Andlát - Kolbeinn Aron Arnarson

Kolbeinn Aron Arnarson, markmaður ÍBV í handbolta, er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 29 ára að aldri.

Kolbeinn Aron var einn af lykilmönnum í uppbyggingu og velgengni handboltans í Vestmannaeyjum undanfarin ár. Eftir að hafa æft og leikið með yngri flokkum ÍBV lék hann 17 ára gamall sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2006. Alls spilaði hann 279 leiki fyrir félagið, sem gerir hann að fjórða leikjahæsta leikmanni þess frá upphafi.

Kolbeinn Aron átti stóran þátt í því er liðið varð eftirminnilega Íslandsmeistari í fyrsta skipti árið 2014 og bikarmeistari ári síðar.

Fráfall Kolbeins Arons er öllum sem þekktu hann mikið áfall. Hjá okkur sem vorum með honum í handboltanum situr eftir sorg og söknuður; þakklæti og virðing.

Fjölskylda Kolbeins Arons vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa sýnt henni samhug og stuðning þessa erfiðu daga.

ÍBV sendir fjölskyldunni dýpstu samúðarkveðjur.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.