Algjörlega trufluð hátíð sem gekk eins og best getur orðið
Mynd/Active Beer Geek

Um helgina var í fyrsta sinn bjórhátíð haldin í Vestmannaeyjum og voru það félagarnir í The brothers brewery sem héldu hátíðina. Það voru íslensk og erlend brugghús sem tóku þátt í hátíðinni ásamt þremur veitigastöðum úr Vestmannaeyjum. Sá sem átti miða á hátíðina fékk þrjá matarmiða til að smakka allan matinn og svo var hægt að smakka einhverja 40 tegundir af bjór.

Jóhann Guðmundsson einn af eigendunum sagði í samtali við Eyjafréttir að þetta hafi verið  algjörlega trufluð hátíð sem gekk eins og best getur. „Við erum í skýjununum yfir þessu þó að tapið hafi verið heldur meira en við gerðum ráð fyrir en við vissum að við myndum tapa á þessu og litum í raun aldrei á þetta sem eitthvað tap þar sem okkur finnst við vera að búa til viðburð sem skilar svo miklu meira til samfélagsins en tæplega milljón í tap á svona viðburði. Það eru annsi margir sem hefðu selt mun fleiri miða þegar að spáin var orðin góð en við vildum ekki eyðileggja upplifun þeirra sem höfðu nú þegar keypt miða með því að láta þá þurfa að standa í löngum biðröðum eftir bjór og mat sem svo hugsanlega væri búinn þegar að það kæmi loks að þér,“ sagði Jóhann.

Verður hátíðin haldin aftur á næsta ári? „Ef þú hefðir spurt mig á mánudaginn þegar að ég var að taka niður tjaldið eftir hátíðina þá hefði ég alltaf sagt að þetta yrði ekki árlegt, en við erum strax farnir í það að skoða möguleika í því hvernig við getum gert þetta enn betur á næsta ári og þá með aðeins minni kostnaði og minni vinnu fyrir okkur og allt það frábæra fólk sem að aðstoðaði okkur við að láta þetta verða að veruleika. Ég vill bara nota tækifærið og þakka öllum sjálfboðaliðinum sem að unnu á hátíðinni og á Ölstofunni á laugardaginn því án þessa frábæra fólks þá hefði þetta aldrei orðið eins flott og þetta var. Þið sem keyptuð svo miða, takk kærlega fyrir okkur þetta var truflað.“

Nýjustu fréttir

Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
Gengur vel í kolmunnanum hjá Vinnslustöðinni
Námsstyrkir sem skila sér heim
Tólf miljónir til Sagnheima
Landeyjahöfn: Dýpið mælt í dag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.