Fíkniefni gerð upptæk við eftirlit með Herjólfi

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og ljóst að mannlífið hér í Eyjum er að komast í sitt hefðbundna horf eftir Þjóðhátíð. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en við venjubundið eftirlit með Herjólfi hafði lögreglan afskipti af einum farþeganum og við leit á honum fannst lítisræði af kannabisefnum. Viðkomandi viðurkenndi […]

Vonbrigði með Gunnar

Íslenski landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur að mati danska vefmiðilsins onside.dk ekki staðið sig sem skyldi í fyrstu umferðum dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Hann er í hópi þeirra fimm leikmanna sem taldir eru hafa valdið mestum vonbrigðum það sem af er keppnistímabilinu. Gunnar Heiðar var engu að síður í landsliði Íslands sem mætti Aserbaídsjan í […]

Gjöld leikskóla hækka

Tillaga um hækkun gjalda í leikskólum Vestmannaeyjabæjar var samþykkt á fundi fræðslu- og menningarráðs í síðustu viku. Þannig hækkar leikskólagjöld um 4,5% og fæðisgjald hækkar um 6,5 ef miðað er við fullt fæði. Hækkanirnar eru í samræmi við launa- og neysluvísitölu samkvæmt reglum um endurskoðun leikskólagjalda. (meira…)

FOSS og STÁ sameinast

Gengið verður formlega frá sameiningu Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi (FOSS) og Starfsmannafélags sveitarfélagsins Árborgar (STÁ) á sameiginlegum fundi stjórna félaganna 18. ágúst nk. kl. 17 á skrifstofu FOSS, Austurvegi 38, Selfossi. (meira…)

5. flokkur karla í úrslit Íslandsmótsins í A,B,C og D liðum

5.flokkur karla náði þeim stórkostlega árangri að komast í úrslitakeppni Íslandsmótsins í flokki A, B, C og D liða. ÍBV sendi 5 lið til Íslandsmótsins það eitt og sér er stórmerkilegur árangur fyrir ekki stærra bæjarfélag. A og B liðin spila í úrslitakeppninni næstu helgi og fer hún fram á Akureyri. C og D liðin […]

Hermann víkur fyrir Traore

Eftir því sem kemur fram í The Sun í dag verður Armand Traore í byrjunarliði Portsmouth gegn Manchester United í kvöld á kostnað Hermanns Hreiðarssonar. Traore er átján ára bakvörður sem var í síðustu viku lánaður til Portsmouth frá Arsenal. Hann kom til Arsenal frá Mónakó fyrir tveimur árum síðan en hefur aðeins náð að […]

Cirkus Agora á leiðinni til Íslands

Fjölleikahúsið Cirkus Agora kemur til Íslands með Norrænu 26. ágúst nk með 150 metra langa vagnalest og munu þeir ferðast um landið og setja upp sýningar á 10 stöðum frá 29. ágúst til 16. september næstkomandi. Sirkus Agora er að fagna 20 ára starfsafmæli sínu þetta árið og kusu forráðamenn Agora að koma til Íslands […]

Abramovich stoppaði við Geysi

Roman Abramovich, rússneski auðkýfingurinn og eigandi Chelsea, dvelur hér á landi þessa dagana með börnunum sínum. Abramovich skellti sér í jeppaferð og stoppaði í sjoppunni við Geysi. (meira…)

Hallgímur Íslandsmeistari í höggleik

Hallgrímur Júlíusson varð í dag Íslandsmeistari í golfi en Íslandsmótið í höggleik fór fram á Urriðavelli um helgina. Hallgrímur, sem er 14 ára keppti í flokki 13-14 ára en hann vann einmitt sama flokk fyrir ári síðan, þá á yngra ári. Eyjapeyinn knái vann með sex högga mun á kylfingana tvo sem enduðu í öðru […]

