Nýtt fiskveiðiár hófst á miðnætti

Nýtt fiskveiðiár hófst á miðnætti þannig að nú eiga allar útgerðir kvóta til veiða, til að byrja með að minnsta kosti. Þó nokkur dæmi voru um að að skip yrðu að hætta veiðum í sumar, þótt þau ættu eftir kvóta í ýmsum tegundum, því þorskkvótinn var upp urinn. Þorskur veiðist með flestum öðrum tegundum og […]

Ingibjörg slær Geir við

Samfylkingin nýtur orðið meira fylgis meðal almennings en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. 33 prósent svarenda sögðust myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði nú en 32 prósent sögðust greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt. Vinstri-græn myndu samkvæmt könnuninni fá 19 prósent atkvæða ef kosið yrði nú og Framsóknarflokkurinn tíu prósent. Aðeins fjögur prósent sögðust myndu kjósa Frjálslynda […]

Hallgrímur í þriðja sæti

Guðjón Ingi Kristjánsson úr GKG sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ sem fram fór á Hlíðavelli í Mosfellsbæ í dag. Ólafaía Þórunn Kristinsdóttir úr GR varð önnur og Eyjapeyinn Hallgrímur Júlíusson í þriðja sæti. (meira…)

Stórkostlegt kraftaverk að hún skuli vera á lífi

„Stórkostlegt kraftaverk er að hún skuli vera á lífi,“ segir Jörn Kvist, stjórnandi Sirkus Agora, en jafnvægisatriði fór úrskeiðis á sýningu hans á Akureyri með þeim afleiðingum að loftfimleikakona, Ludvika Berouskova, féll fimm metra niður úr stiga með höfuðið á undan. „Ég hélt fyrst að hún hefði hálsbrotnað og dáið. Þetta er mesta áfall sem […]

5. flokkur í undanúrslit

A og B-lið 5.flokks karla lék í úrslitakeppninni á Akureyri um helgina. A-liðið vann alla sína leiki og leikur því undanúrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn næstu helgi. A-liðið byrjaði að vinna Fjölni 3-2 þá Fjarðabyggð/Leikni 6-2 og endaði að sigra KA 4-1. B-liðið vann tvo leiki stórt en tapaði einum leik. (meira…)

Gleðilegt nýtt ár allir

Reyndar byrjar nýja fiskveiðiárið ekki fyrr en á miðnætti annað kvöld, en þar sem það er greinilega bræla á morgun hjá mér, þá skrifa ég þetta svona núna. Margir kvíða fyrir nýja fiskveiðiárinu, enda úthlutun veiðiheimilda í þorski í sögulegu lágmarki og ekki í nokkru samræmi við ástandið á miðunum. (meira…)

Sala á kindakjöti í júlí 21,3% meiri en á sama tíma í fyrra

Framleiðsla á kjöti í júlí var 1.557 tonn, nær óbreytt frá sama tíma í fyrra. Framleiðsla á nautakjöti jókst um 15,1% en framleiðsla á öðrum kjöttegundum dróst lítillega saman. Síðastliðna 12 mánuði hefur framleiðsla á kjöti aukist um 3,8% Sala á kjöti í júlí var með besta móti, 9,1% meiri en í sama mánuði í […]

Forstjórastaða Landsvirkjunar auglýst í dag

Stjórn Landsvirkjunar auglýsir eftir umsóknum um stöðu forstjóra fyrirtækisins í Fréttablaðinu í dag, en Friðrik Sophusson, núverandi forstjóri, fer brátt á eftirlaun. Umsækjandi skal meðal annars hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi, stjórnunar- og rekstrarreynslu og yfirgripsmikla þekkingu á sviði fjármála. (meira…)

Sr. �?lfar Guðmundsson kveður í dag

Séra Úlfar Guðmundsson, prestur í Eyrarbakkaprestakalli, lætur af störfum um mánaðamótin, en hann hefur þjónað prestakallinu í tæp 28 ár. Úlfar var prestur á Ólafsfirði áður en hann hóf störf á Eyrarbakka. Hann hefur skírt, fermt og gift marga ættliði og segir elstu fermingarbörnin sín, sem hann fermdi á Ólafsfirði verða fimmtug á þessu ári. […]

Stjarnan nálgast Selfoss eftir öruggan sigur

Stjarnan vann öruggan sigur á Fjarðabyggð, 3:0, á heimavelli sínum í Garðabæ í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Markalaust var í hálfleik en Stjörnumenn tóku til sinna ráða í síðari hálfleik. Þeim tókst með þessum sigri að nálgast Selfoss sem er í öðru sæti deildarinnar, nú munar aðeins tveimur stigum á Selfossi og […]

