�?rír leikir í fyrstu deild karla

Þrír leikir eru í fyrstu deild karla en nítjánda umferðin er í gangi þar. Selfoss sækir Víking Ólafsvík heim og Stjarnan mætir Fjarðabyggð en bæði þessi lið eru að berjast um sæti í Landsbankadeildinni að ári. Þá mætast Leiknir R. og KA í Breiðholtinu. 1. deild karla: 18:30 Leiknir R. – KA (Leiknisvöllur) 18:30 Víkingur […]

Silungur með merkilega sögu

Við hefðbundnar rannsóknir Veiðimálastofnunar á lax- og sjóbirtingsafla úr netaveiði í Þjórsá í júlí kom fram merkilegur fiskur. Í aflanum fannst fimm punda sjóbirtingshængur sem bar útvarpsmerki í kviðnum. Þegar betur var að gáð kom í ljós að hann hafði verið merktur sem gönguseiði í Kálfá í Gnúpverjahreppi þann 5. júní 2003 eða rúmum fimm […]

Gjaldþrotum fjölgar mikið

Gjaldþrotum á Suðurlandi hefur fjölgað verulega síðustu mánuði. Gjaldþrotaúrskurðir hjá Héraðsdómi Suðurlands hafa verið rúmlega helmingi fleiri það sem af er ári en allt síðasta ár. Í Dagskránni kemur fram að gjaldþrotaúrskurðir hjá héraðsdómnum hafa verið 34 á þessu ári, en voru 15 árið 2007. (meira…)

Fangelsinu Litla-Hrauni færð gjöf

Kristján Matthíasson frá fyrirtækinu K-Matt ehf. færði Fangelsinu Litla-Hrauni gjöf á dögunum en fyrirtækið sér m.a. um innflutning og selur vörur tengdar heilbrigðisgeiranum. Margrít Frímannsdóttir, forstöðumaður, ásamt heilbrigðisstarfsfólki, tók við gjöfinni úr hendi Kristjáns. Um er að ræða eftirtaldar vörur: (meira…)

Vatnsátöppunarverksmiðja ekki í umhverfismat

Umhverfisráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu, að vatnsátöppunarverksmiðja félagsins Icelandic Water Holding í Hlíðarenda í Ölfusi þurfi ekki að fara í umhverfismat. Ráðuneytið hafði áður úrskurðað að framkvæmdin þyrfti að sæta mati á umhverfisáhrifum en sá úrskurður hefur verið felldur úr gildi. (meira…)

Selfyssingar með tvenn gullverðlaun á Olympiuleikum!

Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson er aðstoðar handboltaþjálfari hjá Norska kvennalandsliðinu. Þórir er fæddur og uppalinn á Selfossi og lék handbolta með Selfyssingum á árum áður. Hann hefur starfað sem handboltaþjálfari í um tvo áratugi út í Noregi og er með virtustu þjálfurum þar í landi. Þetta er enn ein skrautfjöður í hatt Þóris, sem hefur nokkrum […]

100% árangur á heimavelli í sumar

ÍBV náði þeim glæsilega áfanga að vera með 100% árangur á heimavelli í sumar en á Hásteinsvellinum tapaði ÍBV ekki stigi. Síðasta púslinu var komið fyrir í kvöld þegar Eyjamenn tóku á móti Haukum en það tók ÍBV ekki nema tólf mínútur að gera út um leikinn en þá var staðan orðin 3:0 ÍBV í […]

Hermann fyrirliði Íslands

Hermann Hreiðarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru báðir í landsliðshópi Íslands sem var opinberaður í dag. Alls eru 22 leikmenn í hópnum en íslenska landsliðið mætir Norðmönnum ytra 6. september og Skotum á Laugardalsvellinum fjórum dögum síðar. Á sama tíma var tilkynnt að Hermann tekur við fyrirliðabandinum af Eiði Smára Guðjohnsen, sem hefur borið bandið […]

Eyjamenn taka á móti Haukum í kvöld

ÍBV tekur á móti Haukum í kvöld á Hásteinsvellinum í síðasta heimaleik ÍBV í sumar. Þó eru enn eftir fjórar umferðir í fyrst deild en síðustu þrír leikir ÍBV fara fram á útivelli. Ekker nema sigur í kvöld kemur til greina eftir tapleik gegn KA fyrir norðan í síðustu umferð en með sigri myndu Eyjamenn […]

