Athugasemd við athugasemd!
12. mars, 2021

Vegna athugasemda heilbrigðisráðuneytisins sem birtar voru á vef Stjórnarráðsins í gær vilja bæjarstjórar Fjarðabyggðar og Vestmannaeyja koma eftirfarandi á framfæri:

Lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 72/2002, sem tryggja störf og réttindi starfsfólks við yfirfærslu stofnana milli rekstraraðila, hafa verið látin gilda um tilflutning verkefna milli ríkis og sveitarfélaga. Að bera því við að heilbrigðisráðherra hafi ekki heimild til þess, er útúrsnúningur og ber þess merki að heilbrigðisyfirvöld vilja ekki tryggja hnökralausan tilflutning dvalar- og hjúkrunarheimilanna til ríkisins. Eftir standa rúmlega 140 starfsmenn í óvissu og framtíð þeirra ótrygg.

Auðvelt að beita umræddum lögum þegar það hentar ríkinu, en bera svo við heimildarleysi þegar það hentar ekki
Þegar málefni fatlaðra voru flutt frá ríki til sveitarfélaga voru umrædd lög látin gilda. Þau voru einnig látin gilda þegar hluti starfsfólks hjúkrunarheimilisins á Hornafirði fluttust frá Sveitarfélaginu Hornafirði til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á síðasta ári, sömu stofnunar og mun nú taka við rekstri hjúkrunarheimilisins í Vestmannaeyjum. Þá stóð til að réttarstaða starfsfólks yrði tryggð við tilflutning hjúkrunarheimilisins á Akureyri til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands árið 2020, eins og fram kom í sameiginlegri fréttatilkynningu stjórnvalda og umræddra stofnana í ágúst 2020. Það virðist því auðvelt að beita umræddum lögum þegar það hentar ríkinu, en bera svo við heimildarleysi þegar það hentar ekki.

Að bera því svo við að bæjarstjórunum hefði mátt vera það ljóst að lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum ættu ekki við, er hvorki ljóst né regla. Það sanna dæmin hér að ofan og öll þau óljósu skilaboð sem sveitarfélögin fengu um að lögin myndu gilda og ekki gilda, voru ekki til að skýra málið frekar.

Alltaf var gengið út frá því að fólkið héldi störfum sínum
Til upprifjunar: Eftir ítrekaðar en árangurslausar tilraunir til viðræðna við heilbrigðisráðuneytið um viðbótarfé til reksturs hjúkrunarheimila sveitarfélaganna, sem sveitarfélögin hafa árum saman greitt hundruðir milljóna með, var fátt annað í stöðunni en segja upp samningum um rekstur þeirra á. Eftir að uppsagnir á samningi höfðu verið mótteknar af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ), gekk illa að fá fundi og svör um yfirfærsluna. Sveitarfélögin þurftu að margganga á eftir upplýsingum og viðræðum. Þegar viðræður hófust spurðu sveitarfélögin ítrekað um réttarstöðu starfsfólks hjúkrunarheimilanna enda umhugað um að staða þess væri tryggð. Endurtekið var leitað eftir leiðbeiningum frá SÍ um hvernig halda átti á málum starfsfólks. Engin skýr svör og ýmist látið í það skína að lögin ættu við eða ekki. Engin svör bárust um það hvort skýr vilji væri af hálfu ráðuneytisins um að beita umræddum lögum. Alltaf var gengið út frá því að fólkið héldi störfum sínum.

Sveitarfélögin leita til velferðarnefndar Alþingis     
Það leið og beið án þess að niðurstaða málsins lægi fyrir. Það var ekki fyrr en á fundi með heilbrigðisráðuneytinu þann 3. mars sl., mörgum mánuðum eftir að samningum var sagt upp, að sveitarfélögunum var tilkynnt um þá ákvörðun ráðuneytisins að heilbrigðisstofnanir viðkomandi svæða tækju að sér rekstur hjúkrunarheimilanna frá og með 1. apríl 2021. Einnig var það tilkynnt að lög um aðilaskipti, nr. 72/2002 myndu ekki vera látin gilda þannig að störf á heimilunum yrðu auglýst. Sveitarfélögunum yrði þannig nauðugur sá eini kostur að segja öllu starfsfólki heimilanna upp með tilheyrandi óvissu fyrir starfsfólk og heimilismenn. Var þessum vinnubrögðum að sjálfsögðu harðlega mótmælt, enda engan veginn ásættanleg og koma fram rök sveitarfélaganna í bréfum þeirra til ráðuneytisins sem opin eru undir fundargerðum á heimasíðum þeirra

Það hefði verið ólíkt ábyrgari og faglegri viðbrögð ráðuneytisins við uppsögn sveitarfélaganna að vinna í samstarfi að farsællri yfirfærslu þessarar viðkvæmu starfsemi. Þannig hefði verið hægt að koma í veg fyrir að mál væri komin í þennan hnút. Ábyrgð á því ber heilbrigðisráðuneytið eitt. Sveitarfélögin hafa því ákveðið að leita til velferðarnefndar Alþingis um að nefndin beiti sér fyrir því að nauðsynlegar ráðstafanir verði gerðar til að tryggja starfsfólki áframhaldandi störf og réttindi við yfirfærsluna.

Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.