Sjóbirtingur í �?jórsá fannst fimm árum eftir merkingu

Útvarpsmerktur sjóbirtingur endurheimtist í sumar, fimm árum eftir merkingu, við hefðbundnar rannsóknir Veiðimálastofnunar á lax- og sjóbirtingsafla úr netaveiði í Þjórsá. Í ljós kom að hann hafði verið merktur sem gönguseiði í Kálfá í Gnúpverjahreppi sumarið 2003, en merkingin hafði verið framkvæmd til að fylgjast með sjávargöngutíma laxa og sjóbirtinga. (meira…)
Stórhýsi undir �?ekkingarsetur

Áætlanir eru uppi um að byggja 2400 fm hús undir Þekkingarsetur Vestmannaeyja en mjög er farið að þrengja að starfseminni að Strandvegi 50, Hvíta húsinu. Þetta byggist fyrst og fremst á þarfagreiningu Ingibjargar Þórhallsdóttur. Stefnt er að byggingu á 2400 m2 húsi í miðbæ Vestmannaeyja. Þar er hugmyndin að verði bæði Þekkingarsetrið og Sæheimar. (meira…)
Vantar leikskólapláss
„Staðan á leikskólum er þannig að hugsanlega náum við ekki að taka öll 18 mánaða börn inn á leikskóla en við leysum, það með því að fjölga daggæsluúræðum og þá bætast við allt að 16 daggæslupláss, sagði Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs þegar hann var spurður út í stöðuna á leikskólaplássum í Vestmannaeyjum. (meira…)
ÍBV komst ekki í úrslitakeppnina

Kvennalið ÍBV gerði í kvöld 1:1 jafntefli gegn Þrótti í sínum síðasta leik. Þórhildur Ólafsdóttir jafnaði metin eftir að Þróttarar höfðu komist yfir strax á 3. mínútu en leikurinn fór fram á Valbjarnavelli í Laugardal. Þar með er endanlega ljóst að ÍBV kemst ekki í úrslitakeppni 1. deildar og á þar með ekki möguleika á […]
Danskir hafnarstjórnarmenn kynntu sér aðferðir Siglingastofnunar við gerð Land-Eyjahafnar

Dagana 18. og 19. ágúst voru í heimsókn hjá Siglingastofnunar, hafnastjórn Hvide Sande Havn á Jótlandi. Komu þeir m.a. til Vestmannaeyja. Tilgangur fararinnar var að fræðast um aðferðir stofnunarinnar við rannsóknir á efnisburði við fyrirhugaða ferjuhöfn við Bakkafjöru. (meira…)
Mesta tjón frá upphafi

Tjón í jarðskjálftunum á Suðurlandi í maí síðastliðnum er mesta eignatjón sem hefur orðið vegna jarðskjálfta hérlendis. Sálræn eftirköst eru ennfremur vanmetin að mati Ragnars Sigbjörnssonar hjá Jarðskjálftamiðstöðinni. Stór rannsókn er að fara í gang á sálrænum eftirköstum. (meira…)
Enn að berast tilkynningar vegna �?jóðhátíðar

Enn berast lögreglunni tilkynningar vegna Þjóðhátíðar en fjögur þjófnaðarmál voru tilkynntir til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í vikunni og tengdust tveir þeirra Þjóðhátíð. Í öðru tilvikinu var farsíma stolið en fatnaði sem hékk til þerris á snúru í hinu tilvikinu. Annars var vikan róleg hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en lesa má dagbókarfærslu yfirvaldsins hér að neðan. […]
Styttist í ákvörðun um byggingu nýs Herjólfs

Vika er nú síðan tilboð voru opnuð í smíði á nýju Vestmannaeyja-ferjunni, sem sigla mun í Land-Eyjahöfn. Sem kunnugt er bárust tvö tilboð í smíðina, frá þýsku skipasmíðastöðinni Fassmer og norsku skipasmíðastöðinni Simek, þeirri hinni sömu og byggði núverandi Herjólf. (meira…)
�?tla að spá fyrir um sjóveiki

Siglingastofnun, Landspítali og Læknadeild Háskóla Íslands hafa í sumar staðið fyrir rannsókn á sjóveiki um borð í farþegaferjunni Herjólfi. Vonast er til að í framtíðinni verði hægt að gefa út sjóveikispá til að létta undir með þeim sem þjást af þessum vágesti. Hannes Petersen, yfirlæknir á háls-, nef- og eyrnadeild Landspítalans, er umsjónarmaður rannsóknarinnar. (meira…)
Jarðvegsframkvæmdir að hefjast vegna knattspyrnuhúss

