Allar stöður auglýstar
Vestmannaeyjahöfn.

Að gefnu tilefni vill meirihluti bæjarstjórnar taka fram eftirfarandi:
Um auglýsingar og ráðningar í stöður mannauðsstjóra og fjármálastjóra Vestmannaeyjabæjar gilda þær vinnureglur sem unnið hefur verið eftir á þessu kjörtímabili, í samræmi við samstarfsamning E- og H lista.

Allar stöður eru auglýstar, þar meðtalin öll sumarstörf. Í stjórnendastöður, þ.e. stöður framkvæmdastjóra og forstöðumanna með mannaforráð, er ráðið með milligöngu ráðningarskrifstofa sbr. stöðu hjúkrunarforstjóra nú nýverið.

Forstöðumenn/framkvæmdastjórar ráða svo í aðrar stöður að undangengnum auglýsingum og mati á umsóknum. Ef þeir telja sig þurfa aðstoð við úrvinnslu og mat á umsækjendum leita þeir ráðgjafar til ráðningarskrifstofa. Hvorki mannauðsstjóri né fjármálastjóri hafa mannaforráð og eru því ekki stjórnendastöður skv. ofangreindri vinnureglu.

Bæjarfulltrúar E- og H lista
Elís Jónsson
Íris Róbertsdóttir
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Njáll Ragnarsson

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.