Auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum

Heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum Sjúkratrygginga og tannréttingasérfræðinga undirrituðu samning um tannréttingar í heilbrigðisráðuneytinu í vikunni en þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur hefur verið gerður um þjónustu tannréttingasérfræðinga.

Í fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að samningurinn felur í sér mikilvæg tímamót og skapar meðal annars forsendur til þess að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum.

Samningurinn sem er til þriggja ára tekur gildi 1. september n.k og tekur til tannréttingaþjónustu á eigin stofum tannréttingasérfræðinga fyrir sjúkratryggða einstaklinga. Undir samninginn falla bæði almennar tannréttingar barna, þar sem Sjúkratryggingar greiða tannréttingastyrk sem og nauðsynlegar tannréttingar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Samhliða gildistöku samningsins munu styrkir vegna almennra tannréttinga hækka.

Með tilkomu samnings um tannréttingar er staða sjúklinga styrkt verulega. Til viðbótar við aukna greiðsluþátttöku ríksins í tannréttingum kveður samningurinn á um samstarfsnefnd sem stuðlar að auknu samstarfi og samtali milli hagaðila og tekur á álitamálum sem upp koma varðandi framkvæmd samningsins. Jafnframt er kveðið á um virka þátttöku í þróun stafrænna lausna, nýrrar tækni og nýsköpunar sem leiðir til aukinnar hagkvæmni og gæða í þjónustu.

Vinna við breytingar á gildandi reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar stendur nú yfir og stefnt er á að ný reglugerð taki gildi samhliða gildistöku samningsins. Í henni mun koma fram fjárhæð styrks til almennra tannréttinga og nánari útlistun á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.

Samningurinn byggir á að í gildi sé samstarfsamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands en hann var undirritaður í maí á þessu ári.

Ljósmynd: Stjórnarráðið.

Nýjustu fréttir

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.