Hugsum stórt, horfum til framtiðar

Allt stefnir í að meistaraflokkur ÍBV leiki í efstu deild á næsta ári. Allt stuðningsfólk ÍBV fagnar þessu,því Eyjamenn eiga hvergi heima nema meðal þeirra bestu. Til hamingju Heimir þjálfari og allir í liðinu,til hamingju með glæsilegan árangur. (meira…)

Hjallakirkja áttræð Hátíðarmessa

Sunnudag næsta 31. ágúst kl. 14:00 höldum við hátíðlegt að Hjalla í Ölfusi 80 ára afmæli Hjallakirkju. Hjallakirkja er Ólafskirkja, kennd við Ólaf helga Noregskonung. Núverandi kirkja er byggð 1928.Arkitekt var Þorleifur Eyjólfsson frá Grímslæk. Yfirsmiður Kristinn Vigfússon, Eyrarbakka, síðar á Selfossi. (meira…)

Fallegasta hæna Íslands

Á landbúnaðarsýningunni sem haldin var á Hellu dagana 22. – 24. ágúst s.l. var valin fallegast hæna Íslands. Það er Ragnar Sigurjónsson, bóndi í Brandshúsum, Flóahreppi, sem er eigandi hænunnar en þau má sjá á myndinn. (meira…)

Víkingur �?lafsvík lagði Selfyssinga

Víkingur lagði Selfoss 4-3 á Ólafsvík í kvöld. Brynjar Víðisson skoraði sigurmarkið með skoti úr aukaspyrnu rétt fyrir framan miðju á 86.mínútu leiksins en staðan í leikhléi hafði verið 3-2 Selfyssingum í vil. Víkingur Ólafsvík 4 – 3 Selfoss 0-1 Viðar Örn Kjartansson (‘2) 1-1 Josip Marosevic (’14) 2-1 Josip Marosevic (’16) 2-2 Henning Eyþór […]

Arnarfellið gerir sér dælt við Básaskersbryggju

Um miðjan dag í dag, þegar Arnarfellið, eitt af skipum Samskipa, var að koma til Eyja, keyrði það á Básaskersbryggju og stórskemmdi. Verið var að snúa skipinu í höfninni, þegar það rakst á bryggjukantinn og eins og sést á myndinni er hér nokkurt tjón, pollinn kengboginn og kanturinn laskaður. Talsverður vindur var í Eyjum í […]

Afkoma Sparisjóðs Vestmannaeyja ásættanleg miðað við erfiðar aðstæður

Sparisjóður Vestmannaeyja opinberaði í dag sex mánaða uppgjör sjóðsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní. Heildarniðurstaða rekstrar SPV er tap upp á 29 milljónir eftir skatta. Þá voru eignir Sparisjóðsins í óskráðum félögum færð niður um 209 milljónir. Í fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum kemur fram að stjórn sjóðsins telji afkomu fyrstu sex mánuði ársins ásættanleg […]

Tafir á Herjólfi vegna veðurs

Vegna óveðursins tefst farþegaferjan Herjólfur. Skipið kom á réttum tíma til Þorlákshafnar í morgun en heimferðin hefur gengið öllu verr enda stífur mótvindur. Áætlað er að Herjólfur verði við bryggju í Vestmannaeyjum um 17.30. Ekki liggur fyrir hvort seinni ferð dagsins verði farin en athuga á með seinni ferðina klukkan 18.30. Þá átti skipið að […]

Íþróttir geta stundum verið grátbroslegar

Í tilefni þessa að Ólympíuleikunum er nýlokið, eru hér nokkur myndbrot úr íþróttum, þar sem margt fer öðruvísi en ætlað er og góð áform verða að martröð. Slíkar uppákomur eru í besta falli grásbroslegar, eða bara hlægilegar. (meira…)

Margt hægt að læra af Ísfirðingum

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir margt hægt að læra af Ísfirðingum í stjórnsýslu. Vestmannaeyingar hafa verið á Ísafirði og kynnt sér rekstur sveitarfélagsins. Þeir hafa rætt við sveitarstjórnarmenn og starfsfólk Ísafjaðrarbæjar. (meira…)

VSV í 8. sæti og Ísfélagið í því 10.

Vinnslustöðin er í áttunda sæti kvótahæstu útgerða landsins á komandi fiskveiðiári, miðað við þorskígildistonn, en var í sjöunda sæti á þessu kvótaári. Ísfélagið er í tíunda sæti en var í þrettánda sæti á þessu kvótaári. Fimm stærstu kvótahafarnir ráða yfir 31% af heildaraflaheimildum í þorskígildum mælt og tíu stærstu fyrirtækin eru með helming heildarkvótans. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.