Áttatíu milljónir úr Líknarsjóði Harðar og Unnar

Líknarsjóðurinn var stofnaður árið 1996. Stofnendur sjóðsins voru hjónin, Hörður �?orgeirsson, húsasmíðameistari, fæddur 15. júlí 1917 á Hlemmiskeiði í Skeiðahreppi og Unnur Guðmundsdóttir, húsmóðir, fædd 30. júlí 1921 í Túni í Hraungerðishreppi.Hörður lést í Reykjavík 28. maí 2006.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja hvers konar líknarstarfsemi á Íslandi eftir nánari ákvörðun sjóðsstjórnar.

Stjórn Líknarsjóðsins samþykkti að gefa sjúkrahúsi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands gjöf til að efla starfsemi þess, bæta þjónustu þess við íbúa Suðurlands og til að styðja við framþróun í sjúkrahúsþjónustu. Í því skyni verði stofnaður sérstakur styrktarsjóður við stofnunina í nafni þeirra hjóna.
Stjórn Líknarsjóðs Unnar og Harðar ásamt framkv.stjórn HSu

Ráðstöfun úr sjóðnum getur verið í formi styrkja til að styðja við tiltekin verkefni eða kaup á búnaði, sem annars væri ólíklegt að stofnunin fengi fjárveitingu fyrir úr ríkissjóði. Um getur verið að ræða minni eða stærri styrki eftir því sem stjórnendur stofnunarinnar telja að geti komið stofnuninni að bestu gagni hverju sinni.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands þakkar af alhug þessa miklu gjöf og þann góða hug til stofnunarinnar, sem að baki býr. �?að er stofnuninni afar mikilvægt að eiga jafn góðan stuðning og þessi gjöf sýnir, frá velunnurum stofnunarinnar.
Af fréttavef Heilbrigðisstofnunar Suðurland, hsu.is

Nýjustu fréttir

Ein fremsta hlaupakona heims hljóp The Puffin Run leiðina
Öll börn eiga að sitja við sama borð
Hrafnhildur – Blendnar tilfinningar að kveðja FÍV
Sólmyrkvinn sést vel í Vestmannaeyjum 12. ágúst
Andri Erlingsson markahæstur í fyrsta leik á EM u-20
Alexander Örn – Litlu atriðin skipta mestu máli
Sigurður Andrason – Stóð upp úr að vera valinn í Landsliðið
Tóku flugið í Eldheimum og hrifu tónleikagesti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.