Fyrstu A-landsliðskonur Hamars í körfuknattleik
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik er að keppa í Evrópukeppninni um þessar mundir og mættu þær liði Slóvena 3. september. Íslensku stelpurnar töpuðu 69 – 94 en 16 stiga munur var í hálfleik þeim slóvönsku í vil. Þetta er þriðji leikur íslensku stelpnanna í keppninni og jafnframt síðasti heimaleikurinn en síðustu tveir leikir liðsins fara fram […]
Enn vantar skilti í Reynisfjöru
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir nauðsynlegt að setja skýr lög eða reglur um það hver eigi að setja upp viðvörunarskilti á hættulegum ferðamannastöðum. Unnið er að því að hanna viðvörunarskilti fyrir Reynisfjöru í Mýrdal. Þrír ferðamenn voru hætt komnir um síðustu helgi í Reynisfjöru þegar þeir óðu út í sjó til að reyna að bjarga höfrungi sem […]
�?riggja ára stúlka kafnaði næstum
Minnstu munaði að þriggja ára stúlka kafnaði í handklæðahring heima hjá sér á Selfossi fyrr á þessu ári. Herdís Storgaard forstöðumaður Forvarnarhúss ráðleggur foreldrum smábarna að taka niður handklæðahringi. Hún segir margar hengingargildrur á heimilum. (meira…)
Leikfélag Selfoss með fund í kvöld
Leikfélag Selfoss heldur opinn fund í Litla leikhúsinu við Sigtún, kl: 20:30 í kvöld fimmtudaginn 4. september. Á fundinum verður starf vetrarins kynnt. Allir velkomnir. (meira…)
Vaktin kemur út síðdegis
Breyting verður á útgáfudegi Vaktarinnar en héðan í frá mun blaðið koma út síðdegis á fimmtudegi mun blaðið liggja frammi í öllum helstu verslunum bæjarins. Vaktin verður að sjálfsögðu áfram ókeypis og auk þess verður áfram hægt að lesa blaðið hér á netinu. (meira…)
�?ingmaður seldi fjölmiðil

„Við tókum við þessu úr höndum Bjarna núna um mánaðarmótin,“ segir Guðmundur Karl Steindórsson, ritstjóri og eigandi Sunnlenska fréttablaðsins. Guðmundur og eiginkona hans Jóhanna Sigríður Hannesdóttir, keyptu blaðið af Bjarna Harðarsyni, þingmanni Framsóknarflokksins, en hann hafði átt blaðið um nokkurt skeið. (meira…)
Séra Ragnheiður Jónsdóttir ráðin í Mosfellsprestakall

Valnefnd í Mosfellsprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, ákvað á fundi í gær að leggja til að sr. Ragnheiður Jónsdóttir verði ráðin sóknarprestur í prestakallinu. Átta umsækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 15. október næstkomandi. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Kjalarnesprófastsdæmis. (meira…)
Hringvegurinn færður norðar frá Selfossi
Vegagerðin hefur kynnt sveitarstjórnum nýjar hugmyndir um legu hringvegar og brúarstæðis norðan við Selfoss. Hugmyndirnar gera ráð fyrir að vegurinn færist norðar frá Selfossi og að brúarstæðið verði við gamla ferjustæðið, þar sem háspennulínur liggja nú. Breytingarnar eru meðal annars til komnar vegna jarðfræðilegra aðstæðna, að því er segir í Gluggans. (meira…)
�?�?egiðu nú, Guðni�?
Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna, verður seint þekktur fyrir að tala þannig að fari á milli mála hvað honum býr í brjósti. Því fékk Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar, að kenna á þegar framsóknarformaðurinn greip fram í fyrir vinstri-græna formanninum á þingi í gær. „Þegiðu nú, Guðni,“ (meira…)
Hermann í stóru hlutverki áfram

