Andlát: Stefán Runólfsson

Stefán Runólfsson fæddist í Vestmannaeyjum 10. september 1933 og lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 27. nóvember sl..

Stefán hóf ungur að vinna við fiskvinnslu og 16 ára, hóf hann störf hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja sem aðstoðarverkstjóri og var yfirverkstjóri hjá fyrirtækinu á árunum 1953–1962.

Hann var framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur 1962–1963 og yfirverkstjóri hjá Fiskiðjunni hf. í Vestmannaeyjum 1964–1974. Árið 1974 tók hann við stöðu framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar hf., og starfaði þar til ársins 1988, er hann varð framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar til ársins 1992. Stefán starfaði bæði hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins sem skoðunarmaður hjá Rýni og síðar Nýju skoðunarstofunni hf. Starfsferill hans í sjávarútvegi, fiskvinnslu og tengdum grundvallaratvinnuvegi þjóðarinnar spannar yfir fimmtíu ár.

Stefán sinnti fjölmörgum trúnaðarstörfum á starfsfeli sínum, sat í stjórn Verkstjórafélags Vestmannaeyja og síðar Vinnuveitendafélags Vestmannaeyja, þar sem hann var um tíma formaður. Í stjórnum Lifrarsamlags Vestmannaeyja, Samfrosts, Stakks hf. og Klakks hf. Hann sat í stjórn SÍF frá 1975 til 1987. Hann sat einnig í stjórn Samlags skreiðarframleiðenda, Umbúðamiðstöðvarinnar hf., Félags síldarsaltenda og var fulltrúi Vestmannaeyja á fjölmörgum þingum Fiskifélags Íslands.

Stefán átti sæti í undirbúningsnefnd að stofnun Herjólfs hf. og var varaformaður stjórnar félagsins frá stofnun 1975 til 1988.

Félagsstörf

Hann var félagi í Rotaryklúbbi Vestmannaeyja 1964–1975, sat í stjórn og var forseti um tíma.

Stefán var formaður Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja og hann sat í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi um árabil, var bæjarfulltrúi – bæði vara- og aðal – og sat í hafnarstjórn í tólf ár.

Stefán hóf snemma afskipti af íþróttum og æfði bæði frjálsar íþróttir og knattspyrnu með Þór í Vestmannaeyjum. Hann sat í stjórn Þórs 1949–1962 og var gjaldkeri í átta ár. Hann var formaður Íþróttabandalags Vestmannaeyja 1964–1977.

Hann átti mikinn þátt í uppbyggingu knattspyrnunnar í Vestmannaeyjum og undir hans stjórn varð ÍBV stórveldi í íslenskum fótbolta. Liðið varð bikarmeistari 1968 og Íslandsmeistari 1978.

Stefán sat í stjórn undirbúningsnefndar að byggingu íþróttamiðstöðvarinnar í Vestmannaeyjum, var formaður bygginganefndar og stjórnarformaður íþróttamiðstöðvarinnar frá opnun og til 1988. Stefán varð félagi í Oddfellowstúkunni Herjólfi í Vestmannaeyjum árið 1961 og var síðar stofnfélagi Hásteins I.O.O.F. á Selfossi.

Stefán hlaut fjölda viðurkenninga og var sæmdur Riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2003 fyrir störf sín í þágu félags- og sjávarútvegsmála. Hann var sæmdur gullmerki Þórs, gullmerki ÍSÍ, Gullkross ÍSÍ, gullmerki ÍBV og æðsta heiðursmerki ÍBV, Gullkross ÍBV og hlaut æðsta heiðursmerki Oddfellowreglunnar á Íslandi.

Stefán var gæfumaður og bjargaði tveimur börnum frá drukknun í Vestmannaeyjahöfn, árið 1968 og aftur 1972, og var heiðraður af Sjómannadagsráði fyrir þessi afrek.

Fjölskylda

Eiginkona Stefáns var Helga Víglundsdóttir, sem lést árið 2015. Börn þeirra eru, Sóley, BA í uppeldis- og menntunarfræðum, gift Þorsteini H. Kristvinssyni, Smári, skrifstofustjóri, giftur Guðrúnu Jónu Sæmundsdóttur og Guðný Stefanía, íþróttafræðingur, gift Jóni Hálfdáni Péturssyni

Eyjafréttir votta fjölskyldu Stefáns samúðar.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.