Áslaug Arna - Störf í nýju ráðuneyti óháð staðsetningu
15. nóvember, 2022

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tyllti niður tá með skrifstofu sína í Vestmannaeyjum í lok síðasta mánaðar. Kom hún sér fyrir í Þekkingarsetri Vestmannaeyja þar sem hún tók á móti gestum., auk þess sem hún heimsótti fyrirtæki. Áslaug Arna hefur sett upp skrifstofu víða á landsbyggðinni og vill með því stytta boðleiðir um leið og hún kynnir sér aðstæður á hverjum stað.

Háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið varð til þegar núverandi ríkisstjórnarflokkar, Framsókn, Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur ákváðu að halda áfram samstarfi. Áslaug Arna gaf strax út að hið nýja ráðuneyti myndi auglýsa öll störf óháð staðsetningu og hæfni starfsfólks frekar en staður yrði látin ráða.

„Ég er hérna af því að ég er með skrifstofuna mína víðar en í Reykjavík,“ sagði Áslaug Arna þegar Eyjafréttir hittu hana á förnum vegi í Eyjum. „Ég ákvað að vera í Vestmannaeyjum í haust og hér eru frábærar aðstæður til að starfa í Þekkingarsetrinu í Vestmannaeyjum. Við stofnun ráðuneytisins tók ég það skref að störf verði auglýst óháð staðsetningu.

Þú getur farið með starfið annað, tímabundið eða til lengri tíma. Sjálf vildi ég líka gefa gott fordæmi með því að fara með mína eigin skrifstofu út á land og sýna fólki einstaka staði víða um land þar sem hægt er að starfa. Þetta er áttunda skrifstofan mín utan Reykjavíkur og gefur mér mikið að fá þetta góða samtal við fólk í samfélögum víða um land og að bjóða upp á opna viðtalstíma.

Þegar kemur að því að ráða starfsfólk á Eyjafólk eins og aðrir möguleika standist þeir kröfur án þess að þurfa að færa sig um set,“ sagði Áslaug Arna.

Aukin áhersla á iðnnám

Aðspurð um málaflokka í hennar ráðuneyti sem snertir samfélagið í Eyjum segir hún flesta málaflokkana skipta máli. Mikið sé kallað eftir auknu fjarnámi við háskóla, mikilvægt sé að efla iðnað alls staðar og aðgengi að iðnnámi m.a. á landsbyggðinni og nýsköpun er orðin stór hluti af litlum og stórum fyrirtækjum. ,,Ég hef stigið skref til að ýta undir aukið iðnnám með sérstöku samstarfi háskólanna og hvata með fjármagni til að bjóða upp á aukið fjarnám.“

Áslaug Arna heimsótti nokkur fyrirtæki í Vestmannaeyjum, átti fundi með bæjarráði og opnaði listasýningu ásamt því að bjóða fólki að eiga milliliðalaust samtal í Þekkingarsetrinu.

Mynd: Áslaug Arna með Ísfélagsmönnum. Eyþóri Harðarsyni og Stefáni Friðrikssyni.

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
14. tbl. 2024
14. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst