Alls bárust 3.985 umsagnir
Folk Goslok.jpg
Fjölmargir skiluðu inn hugmyndum til ríkisstjórnarinnar. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már Sæmundsson

Samantekt um tillögur, hugmyndir og sjónarmið sem bárust í verkefninu Verum hagsýn í rekstri ríkisins hefur verið birt í samráðsgátt. Alls bárust 3.985 umsagnir sem er metfjöldi og um 0,7% þjóðarinnar tók þátt í samráðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Langflestar umsagnir bárust frá einstaklingum en rúmlega 60 bárust frá félagasamtökum og fyrirtækjum. Þá komu tæplega 68 prósent umsagna frá körlum en rúmlega 32 prósent frá konum. Í mörgum umsögnum eru settar fram margar tillögur en samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er alls um tíu þúsund tillögur að finna í umsögnunum, margar eins eða af mjög svipuðum toga.

Umsagnirnar eru afar fjölbreyttar að efni. Í ljósi mikils fjölda var stuðst við gervigreindarhugbúnað til að aðstoða við að greina og flokka umsagnir en einnig var farið sérstaklega yfir efni hverrar einustu umsagnar.

Samkvæmt greiningu á tillögunum má skipta þeim í ellefu meginþemu:

  • Sameining stofnana og bætt nýting fasteigna hins opinbera
  • Alþingi og Stjórnarráðið
  • Stafrænar lausnir, sjálfvirknivæðing og endurskoðun opinberrar þjónustu
  • Sala á eignum og breytingar á rekstri fyrirtækja í eigu ríkisins
  • Skattar, endurgreiðslur frá ríkinu og tilfærslukerfi
  • Opinber innkaup
  • Samgöngumál
  • Heilbrigðisþjónusta og lyf
  • Orku- og umhverfismál
  • Utanríkismál og erlent samstarf
  • Ýmsar kerfisbreytingar og hagræðingartillögur

Hagræðingarhópur sem forsætisráðherra skipaði á dögunum mun vinna að nánari greiningu á umsögnunum sem bárust í samráðsgátt og nýta þær í tillögum sínum um hagræðingu og umbætur í ríkisrekstri sem verða kynntar í lok febrúar. Einnig mun hópurinn nýta tillögur sem berast frá forstöðumönnum hjá ríkinu og frá ráðuneytum.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.