Bæjarstjóri - Auknar niðurgreiðslur vegna húshitunar

„Bæjarráð Vestmannaeyja hefur mótmælt harðlega hækkunum á húshitunarkostnaði í Eyjum og óskað eftir skýringum hjá HS-veitum, Orkustofnun og orkumálaráðuneytinu. HS- veitur hafa sérleyfi og við íbúar getum bara skipt við það fyrirtæki þegar við kaupum varmaorku til húshitunar. Það er umhugsunarefni að varmadælustöðin virðist alls ekki skila neinni lækkun á gjaldskrá eins og lagt var upp með að hún ætti að gera,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri á Facebokksíðu sinni í gær.

„Gríðarmiklar hækkanir hafa verið síðan í september, eða um 30% þegar allt er tekið með. Á fundi í vikunni með fulltrúum Orkustofnunar fékkst staðfest að orkumálaráðherra hefur lagt til, og það verið samþykkt, að auka niðurgreiðslu til íbúa í Vestmannaeyjum vegna húshitunar. Niðurgreiðslan var 147,80 kr./m³ en hækkaði í 158,74 kr./m³ 1. september 2023 og aftur í 201,06 kr./m³ frá 1. janúar 2024.

Fyrri hækkun niðurgreiðslna átti að koma fram á reikningum frá 1. september vegna hækkunar HS-veitna, en skilaði sé einhverra hluta vegna ekki til notanda. Orkustofnun upplýsti að þessi hækkun á niðurgreiðslum fyrir þessa mánuði myndi skila sér að fullu á næstu reikningum HS- veitna.

Síðasta hækkun niðurgreiðslunnar á að koma inn á reikninga frá 1. janúar 2024. Staðan er því sú að ríkið hefur hækkað sína niðurgreiðslu frá 1. september um 27 % til að mæta hækkunum HS-Veitna á gjaldskrá til húshitunar í Vestmannaeyjum. Þetta mun skila sér til íbúa á næstu reikningum og því milda mjög þær hækkanir sem hafa verið á gjaldskrá HS-veitna.

Bæjarráð Vestmannaeyja og aðrir kjörnir fulltrúar leggja sig alltaf fram fyrir íbúa Vestmannaeyja í öllum málum,“ segir Íris.

Mynd HS Veitur. Starfsmenn HS Veitna í Vestmannaeyjum hafa haft í mörg horn að líta undanfarið í rafmagns- og vatnsmálum.

 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.