. Samhliða því ætlar hann að gefa sér tíma til að hugsa um hvað hann langar að læra og hvað hann vilji gera í framtíðinni en hann stefnir á að fara í háskóla. ,,Ég er þó ekki kominn lengra en það enn sem komið er. Ég veit hvorki hvaða háskóla ég ætla í né hvað ég vil læra, en það skýrist vonandi með tímanum.”

Það sem Alexander mun sakna mest frá tíma sínum í FÍV er að hitta starfsfólkið og vini sína á hverjum degi. ,,Samfélagið í skólanum var frábært og það verður skrýtið að sjá ekki þetta fólk reglulega”, segir hann að lokum.

Nýjustu fréttir

Alexander Örn – Litlu atriðin skipta mestu máli
Sigurður Andrason – Stóð upp úr að vera valinn í Landsliðið
Tóku flugið í Eldheimum og hrifu tónleikagesti
Goslokahátíð náði hápunkti á laugardeginum
Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.