Allir fá sumarvinnu hjá bænum

Veiruógnin var til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu og viðbrögðum yfirvalda vegna útbreiðslu COVID19 í Vestmannaeyjum. Staðan í Vestmannaeyjum er sú að 105 smit hafa verið greind. Af þeim sem greinst hafa jákvæðir hafa allir náð bata. Ekkert nýtt smit hefur greinst síðan 20. apríl sl., sem eru góðar fréttir fyrir Vestmannaeyinga og sýna að aðgerðir eru að skila tilætluðum árangri. Mikilvægt er að hafa í huga að enn þá þarf að gæta að sér og fylgja öllum reglum.

Vestmannaeyjabær hefur að undanförnu unnið að undirbúningi sumarstarfa fyrir 17 ára og eldri fyrir árið 2020. Alls sóttu 94 um sumarstarf hjá Vestmannaeyjabæ fyrir þetta ár, en árið 2019 voru umsóknirnar 95. Þá voru umsóknir í Vinnuskólann, þ.e. fyrir 8. -10. bekk grunnskóla, 88 talsins, en í fyrra voru umsóknirnar 71.

Nýlega kynntu menntarmálaráðherra og félegsmálaráðherra úrræði fyrir námsfólk á háskólastigi með fjölgun sumarstarfa í samstarfi við sveitarfélög og stofnanir ríkisins. Ríkissjóður greiðir meirihluta launa vegna umræddra starfa og sótti Vestmannaeyjabær um úthlutun fyrir sjö störfum, en fékk úthlutað fjórum. Til viðmiðunar við úthlutun starfa hafði Vinnusmálastofnun annars vegar óskir sveitarfélaganna og hins vegar stöðu á vinnumarkaði í einstaka sveitarfélögum. Alls sóttu 67 af 72 sveitarfélögum um úthlutun starfa. Ekki liggja fyrir nýjar tölur um atvinnuleysi eða hlutabótaleið stjórnvalda frá
Vinnumálastofnun fyrir Vestmannaeyjar, en gera má ráð fyrir að fækkun hafi orðið á hlutabóatleiðinni vegna áhrifa af afléttingu samkomubanns. Bæjarstjóri gerir ráð fyrir að öllum þeim sem sóttu um sumarstarf verði boðið starf á vegum bæjarins.

Bæjarráð samþykkir að bjóða öllum þeim sem sótt hafa um sumarstarf og hafa lögheimili í Vestmannaeyjum starf. Bæjarráð fagnar því að hafa fengið úthlutað fjórum störfum fyrir námsmenn á háskólastigi. Bæjarráð þakkar bæjarstjóra upplýsingarnar.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.