Árið 2024 byrjar vel
22. júní, 2024

Árið 2023 var gott ár í ferðaþjónustu á Íslandi og sóttu um 2,2 milljónir manna landið heim. Aðeins einu sinni áður höfðu erlendir ferðamenn verið fleiri. Það var árið 2018 þegar 2,3 milljónir erlendra ferðamanna lögðu leið sína hingað til lands. Ferðamenn sem komu hingað í fyrra eyddu að jafnaði meira en árið 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Lítilleg fjölgun ferðamanna það sem af er ári

Árið 2024 byrjar vel þegar horft er til fjölda ferðamanna. Á fyrstu fimm mánuðum ársins voru tæplega 30 þúsund fleiri ferðamenn hér á landi en í fyrra, sem samsvarar 4% fjölgun frá fyrra ári. Fjölgun ferðamanna frá Bandaríkjunum hefur þannig vegið upp á móti lítilsháttar samdrætti í fjölda ferðamanna frá Evrópu. Þá heldur Asíumarkaður áfram að vaxa, en hann hefur verið lengi að ná sér á strik eftir heimsfaraldurinn.

fjolgun_erlendra_ferdam

Óvíst hvernig megi lesa í þróun kortaveltu vegna galla í gögnum

Þrátt fyrir fjölgun erlendra ferðamanna virðist dvalarlengd hafa styst ef marka má gögn um fjölda gistinátta á fyrstu fjórum mánuðum ársins (-6,5%) og eyðsla ferðamanna dregist saman (-7%) á sama tímabili. Þá má líklega rekja samdrátt í veltu að einhverju leyti til galla í gögnum um kortaveltu erlendra korta hér á landi þar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa í auknum mæli nýtt sér erlenda færsluhirðingu en slík kortavelta sést ekki í opinberum kortaveltugögnum. Þannig er líklegt að kortavelta erlendra ferðamanna sé vanmetin í opinberum hagtölum.

Bókunarstaða í ferðaþjónustu áfram góð

Nýleg greining á bókunarstöðu ferðaþjónustunnar sem byggist á úrtaki hótela á höfuðborgarsvæðinu, sýnir að þrátt fyrir lítillega fækkun bókana í júní þá er bókunarstaðan betri frá og með ágúst og inn á mitt næsta ár m.v. sama tíma í fyrra. Þótt greinilega sé að hægja á vexti umsvifa í ferðaþjónustu, líkt og í hagkerfinu í heild, virðist orðum aukið að óveðurský séu yfir greininni og að Ísland sé dottið úr tísku meðal ferðamanna.

Aðrir hagvísar sýna áframhaldandi vöxt umsvifa

Í apríl fjölgaði starfandi í ferðaþjónustu á milli ára um nær 350 manns. Bílaleigubílum í umferð fjölgaði um 7% milli ára í júní og umferð á hringveginum í maí jókst um 4% milli ára. Umferðin jókst aðallega á Suðurlandi (5%) og Vesturlandi (4%).

Hægari vöxtur umsvifa er nauðsynlegur til að ná tökum á verðbólgu

Vöxtur ferðaþjónustunnar undanfarinna ára, í kjölfar rénunar heimsfaraldurs, hefur verið gífurlega mikill. Árið 2023 var eitt sterkasta ár greinarinnar til þessa en um þessar mundir er markmið hagstjórnar að hægja á vexti efnahagsumsvifa, bæði í ferðaþjónustu og öðrum atvinnugreinum, til þess að ná tökum á verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta hér á landi. Hagtölur um umsvif, bæði í ferðaþjónustu og í hagkerfinu í heild, virðast enn ekki benda til markverðs samdráttar þótt hægi á vextinum, segir að endingu í tilkynningu ráðuneytisins.

https://eyjar.net/fleiri-farthegar-til-eyja/

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
14. tbl. 2024
14. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst