Selfoss – KS/Leiftur kl. 18:00 í dag á Selfossvelli

Selfoss fær sameinað lið Siglufjarðar og Leifturs Ólafsfirði í heimsókn og er leikurinn ákaflega mikilvægur í harðri baráttu á toppi 1 deildarinnar í knattspyrnunni. Mikið verður um fjör og stemmningu á leiknum og eru stuðningsmenn Selfoss hvattir til að mæta snemma á leikinn. Heiðursgestir á leiknum verða Selfyssingurinn Einar Guðmundsson þjálfari unglingalandsliðsins í handbolta og […]

Lögreglan fylgjst með aldri gesta á skemmtistöðum

Lögreglumenn fóru í eftirlitsferð á skemmtistaðinn 800 bar á Selfossi aðfaranótt síðastliðins sunnudags. Þar stóðu þeir afgreiðslumann á bar að selja manni 18 ára gömlum manni áfengi en eins og kunnugt er þá má ekki selja yngri en 20 ára áfengi. Þremur unglingsstúlkum var vísað út úr húsinu vegna þess að þær höfðu ekki náð […]

Kastaði pakka inn á svæðið

Fangavörður á Litla-Hrauni veitti í vikunni athygli sígarettupakka innan fangelsisgirðingar. Pakkanum hafði greinilega verið kastað yfir girðingarnar tvær sem umlykja fangelsið. Pakkinn var þyngdur með skrúfum. Inni í pakkanum leyndust svo nokkrar töflur sem talið er að sé lyf. Málið er í rannsókn en ekki liggur fyrir hver kastaði pakkanum inn á svæðið. (meira…)

Bráðabirgðalög vegna skjálfta staðfest

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem ætlað er að staðfesta bráðabirgðalög um breytingu á lögum um Viðlagatryggingu Íslands. Bráðabirgðalögin voru sett í lok maí eftir að snarpur skjálfti reið yfir Suðurland með tilheyrandi tjóni. (meira…)

Samfylkingin bætir við sig 11% í Suðvesturkjördæmi

Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups hefur fylgi stjórnarflokkanna breyst mest í Suðvesturkjördæmi miðað við úrslit Alþingskosninganna í fyrra. Þar tapa sjálfstæðismenn rúmum 8% en Samfylkingin eykur fylgi sitt um rösk 11%. (meira…)

Selfoss-KS/Leiftur á morgun miðvikudaginn 3. sept kl. 18:00

Næsti leikur Selfoss í 1. deild er gegn KS/Leiftri, en það er sameinað lið Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Leikurinn er á Selfossvelli og byrjar kl 18.00 miðvikudaginn 3. september. Þetta er næst síðasti leikur Selfoss á heimavelli og um að gera fjölmenna og styðja við bakið á liðinu. (meira…)

Sláturfélag Suðurlands hækkar afurðverð til sauðfjárbænda um 16,5%

Sláturfélag Suðurlands hefur gefið út afurðaverð 2008 til bænda. Verðið hækkar um 16,5% frá verðskrá fyrirtækisins 2007 að því er fram kemur í frétt frá fyrirtækinu. Auk þess er sérstök 17,8% hækkun á R3 matsflokki dilkakjöt. Fyrirvari er gerður verðskráin verði endurskoðuð ef tilefni gefst til. (meira…)

Bruni, þjófnaður, árekstur, skemmdarverk og hraðakstur

Lögreglan hafði ýmsum verkum að sinna í vikunni sem leið þrátt fyrir að engin alvarleg mál hafi komið upp. Einn þjófnaður var kærður til lögreglu í vikunni og átti hann sér stað aðfaranótt 31. ágúst sl. Um er að ræða þjófnað á veski og misnotkun á greiðslukorti sem var í veskinu. Sá er þarna var […]

Eldur í íbúðarhúi við �?óristún

Á föstudagskvöld var lögregla kölluð að íbúðarhúsi við Þóristún á Selfossi. Íbúar hússins höfðu verið að heiman í rúma viku að heiman. Þegar þau komu inn í húsið blasti við þeim að eldur hefði logað inni í einu svefnherberginu en hann dáðið út af sjálfsdáðum. (meira…)

Kona fótbrotnaði við Brúarhlöð

Kona fótbrotnaði er hún var um borð í gúmmíbáti á Hvítá við Brúarhlöð. Hún var ásamt nokkrum í flúðasiglingu þegar báturinn kipptist snöggt til á flúðum með þeim afleiðingum að einn þátttakandana kastaðist á konuna sem fékk slæmt högg á fótinn. (meira…)