Jarðvegsframkvæmdir vegna knattspyrnuhússins eru að hefjast en í dag var byrjað girða svæðið af. Áætlað er að verkinu verði lokið fyrir 20. september samkvæmt samningi við Vestmannaeyjabæ en það er Íslenska Gámafélagið sem vinnur verkið. Hafþór Snorrason, verkstjóri segir að farið verði hægt í sakirnar til að byrja með en áætlað sé að sprengja þurfi […]
Kaup lands samþykkt
Vegagerðin og Siglingastofnun virðast hafa náð samkomulagi við landeigendur á Bakka um kaup á landi undir Landeyjarhöfn og veg að henni fyrir um 20 milljónir króna. Samningaviðræður hafa staðið frá því í október í fyrra en gengið erfiðlega. (meira…)
Gæsaveiðitímabilið að hefjast
Veiðitímabil á grágæs og heiðargæs hefst miðvikudaginn 20. ágúst. Eftir sem áður verður blesgæs alfriðuð og í Skaftafellssýslum má ekki byrja að veiða helsingja fyrr en 25. september. Annarsstaðar á landinu er leyfilegt að veiða helsingja frá 1. september. (meira…)
Brúarhlaup Selfoss verður laugardaginn 6. september.
Allir hlauparar og hjólreiðamenn verða ræstir á Ölfusárbrú. Hjólreiðar hefjast kl. 11:00, hálfmaraþon kl. 11:30 og aðrar vegalengdir kl. 12:00. Hlaupnir verða 2,5 km, 5 km, 10 km og hálfmaraþon, allar vegalengdir eru með tímatöku. Einnig er keppt í 5 km og 10 km hjólreiðum. Keppni í 5 km hjólreiðum fer fram á malbiki en […]
Breytt gjaldskrá fyrir skólavistun í Sveitarfélaginu Árborg

Þann 10 júlí sl. samþykkti bæjarráð breytingu á gjaldskrá skólavistunar í Árborg sem tók gildi frá og með 1. ágúst 2008. Breytingin er gerð samkvæmt gildandi reglum um skólavistun sem samþykktar voru fyrr á árinu. Í þeim er gert ráð fyrir að lágmarksgjald verði tekið við innritun í skólavist og er það miðað við 20 […]
Króuðu þjófana af
Nokkrir sumarbústaðaeigendur við Bjarkarborgir í Grímsnesi króuðu af þrjú ungmenni á bíl á sumarbústaðasvæðinu og kölluðu til lögreglu sem handtók ungmennin. Í ljós kom að brotist hafði verið inn í sjö sumarbústaði á svæðinu og þaðan stolið hljómtækjum, áfengi og öðru smálegu. (meira…)
Sex í fimm manna biluðum bíl á palli
Lögreglan á Selfossi fékk í síðustu viku tilkynningu um dráttarbíl, sem væri með jeppa á palli á leið frá Hvölsvelli í vesturátt og að í jeppanum væri fólk. Dráttarbíllinn var stöðvaður austan við Þjórsá en hann hafði sótt bilaðan jeppann og var á leið með hann til Reykjavíkur. (meira…)
Er búið að jarðsyngja síðasta lundann?

En það mætti halda það, miðað við umfjöllunina um lundann á eyjamiðlunum. Ég er nú búinn að þræða fjöllin hérna á Heimaey síðustu 30 árin og verð að segja alveg eins og er, að þó að ég vissulega hafi áhyggjur af því að nýliðun á lunda geti brugðist í haust, þá ætla ég ekki að […]
Flestir gerðu ekki meira en að ná í soðið

Lundaveiðitímabilinu í Vestmannaeyjum lauk 10. ágúst sl. og er ljóst að veiðin er ekki nema brot af því sem gerist í venjulegu árferði. Í sumum tilfellum er aðeins um lítið brot að ræða. Eins virðast mikil afföll í pysjunni þrátt fyrir að í byrjun tímabils hafi útlitið verið gott. Í ljósi þessa var ákveðið að […]
20 – 30 þúsund manns á �?jóðhátíð 2010?

Um síðustu helgi var haldin stærsta þjóðhátíð frá upphafi og hefur heyrst að á hátíðinni hafi verið 13.000 manns með heimafólki. Varla hafa gestir verið svo margir, þar sem flutningsgetan var varla næg til að skila þeim fjölda inn í dalinn. En þrátt fyrir það var þessi hátíð mun stærri en venjulega og fannst verulega […]
Séra Kristján íhugar að sækja um í Mosfellsprestakalli

Orðrómur þess efnis að sr. Kristján Björnsson hafi fengið nýja stöðu innan kirkjunnar og sé tekinn við Mosfellsprestakalli hefur gengið um bæinn undanfarið. Kristján sagði í samtali við Vaktina það ekki alveg sannleikanum samkvæmt. “Staða sóknarprests í Mosfellsprestakalli er laus og ég hef velt því fyrir mér að sækja um. Ég er hins vegar ekki […]