Ásmundur á mbl.is - Höfum daginn til að klára þetta
�??Við höf­um bara dag­inn til þess að klára þetta að mínu mati,�?? seg­ir Ásmund­ur Friðriks­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, í sam­tali við mbl.is spurður um stöðuna í kjara­deilu sjó­manna en verk­fall þeirra hef­ur staðið yfir frá því í des­em­ber. Vís­ar hann þar til loðnunn­ar og seg­ir að ef þau verðmæti eiga ekki að synda fram­hjá Íslend­ing­um þurfi að bregðast hratt við.
�??�?etta er bara orðið alltof langt. �?að þarf að koma flot­an­um af stað og það tek­ur tíma. Ef við ætl­um að ná þess­um loðnu­brönd­um þá er ekki eft­ir neinu að bíða. �?g held að aðkoma rík­is­ins sé al­ger­lega óumflýj­an­leg,�?? seg­ir Ásmund­ur. Taka megi þann slag hvort ríkið eigi alltaf að koma inn í slík­ar kjara­deil­ur en í þeirri stöðu sem kom­in sé upp liggi lausn­in hjá rík­inu.
�??Við verðum að rísa und­ir þeirri ábyrgð,�?? seg­ir Ásmund­ur og vís­ar þar til þess að ríkið samþykki að fæðis­pen­ing­ar sjó­manna verði und­anþegn­ir skatti. �??�?g er al­veg til­bú­inn að taka þann slag og tel að við verðum bara að sýna rögg­semi og klára þetta mál í dag. �?að þarf svo vit­an­lega að fara í gegn­um þingið með breyt­ing­um á skatta­lög­um og þar fram eft­ir göt­un­um.�??
�?etta er nauðsyn­legt að mati Ásmund­ar í ljósi þeirra miklu verðmæta sem séu í húfi. �??Við meg­um ekki láta þau synda fram­hjá okk­ur. Síðan drepst loðnan og verður eng­um til gagns.�?? Bend­ir hann á að 17% hrogna­fyll­ing muni vera kom­in í loðnuna og því stytt­ist óðfluga í það að hún nái 22-23% og telj­ist þar með vinnslu­hæf. �?etta séu mestu verðmæti upp­sjáv­ar­skip­anna.
Af mbl.is.

Nýjustu fréttir

Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.