Allir út að ganga!

Nú hækkar sól á lofti. Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar hefur undanfarið unnið að gerð gönguleiða síðu fyrir Vestmannaeyjabæ og hefur síðan nú verið birt á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar. Gönguleiðasíðuna má finna undir flipa merktum Mannlíf efst á síðunni.

Nú eru birtar 9 gönguleiðir og er vonast til að fleiri gönguleiðum verði bætt við síðuna með vorinu, auk þess sem stendur til að síðan verði þýdd á ensku. Síðan er myndskreytt og leiðunum er lýst með táknmyndum og á korti. Skýringa á táknmyndum má finna á síðunni.

Náttúra Vestmannaeyja er stórbrotin og hægt er njóta hennar enn betur með því að ganga þessar fallegu gönguleiðir. Síðuna má finna HÉR

Það er eflaust ólíkt hvernig við göngum þessar leiðir. Ef þið viljið koma á framfæri athugasemdum þá vinsamlega sendið okkur línu umhverfissvid@vestmannaeyjar.is

Að gerð síðunnar komu starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs (Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir, Dagný Hauksdóttir, Sigurður Smári Benónýsson og Ólafur Snorrason), auk sumarstarfsmanna (Bergþóra Björgvinsdóttir og Guðjón Flosason), og álitsgjafa (Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir, Magnús Bragason og Svavar Steingrímsson).

 

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.