Anna Rós Hallgrímsdóttir ráðin skólastjóri GRV

Vestmannaeyjabær hefur valið Önnu Rós Hallgrímsdóttur til að gegna starfi skólastjóra Grunnskóla Vestmannaeyja. Anna Rós er grunnskólakennari með diplóma í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún hefur gegnt starfi deildarstjóra við GRV frá árinu 2010 og áður starfi grunnskólakennara við sama skóla. Einnig hefur hún starfað sem námsráðgjafi og kennari við Árbæjarskóla. Alls sóttu þrír um starfið. Anna Rós mun taka við stöðunni í næsta mánuði.

Á næstu vikum verður deildarstjórastaðan, sem Anna Rós gegndi, auglýst og jafnframt gengið frá ráðningu í áður auglýsta stöðu aðstoðarskólastjóra Hamarsskóla og deildastjórastöður á mið- og yngsta stigi. Skólastjóri GRV gengur frá þessum ráðningum.

Nýjustu fréttir

Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.