Íslenska kvennalandsliðið í handbolta undir stjórn Arnars Péturssonar æfir nú á fullu fyrir Evrópumótið sem fer fram í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss í nóvember og desember. Er Ísland í riðli með Hollandi, Þýskalandi og Úkraínu og verður leikið í Innsbruck í Austurríki. Ísland mætir Hollandi í fyrsta leiknum 29. nóvember, Úkraínu í öðrum leik 1. desember og Þýskalandi í þriðja leik 3. desember. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðil en hin tvö liðin hafa lokið keppni.
Landsliðið er í æfingaferð í Tékklandi þar sem það leikur þrjá leiki, gegn Póllandi, Tékklandi og tékknesku félagsliði. „Ég er glaður að fá leiki sem við fáum til að þróa okkar leik. Þetta eru mikilvægir undirbúningsleikir fyrir það sem koma skal í lok nóvember,“ sagði Arnar við mbl.is í morgun. Hann tók við landsliðinu 2019 og hefur það tekið miklum framförum undir hans stjórn.
Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Eyjakonuna Söndru Erlingsdóttur sem er einn af máttastólpum og fyrirliðum landsliðsins. Spilar hún með Metzingen í Þýskalandi. Sandra eignaðist sitt fyrsta barn 17. júlí en stefnir á EM í haust að því er kemur fram í viðtalinu. Og Eyjamaðurinn Arnar vill fá hana í hópinn. „Ég vona að þetta gangi vel hjá henni áfram. Ég vona innilega að þetta gangi upp og hún verði með okkur á EM,“ sagði Arnar við mbl.is.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst