Arndís Soffía skipuð sýslumaður í Vestmannaeyjum

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Arndísi Soffíu Sigurðardóttur sýslumanns í Vestmannaeyjum frá 1. apríl næstkomandi. Hún var metin hæfust umsækjenda til að gegna starfinu.

Arndís Soffía er lögfræðingur með lögreglumenntun og hefur auk þess sótt sér menntun í afbrotafræði. Hún á að baki starfsferli innan lögreglu og sem fulltrúi sýslumanns og nú síðast staðgengill sýslumannsins á Suðurlandi.

Að undanförnu hefur verið unnið að því að flytja aukin verkefni til embættisins, með það að markmiði að efla embættið í Vestmannaeyjum, og mun Arndís meðal annars koma að innleiðingu þeirra verkefna.

Stafstöð sýslumannsins er í Vestmannaeyjum og mun Arndís Soffía flytjast þangað búferlum ásamt fjölskyldu sinni.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.