Auglýsingarveisla í Skvísusundi
Haraldur Ari á tökustað í morgun.

Slegið hefur verið upp veisluborðum í Skvísundi sem skreytt er með litríkum borðum og blöðrum. Skýringin er að þarna er verið að taka upp atriði í auglýsingu um Vestmannaeyjar fyrir Íslandsstofu.

Aðstoðarleikstjóri er Eyjamaðurinn Haraldur Ari Karlsson. „Við höfum verið að taka upp atriði víða á Heimaey sem lýkur með heljarmikilli veislu hér í Skvísusundinu. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt verkefni og gaman að vinna á heimaslóð. Alveg frábært, allir tilbúnir að taka þátt og vera með. Það er Sensor sem er framleiðandi,“ sagði Haraldur Ari að endingu.

Nýjustu fréttir

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.