Höfuðdagslægðin

Öll reiknilíkön gera nú ráð fyrir vöxt lægðar suðvestur í höfum sem síðan muni koma hér alveg upp á suðvestanverðu landinu. Lægð þessi, Höfuðdagslægðina eins og kýs að kalla hana (29. ágúst á morgun), gæti orðið um og undir 975 hPa og þá rétt við Reykjanes. Allar líkur eru einnig á því að hún verði […]

Betur fór en á horfðist

Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í kjallara einbýlishúss við Höfðaveg. Svartan reyk lagði frá glugga í kjallaranum þegar athugulir vegfarendur veittu því athygli og hringdu á Neyðarlínuna. Tilkynning til slökkviliðsins barst klukkan 10.31 og örskömmu síðar voru slökkviliðsmenn komnir á staðinn. Þá höfðu vegfarendur hins vegar komist inn í húsið og […]

Eden gjaldþrota

Eden EHF., sem rekið hefur samnefndan veitinga- og ferðamannastað í Hveragerði, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. (meira…)

Víkingur �?. – Selfoss föstudaginn 29. ágúst kl 18.30

Selfyssingar unnu góðan 4-1 sigur á Njarðvíkingum í síðustu umferð og eru því með fimm stiga forskot á Stjörnuna, sem er í 3. sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Stjarnan gerði 0-0 jafntefli við Víking í Ólafsvík, en Víkingar eru einmitt næstu mótherjar okkar nú. Sá leikur fer fram í Ólafsvík föstudaginn 29. ágúst kl […]

Framkvæmdir hafnar í Bakkafjöru

Stórvirkar vinnuvélar og mannafli er kominn í Bakkafjöru þar sem hafnar eru framkvæmdir við Landeyjahöfn. Áætlað er að verkinu verði lokið í júlí 2010. Samningur milli Vegagerðarinnar, Siglingastofnunar og Suðurverks hf. um gerð Landeyjahafnar var undirritaður fyrr í mánuðinum. Tilboð Suðurverks hljóðaði upp á um 1,9 milljarð króna sem er 60% af kostnaðaráætlun. (meira…)

Nýtt gólf á Básaskers­bryggju

Að undanförnu hefur verið unnið að endurbótum á Básaskersbryggju. Í fyrra voru rekin niður stálþil, en á þessu ári hefur verið unnið við sjálft bryggjugólfið, lagnir og yfirborð, sem verður úr steinsteypu. Verktaki að síðari verkhlut­anum var fyrirtækið 2Þ. (meira…)

Saga Búnaðarsambands Suðurlands komin út

Ný bók um 100 ára sögu Búnaðarsambands Suðurlands er komin út. Stjórn BSSL ákvað árið 2002 að ráðist skyldi í að skrá 100 ára sögu félagsins og fékk Pál Lýðsson, sagnfræðing og bónda í Sandvík, til verksins. Páll lést í vor áður en bókin var tilbúin og tók sonur hans Lýður, þá við verkinu. (meira…)

Réttardagarnir haustið 2008

Listi yfir fjár- og stóðréttir fyrir haustið 2008 hefur verið gefinn út og eru fyrstu réttirnar að því er virðist fjárrétt, í Mýrararétt í Bárðardal, S.-Þingeyjarsýslu, strax á laugardag um næstu helgi en listinn er hér eftirfarandi. Það er Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands sem hefur tekið listann saman. (meira…)

Hætta við sólarkísilverksmiðju í �?orlákshöfn

Norska fyrirtækið REC Group er hætt við að reisa sólarkísilverksmiðju í Þorlákshöfn, eins og til stóð, og ætlar í stað þess að reisa hana í Kanada. Rætt hafði verið um að fyrirtækið fengi rösklega hundrað hektara lóð í Þorlákshöfn og starfsmenn yrðu um 300. (meira…)

39 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur

Síðustu viku og um helgina voru 39 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur. Öflugt umferðareftirlit er sýnilega að skila sér á Suðurlandsvegi. Af þessum 39 voru 26 þeirra á ferð um Suðurlandsveg í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. (meira…)

Dældaði húdd við Draugabarinn

Héraðsdómur Suðurlands hefur sakfellt karlmann fyrir að dælda bifreið fyrir utan Draugabarinn á Stokkseyri þann 15. júlí í fyrra. Maðurinn var ákærður fyrir að skemma bifreiðina með því að hoppa ofan á húddi hennar með þeim afleiðingum að það dældaðist. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.