Fjölmargir á landbúnaðarsýningunni á Hellu

Milli átta og tíu þúsund manns voru á landbúnaðarsýningunni á Hellu í gær þegar mest var, að mati björgunarsveitarmanna. Sýningin er haldin á Hellu í tilefni af 100 ára afmælis Búnaðarsambands Suðurlands. Sýningunni lýkur síðdegis í dag og margt að skoða. (meira…)

Færeyskur listmálari í Gallerí Gónhól

Laugardaginn 16. ágúst s.l. var opnuð sýning á verkum færeyska listmálarans Hilmars Højgaards, í Gallerí Gónhól. Sýningin verður opin laugardaga og sunnudaga, frá kl. 13 – 17. Kaffiveitingar og markaður á staðnum. (meira…)

KFS endaði tímabilið með stæl

Það er óhætt að segja að KFS hafi endaði tímabilið með stæl en í gær tók liðið á móti nágrönnum sínum frá Rangárþingi eystra í KFR. Tímabilið hefur verið slakt hjá KFS, liðið Eyjamenn höfðu sett stefnuna á úrslitakeppni og sæti í 2. deild en áttu í raun aldrei inni í myndinni. Lokatölur leiksins í […]

Toppþjónusta

Það er föstudagur, stákarnir okkar sigruðu Spánverja og Ísland leikur um gullið á sunnudaginn. Það er ekki hægt annað en vera kátur. Fátt þjappar þjóðinni meira saman en árangur á íþróttasviðinu. Og í tilefni dagsins ætlum við að gefa karlrembunni lausan tauminn. (meira…)

Selfoss vann Njarðvík – ÍBV og Stjarnan töpuðu stigum

Fjórir leikir fóru fram í átjándu umferðinni í fyrstu deild karla í gærkvöldi. KA sigraði ÍBV óvænt fyrir Norðan, Selfoss sigraði Njarðvík og er því fimm stigum á undan Stjörnunni sem gerði markalaust við Víking Ólafsvík. Þá gerðu Víkingur og Leiknir úr Reykjavík 1-1 jafntefli. (meira…)

Lundapysja í 108 Reykjavík

Eyjamaðurinn Hlöðver Guðnason var á leiðinni heim úr vinnu á föstu­daginn þegar hann rakst á þessa lundapysju í Klettagörðum. Þar var hún að spóka sig á miðri götu og auðvelt fyrir lundakall og fyrrverandi pysjusafnara að ná henni. Hún var mjög spræk, lítill dúnn var á henni og var hún nokkuð vel gerð. Sennilega villst […]

Tap fyrir norðan

Topplið ÍBV í 1. deild karla tapaði í kvöld fyrir KA á Akureyri, 2-1, er átjánda umferð deildarinnar kláraðist með fjórum leikjum. Elmar Dan Sigþórsson kom KA yfir með marki undir lok fyrri hálfleiks en Ingi Rafn Ingibergsson jafnaði metin á 76. mínútu. Steinn Gunnarsson skoraði sigurmark KA þegar tvær mínútur voru til leiksloka. (meira…)

Eyjamenn sækja KA heim í kvöld

Í kvöld sækir topplið ÍBV í 1. deild KA heim til Akureyrar en leikur liðanna hefst klukkan 18.30 á Akureyrarvelli. Fyrri leik liðanna lauk með 1:0 sigri ÍBV á Hásteinsvellinum en Atli Heimisson skoraði sigurmarkið. Atli kemur einmitt aftur inn í leikmannahóp ÍBV eftir leikbann í síðasta leik. Með sigri færist ÍBV enn nær sæti […]

Suðureyjalundi beit Ramsey

Eins og fram hefur komið áður hér á vefnum lenti breski kokkurinn Gordon Ramsey í því að verða bitinn af lunda í ferð sinni til Íslands. Ferðin til Vestmannaeyja var víst mikil ævintýraferð en nú er komið í ljós að Ramsey var bitinn af Suðureyjalunda enda eingöngu geðill kvikindi sem halda til í eynni. Hægt […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.