Aumt yfirklór
Nú á dögunum varð það ljóst að Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum hafa hækkað leikskólagjöld lang umfram það sem almennt er verið að gera í fjölmörgum sveitarfélögum landsins. �?etta gera þeir á sama tíma og verkalýðshreyfingin og samtök atvinnulífsins leggja höfuðáherslu að sveitarfélög haldi álagningu á íbúa sína í lágmarki til þess að liðka fyrir kjarasamningum.
En Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum koma slíkar óskir hrein ekkert við og í stað þess að hlusta á óskirnar og taka mið af þeim eins og fjölmargir opinberir aðilar hafa gert velja þeir í staðinn að stórauka álögur á barnafólk.
Eins og venja er þegar sjálfstæðismenn í Eyjum þurfa að verja óvinsælar gerðir sínar reyna þeir alltaf að finna blóraböggla. Nú kenna þeir helst Jórunni Einarsdóttur bæjarfulltrúa Vestmannaeyalistans um hækkunina þótt hún hafi í málflutningi sínum og afstöðu í bæjarstjórn hvergi samþykkt hækkun leikskólagjaldanna, heldur þvert á móti. �?essi aðferð bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna er nú sem og í mörgum öðrum tilvikum aumt yfirklór vegna óvinsælla og ótímabærra aðgerða, í þessu tilfelli hækkana leikskólagjalda.
En batnandi mönnum er best að lifa. Mig langar því að skora á bæjarstjórn Vestmannaeyja að falla frá hækkunum leikskólagjaldanna og koma þannig á móts við barnafjölskyldur í Vestmannaeyjum.
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.