Ársfundur Byggðastofnunar verður með óhefðbundnu sniði í ár líkt og í fyrra. Fundurinn verður sendur út rafrænt frá höfuðstöðvum stofnunarinnar á Sauðárkróki fimmtudaginn 6. maí kl. 13:00. Fundurinn er öllum opinn og gert er ráð fyrir að honum ljúki um kl. 15:00.
Dagskráin er sem hér segir:
- Ávarp formanns stjórnar Byggðastofnunar – Magnús B. Jónsson.
- Ávarp ráðherra – Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
- Starfsemi Byggðastofnunar – Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri.
- Helstu áherslur við endurskoðun byggðaáætlunar – Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
- Byggðafesta og búsetufyrirætlanir á Íslandi – Sigríður Elín Þórðardóttir, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar.
- Útlánastarfsemi Byggðastofnunar, þróun og árangur síðustu ára – Arnar Már Elíasson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar.
- Notkun gagnagrunns og mælaborða um byggðatengdar upplýsingar – Þorkell Stefánsson, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar.