Ari Trausti: Að loknum kosningum
Ari Trausti Guðmundsson
Að afloknum þingkosingum sendi ég öllum kjósendum í Suðurkjördæmi kveðjur og um leið þakkir fyrir ágæta kjörsókn, betri en í kosningunm 2016. Vonandi verða að minnsta kosti jafn margir eða fleiri í kjörklefum sveitarstjórnarkosninganna í sumarbyrjun. Átta þingflokkar telst met á Alþingi og setur okkur þingmönnum það fyrir að slípa og aga vinnubrögðin. Gera þau skilvirkari og sanngjarnari. Mörg, og flest mikil, verkefni bíða þingsins eftir óvænt hlé. Nokkur breyting varð á tíu manna þingliði Suðurkjördæmis. �?g sendi þeim sem hurfu a þingi góðar kveðjur og býð nýja þingmenn velkomna í hópinn. Hann hefur dálítið reynt að halda saman um tiltekin mál.
Árangur okkar vinstri-grænna í kjördæminu var viðunandi. Rúmlega eins og hálfs prósentustiga viðbót merkir að við erum á leið í rétta átt hvað málefni, traust og vinnubrögð varðar. �?g þakka stuðningsfólki VG fyrir vinnu og brautargengi hreyfingarinnar. �?á ber líka að þakka öðrum frambjóðendum í kjördæminu fyrir málefnalega baráttu, á opnum fundum í útvarpi og sjónvarpi.
Hvet til þess að næst verði efnt til umræðufunda frambjóðenda fyrir almenning hér og hvar í kjördæminu, í samvinnu flokkanna. Héraðsblöðin og aðrir heimamiðlar stóðu sig vel í aðdraganda koninganna.
�?essi pistill er saminn í miðjum viðræðum fjögurra flokka um myndun ríkisstjórnar. �?á er að sjá hvað úr verður og hvort tímabil umbóta og stöðugleika getur hafist.
Höfundur er þingmaður VG í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.