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, segir Hermann Hreiðarsson áfram munu spila stórt hlutverk með liðinu en efasemdir hafa komið upp um framtíð Eyjamannsins hjá bikarmeisturunum eftir að liðið fékk hinn unga Armand Traore að láni frá Arsenal og fékk svo alsírska landsliðsmanninn Nadir Belhadj að láni frá franska liðinu Lens út tímabilið. (meira…)
Viðar �?rn og Siggi Eyberg í u-19 ára landsliðið Íslands
Viðar Örn Kjartansson og Sigurður Eyberg Guðlaugsson voru á dögunum valdir í u-19 ára landslið Íslands sem keppir tvo landsleiki við Norður Írland 8. og 10. september. Þetta er frágær árangur hjá þessum efnilegu strákum og eru þeir vel að þessu vali komnir. Viðar hefur verið í u-17 ára landsliðinu, en Siggi er í fyrsta […]
Markahæstu menn og staðan í 1. deild
Hér má sjá markahæstu menn 1. deildar og stöðuna í deildinni eins og hún er nú: (meira…)
KS/Leiftur féll en Selfoss styrkti stöðu sína
Selfoss og KS-Leiftur áttust við á Selfossvelli í frábæru fótboltaveðri í gærkvöldi. Fyrir leikinn var ljóst að þetta yrði mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Selfoss þurfti sigur til að halda sér í öðru sæti deildarinnar og KSL þurfti sigur til að eiga möguleika á að bjarga sér frá falli. (meira…)
Selfoss og Stjarnan með sigra í kvöld – KS/Leiftur fallið
Enn eiga Selfoss eða Stjarnan einnig möguleika á að fara upp því bæði lið unnu sína leiki í kvöld og aðeins tvö stig skilja þau að þegar tvær umferðir eru eftir. Þar með varð ljóst að ÍBV er ekki komið í Landsbankadeildina að sinni en ef Víkingur hefði unnið eða leikur liðsins við Stjörnuna hefði […]
Enn allt opið í 1. deild

ÍBV er ekki enn öruggt með sæti í úrvalsdeild að ári en í kvöld fóru fram fjórir leikir í 1. deild. Stjarnan mætti m.a. Víking Reykjavík á heimavelli Víkinga en Stjarnan má ekki tapa stigi og ÍBV verður að tapa sínum ef Eyjamenn eiga að missa af sætinu. Stjarnan vann góðan útisigur í kvöld, 1:2 […]
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig í Suðurkjördæmi

Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups hefur orðið nokkur breyting á fylgi stjórnmálaflokkanna. Heildarniðurstaðan þegar litið er á kjördæmafylgið er sú að sjálfstæðismenn tapa fylgi í öllum kjördæmum nema í Suðurkjördæmi þar sem þeir bæta við sig 0,2%. Þar eru reyndar minnstu fylgisbreytingarnar (meira…)
Smávægileg fjölgun íbúa í Eyjum

Í nýútkomnum tölum Hagstofunnar um búferlaflutninga, kemur fram að alls hafa 127 manns flutt frá Eyjum á tímabilinu 1. janúar til 31. ágúst 2008. Til Eyja hafa hinsvegar flutt 115 manns á þessu tímabili. Það þýðir að 12 fleiri hafa flutt frá Eyjum en til. Samkvæmt upplýsingum Áka Heinz á bæjarskrifstofunum, hafa fæðingar frá 1. […]
Bílvelta á haugasvæðinu í gærkvöldi

Fólksbifreið valt á haugasvæðinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Þrennt var í bílnum sem fór eina veltu en fólkið slasaðist ekki. Það var þó flutt til skoðunar á sjúkrastofnun en fékk að fara heim að henni lokinni. Ökumaður segir bílinn hafa orðið bremsulausan. Verður bíllinn skoðaður síðar í dag. (meira…)
Víkingur R. gæti tryggt ÍBV sæti í efstu deild í kvöld

Í kvöld fara fram fjórir leikir í 1. deild karla. Toppbaráttan er í algleymingi, þrjú lið berjast um tvö sæti, Stjarnan, sem er í þriðja sæti, Selfoss í öðru sæti og ÍBV í því efsta en ÍBV hefur verið í efsta sæti í allt sumar. Ef allt gengur upp, gæti ÍBV verið öruggt með sæti […]
Liðin sem voru með ÍBV í riðli fóru upp

Nú er ljóst að það verða ÍR og GRV sem leika í efstu deild næsta sumar í kvennaknattspyrnunni. ÍR hafði betur gegn Hetti 9:0 í tveimur leikjum og GRV vann Völsung 7:2 í tveimur leikjum. ÍR og GRV voru bæði í A-riðli, enduðu í tveimur efstu sætum riðilsins en í þriðja sæti varð ÍBV. (meira…)