Árið 2027 verða 400 ár frá Tyrkjaráni
Óskar og Karl Smári leggja sitt af mörkum til að halda á lofti þeim ógnaratburðum sem Tyrkjaránið var.

Sögusetrið 1627 í Vestmannaeyjum bauð að venju upp á dagskrá sem tengist Tyrkjaráninu þann 27. júlí 1627 á Bryggjunni í Sagnheimum síðasta laugardag. Í ár eru liðin 398 ár frá því að ræningjar frá Alsír komu til Vestmannaeyja þar sem þeir rændu, rupluðu,  drápu 36 íbúa og tóku 242 manneskjur með sér á þrælamarkaði í Alsír.

Mæting var góð og áhugaverð dagskrá. Óskar Vignisson, frá Grindavík sýndi drög að kvikmynd sem Halldór B. Halldórsson tók þar sem sagan í Vestmannaeyjum er rakin. Áhugaverð nálgun á miklum atburðum og verður fróðlegt að sjá lokaútgáfuna. Þulur er Adam Nichols sem þekkir sögu Tyrkjaránsins flestum betur.

Karl Smári Hreinsson, skólastjóri og rithöfundur sagði frá þýðingum á Reisubók séra Ólafs Egilssonar á ýmsum tungumálum, t.d. ítölsku, hollensku og nú síðast á frönsku.

Ragnar Óskarsson, formaður Sögusetursins sagði að næsta stóra verkefnið vera alþjóðlega ráðstefnu um þessa miklu atburði á 400 ára afmælinu 2027. Er von á fjölda fræðimanna víða að úr heiminum.

 

Aðsókn var góð enda Tyrkjaránið mörgum ofarlega í huga.

Nýjustu fréttir

Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Nýr Þjóðarpúls Gallup: Breytingar á fylgi í Suðurkjördæmi
Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.