Allt of mikið af ýsu miðað við kvóta
18. febrúar, 2021
Bæði skip Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu fullfermi eða rúmlega 70 tonnum í Vestmannaeyjum í gær. Afli beggja skipa var blandaður; þorskur, ufsi og karfi. Heimasíðan ræddi við skipstjórana, Birgi Þór Sverrisson á Vestmannaey og Jón Valgeirsson á Bergey, og spurði þá hvort vertíðarfiskur væri farinn að sjást. Birgir sagði að hann væri að byrja að ganga og drjúgur hluti afla Vestmannaeyjar hefði verið stór vertíðarþorskur. “Við byrjuðum á Selvogsbankanum með fótreipistroll en færðum okkur síðan í Háfadýpið. Það gekk vel að fiska. Það sem ég hef helst áhyggjur af um þessar mundir er ýsan. Það er búið að veiða mjög mikla ýsu miðað við kvóta og ég er hræddur um að mörg skip lendi í vandræðum á vertíðinni vegna þess að ýsan vill blandast þorskinum. Það er semsagt lítill ýsukvóti en gífurleg ýsugengd og það er ýsa alls staðar, hún er fyrir vestan, sunnan, norðan og austan. Og þetta er bæði smá ýsa og stór. Við á skipum Bergs-Hugins erum vel settir með ýsukvóta miðað við aðra en samt höfum við áhyggjur af stöðunni. Ég held að magnið af ýsu við landið sé í hámarki, allavega man ég ekki eftir slíku áður og það eru allir að flýja ýsuna,” segir Birgir Þór.
Jón Valgeirsson tekur undir með Birgi hvað ýsuna varðar. “Það er rétt að ýsan er að verða vandamál. Það má kannski kalla það lúxusvandamál vegna þess að það er óþægilega mikið af henni alls staðar og hvergi friður fyrir henni. Annars gekk vel hjá okkur í veiðiferðinni. Við vorum á Selvogsbankanum og fengum þar rígaþorsk og dálítið af ufsa og fleiri tegundum. Það er aðeins að koma vertíðarbragur á þetta. Sannast sagna var þessi túr eins þægilegur og hugsast getur; stutt að fara, blíðuveður og fínt fiskirí,” segir Jón.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 17 Tbl EF Min
17. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst