Bæta við áttundu ferðinni síðar í sumar
bidrod_bbilar_herj_2022
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur ohf. hefur ákveðið að sigla átta ferðir á dag frá og með 1. júlí nk. til 11. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir jafnframt að megin tilgangur og markmið með rekstri Herjólfs ohf. sé að bæta þjónustu við viðskiptavini félagsins og ekki síst samfélagið sjálft.

Því hefur verið tekin ákvörðun um að bæta við áttundu ferðinni í siglingaráætlun skipsins á tímabilinu 1. júlí – 11. ágúst 2024. Með öflugri markaðssetningu og aukningu ferða hefur farþegum og bílum fjölgað mikið á þessu tímabili síðustu tvö ár, með aukningu ferða er verið að koma til móts við aukna eftirspurn.

Áður auglýst siglingaáætlun um verslunarmannahelgina helst óbreytt. Um er að ræða daganna 2-5 ágúst.

Allir þeir farþegar sem eiga bókað á þessu tímabili koma til með að fá send uppfærð brottfaraspjöld með nýjum tímasetningum á næstu dögum. Þegar er opið fyrir bókanir. Brottfarir koma til með að færast sem hér segir:

Vestmannaeyjar brottför :
07:00 – Óbreytt
09:00 – Áður ferð kl. 09:30
11:00 – Áður ferð kl. 12:00
13:00 – Ný ferð í áætlun
16:00 – Áður ferð kl. 14:30
18:00 – Áður ferð kl. 17:00
20:00 – Áður ferð kl. 19:30
22:00 – Óbreytt

Landeyjahöfn brottför:

08:00 – Áður ferð kl. 08:15
10:00- Áður ferð kl. 10:45
12:00 – Áður ferð kl. 13:15
14:00 – Ný ferð í áætlun
17:00 – Áður ferð kl. 15.45
19:00 -Áður ferð kl. 18:15
21:00 – Áður ferð kl. 20:45
23:00 – Áður ferð kl. 23:15

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.