Alvarleg líkamsárás í nótt

Síðast liðna nótt var framin alvarleg líkamsárás í Vestmannaeyjum en ráðist var á mann á fertugsaldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Ráðist var á manninn með einhverju áhaldi og hlaut hann alvarlega áverka í árásinni. Sá er ráðist var á kannaðist ekki við árásarmanninn og sagði hann hafa verið með andlitið hulið, þannig að hann þekkti hann ekki.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu þá er árásarmaðurinn um 190 cm á hæð, grannvaxinn og líklega dökklæddur. Árásin átti sér stað á götunni sunnan við vestustu raðhúsalengjuna í Áshamri á milli kl. 02:00 og 02:15 og eru þeir sem urðu varir við árásina eða grunsamlegar mannaferðir í bænum sl. nótt beðnir að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2091 eða á facebooksíðu lögreglu. Einnig er hægt að hafa samband með tölvupósti í póstfangið vestmannaeyjar@logreglan.is.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.