Anna Kristjánsdóttir segir frá tilurð bókarinnar
�??Á vormánuðum síðastliðið vor hafði Guðríður Haraldsdóttir samband við mig vegna bókarskrifa eftir að Guðjón Ingi Eiríksson bókaútgefandi hjá Hólum hafði haft samband við hana og farið fram á ritun bókar um ævi mína. �?etta var mér ekkert á móti skapi enda átti ég mikið efni í stafrænum skúffum heima sem ég hafði párað niður á löngum tíma,�?? segir Anna Kristjánsdóttir sem ætlar að lesa upp úr og kynna bók sína, Anna, eins og ég er í Sagnheimum í hádeginu á sunnudaginn.
�??Fyrst var farið fram á að skrá sögu mína á meðan ég bjó enn í Svíþjóð, en blaðakona sem hafði ritað blaðagreinar um mig þar og starf mitt fyrir samtök transfólks í Svíþjóð vildi halda áfram með skrifin og skrá söguna alla. �?g var hinsvegar enganveginn tilbúin til þess á þeim tíma vegna ósættis fjölda fólks við mig auk þess sem slík skrif gætu komið sér illa fyrir mig síðar meir. �?g hafnaði því hugmyndinni sem og annarri ósk sama eðlis nokkrum árum síðar frá annarri sænskri vinkonu minni.�??
Anna segir að eftir að hún hóf að blogga um miðjan síðasta áratug hafi hún skrifað eina og eina endurminningu, bloggað um sumt en annað hafnaði í skúffunni alræmdu og gleymdist þar. �??Einhverjar tilraunir voru þó gerðar til bókarskrifa, en bæði var enginn útgefandi reiðubúinn og eins var ég fremur ósamvinnuþýð enda ekki allra. �?egar við Gurrí hófum samstarf okkar reyndi talsvert á samvinnuna, við vorum ósammála um flesta hluti í upphafi en náðum samt samkomulagi um flest. Eins var ljóst að ýmislegt sem ég hafði skráð mátti alveg missa sín og annað kom í staðinn og þá var ósk frá útgefanda um að hafa bókina fremur stutta og hnitmiðaða og sleppa óþarfa málalengingum,�?? segir Anna sem þekkir vel til í Vestmannaeyjum.
�??Einhverjar ferðir fór ég í sumar á milli Reykjavíkur og Akraness á Akranesferjunni með félögum vorum af Herjólfi, þeim Steinari Magnússyni og Halldóri Waagfjord, fór á Skagann að morgni og kom heim aftur að kvöldi og stuttar ferðirnar urðu einnig til að hugmyndir komust á flug og bættu bókina við frágang textans.
Að lokum má geta þess að svarthvíta myndin af mér með skegg á forsíðu bókarinnar var tekin í Esbjerg haustið 1977 er við vorum þar á henni Vestmannaey þegar við fengum flottromluna um borð og ég þurfti að endurnýja vegabréfið mitt sem hafði runnið út þá um haustið,�?? segir Anna að lokum.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.