Draumatalan 535

Mikill hiti hefur verið í umræðunni um þetta blessaða keppnisleyfi ÍBV í efstu deild að ári, svo framarlega sem að við komumst upp – en það er nú nánast í höfn. Auðvitað eru svona kröfur nokkuð kræfar og sérstaklega að setja svona á félögin og ætla að taka refsinguna út á þeim þegar vellirnir eru […]

Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum

Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum og eru veiðiskipin nær öll á landleið. Eftir árangurslausan leitarleiðangur nokkurra skipa norður undir Jan Mayen um helgina og trega veiði annarra skipa austur af landinu á meðan, fóru skipin að halda heimleiðis í gær og nótt. Þrjú skip eru þó enn út í reginhafi í grennd við […]

Eygló ráðin hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands hefur ráðið Eygló Harðardóttur, markaðsfræðing, sem verkefnastjóra og ráðgjafa. Eygló hefur viðamikla reynslu af störfum í þjónustu, sjávarútvegi og landbúnaði og starfaði síðast sem framkvæmdastjóri Nínukots. Hún er í þann mund að ljúka við meistaragráðu í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðasamskipti og markaðsfræði frá Háskóla Íslands. Meistaraverkefni hennar fjallar um ferðaþjónustu bænda, markaðssetningu […]

Enn harðnar samkeppnin hjá Hermanni

Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, á fyrir höndum meiri samkeppni í liði Portsmouth því í gær gekk alsírski varnarmaðurinn Nadir Belhadj í raðir liðsins. Hann kemur til bikarmeistaranna frá franska liðinu Lens og er um lánsamning að ræða en Portsmouth hefur möguleika á að semja við leikmanninn til framtíðar eftir tímabilið. (meira…)

Tilraunahola á Flúðum lofar góðu

Borun 1500 metra djúprar tilraunaholu í landi Kópsvatns í Hrunamannahreppi er lokið. Holan er með bestu lághitaholum sem boraðar hafa verið. Holan er boruð fyrir Hitaveitu Flúða í framhaldi af því að Hrunamannahreppur fékk Íslenskar orkurannsóknir til að kortleggja jarðhita í sveitarfélaginu. Borunin gekk mjög vel og árangur er góður. Við fyrstu prófanir fengust um […]

Pólstjörnufangar grunaðir um árás

Líkamsárás átti sér stað í kennslustofu á Litla-Hrauni á fimmtudagsmorgun. Þrír fangar, sem sitja af sér dóm vegna Pólstjörnumálsins, eru grunaðir um að hafa ráðist að einum samfanga sínum og meðal annars sparkað ítrekað í hann liggjandi. Atvikið átti sér stað þegar kennarinn brá sér út úr kennslustofunni til að ljósrita námsefni. (meira…)

Vatnsátöppun ekki í umhverfismat

Framkvæmdir við vatnsátöppunarverksmiðju Icelandic Water Holding í Ölfusi þurfa ekki að fara í umhverfismat því umhverfisráðuneytið hefur nú ógilt fyrri úrskurð sinn þar að lútandi. Umhverfisráðuneytið úrskurðaði í maí í vor að vatnsátöppunarverksmiðjan þyrfti í umhverfismat. Icelandic Water Holding óskaði í júní eftir að ráðuneytið tæki málið upp að nýju þar sem Orkustofnun hefði sent […]

�?inghald hefst á morgun

Alþingi kemur saman á morgun, 2.september og standa þingfundir í tæpar tvær vikur. Tímasetningin er í samræmi við ný þingskaparlög sem tóku gildi um áramótin. Þingfundum var frestað aðfararnótt 30. maí síðastliðins, sama dag og jarðskjálftarnir gengu yfir Suðurland. Þónokkrum stórum málum var slegið á frest til þess þings sem hefst á morgun. Nota átti […]

Nýtt verðlagsár hefst í dag

Í dag, 1. september, hefst nýtt verðlagsár hjá mjólkurframleiðendum. Greiðslumark mjólkur á þessu nýja verðlagsári hefur verið ákveðið 119 milljónir lítra sem er aukning um 2 milljónir lítra frá nýliðnu verðlagsári. Aukningin nemur 1,0171% og virkar sem flöt aukning á alla greiðslumarkshafa. við upphaf verðlagsársins og munu Samtökin annast úthlutun fjármunanna. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.