Andri Erlingsson markahæstur í fyrsta leik á EM u-20
Mynd/HSÍ

Íslenska u-20 ára landsliðið í handbolta lék fyrsta leik sinn á Evrópumótinu í Rúmeníu í dag. Íslenska liðið vann sterkan 32-27 sigur á Austurríki, eftir að hafa verið undir í hálfleik, 15-16. 

Íslenska liðið byrjaði leikinn ekki nægilega vel en náði hægt og rólega að vinna sig inn í leikinn. Eftir að liðið þétti raðirnar náðu strákarnir fljótt forystunni í síðari hálfleik og unnu að lokum fimm marka sigur. 

Eyjamennirnir Andri Erlingsson og Elís Þór Aðalsteinsson komust báðir á blað í leiknum. Andri var markahæstur með sjö mörk og Elís Þór skoraði þrjú mörk. 

Næsti leikur liðsins er á morgun gegn Spánverjum kl. 14:00.

Nýjustu fréttir

Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.