Opnar Volcano Café í Drífanda

Nú er unnið hörðum höndum að endurbótum á húsnæði þar sem Drífandi bar var áður til húsa á horni Strandvegar og Bárustígs. Björgvin Þór Rúnarsson hefur tekið húsnæðið á leigu og ætlar að reka þar kaffihúsið Volcano Café. Staðurinn verður mun stærri en Drífandi var, nánast öll jarðhæðin verður tekin undir hinn nýja stað og […]

Taka á móti Víkingum í dag

ÍBV tekur á móti Víkingi frá Reykjavík í dag á Hásteinsvellinum en leikur liðanna hefst klukkan 14.00. Eyjamenn vilja sjálfsagt næla sér í þrjú stig enda er hlaupin nokkur spenna í toppslaginn eftir leiki gærkvöldsins þar sem Stjarnan tók Selfoss hreinlega í kennslustund og sigraði 6-1 hvorki meira né minna. ÍBV er sem fyrr á […]

Gestahús úr Keikókvínni

Keikókvíin hefur verið sem þyrnir í augum margra þar sem hún liggur undir skemmdum í Kletts­víkinni eða alltént það sem eftir er af kvínni. Líklega var síðasti nyt­samlegi hlutur kvíarinnar fjar­lægður nú á miðvikudag þegar hópur manna flutti hús Keikó kvíarinnar í land en húsið mun fá algjörlega nýtt hlutverk á næstunni. (meira…)

Til að losa fólk úr spennu

Það getur oft verið þrúgandi, þegar stressið ætlar mann lifandi að drepa. Hvernig hægt er að vinna sig út úr því er misjafnt hjá fólki. Og kynin nota endilega ekki sömu aðferðina til þess, enda áhugasviðin oft misjöfn. Hér eru til dæmis nokkrar lausnir sem hæfa sitthvoru kyninu. (meira…)

Erum að vinna við ljósleiðarann

Það hefur verið nóg að gera hjá manni undanfarið og ég verið að vinna fram eftir svo að lítið er um blogg. En ég er enn með kafarbátinn Adda á Gjábakka VE og er verið að grafa niður í botninn ljósleiðarann sem verið er að leggja til Grænlands. (meira…)

Skrifað undir í fjörunni í blíðviðri

Skrifað var í dag undir samning við Suðurverk hf. um gerð Landeyjahafnar og Bakkafjöruvegar. Höfnin á að þjóna nýju Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi sem smíðuð verður samhliða hafnargerðinni. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið síðla árs 2010. Kristján L. Möller samgönguráðherra, fulltrúar verkkaupa sem eru Siglingastofnun Íslands og Vegagerðin, og fulltrúar verkkaupa, skrifuðu undir verksamninginn […]

�?fðu með þyrlu Landhelgisgæslunnar

Í gærkvöldi var héldu Björgunarfélag Vestmannaeyja og Landhelgisgæslan sameiginlega æfingu við Vestmannaeyjar. TF-EIR, þyrla gæslunnar tók þátt í æfingunni ásamt áhöfn og auk þess félagar í Björgunarfélaginu og björgunarbáturinn Þór var notaður á æfingunni. Æfð voru viðbrögð við björgun úr sjó en þyrlan hífði menn, bæði úr Þór og úr sjó. Hægt er að sjá […]

Garner telur að ÍBV og Selfoss fari upp

Á vefnum Fótbolti.net er reglulega haft samband við leikmenn í neðri deildunum til að kanna stöðu liða þar. Fyrr í sumar var púlsinn tekinn á KFS en í dag er birt viðtal við fyrirliða ÍBV, Matt Garner. Hann segir m.a. að hann hafi trú á því að ÍBV og Selfoss fari upp í úrvalsdeild en […]

�?rjú tilboð bárust í nýja ferju

Þrjú tilboð bárust í nýja Bakkafjöruferju en tilboð í smíði ferjunnar voru opnuð hjá Ríkiskaupum í dag. Tvær skipasmíðastöðvar gerðu tilboð í verkið, þýska skipasmíðastöðin Fassmer var með tvö tilboð og norska skipasmíðastöðin Simek skilaði inn einu frávikstilboði. Norska stöðin var á sínum tíma inni í tilboði Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar sem var að lokum hafnað. […]

Skrifað undir í Bakkafjöru í dag

Í dag, klukkan 14 verður skrifað undir samning milli Siglingastofnunar, Vegagerðarinnar og Suðurverks en Suðurverk mun sjá um jarðvegsvinnu við fyrirhugaða ferjuhöfn í Bakkafjöru. Athöfnin fer fram í fjörunni en Suðurverk er þegar farið að undirbúa vinnu sem hefst á næstu dögum en byrjað verður á námuvegi og hefst grjótnám á næstu vikum. (meira…)

Tilboð í nýjan Herjólf opnuð í dag

Í dag, fimmtudag klukkan 11.00 verða opnuð tilboð í nýjan Herjólf.Þetta kemur fram á vef Ríkis­kaupa sem fyrir hönd Sigl­inga­stofnunar óskuðu eftir tilboðum í smíði nýrrar ferju til fólks-, bíla- og vöruflutninga til og frá Vestmannaeyjum og Landeyjahafnar. Ekki kemur fram hvað marg­ir buðu í smíðina en stóra spurn­ingin er, hvenær verður nýtt skip tilbúið. […]

Slökkvi­tækja­þjónustan í Vélasalinn

Grímur Guðnason hefur keypt Vélasalinn við Vesturveg af Vestmannaeyjabæ og ætlar að flytja starfsemi Slökkvi­tækja­þjónustunnar þangað. „Við ætlum að flytja starf­semina í Vélasalinn seint í haust eða í byrjun vetrar. Það þarf að gera talsverðar endurbætur og breytingar á húsnæðinu, hólfa niður o.s.frv. Húsnæðið hentar mjög vel undir starfsemina, allt á einni hæð og góð […]

Unnu síðasta heimaleikinn

Kvennalið ÍBV lagði FH að velli í kvöld á Hásteinsvellinum en þetta var jafnframt síðasti heimaleikur liðsins í sumar. Lokatölur urðu 4:1 en ÍBV komst í 4:0 áður en gestirnir minnkuðu muninn. ÍBV er sem stendur í þriðja sæti A-riðils, stigi á eftir GRV en tvö efstu liðin komast í úrslitakeppnina. GRV á hins vegar […]

Á toppi Heimakletts

Egill Egilsson skrapp á Heimaklett í gærkvöldi, ásamt eiginkonu, mágkonu og svila sínum. Þar nutu þau veðurblíðunnar og útsýnisins í góða stund. Og að sjálfsögðu hafði Egill myndavélina með í för og skaut í allar áttir. (meira…)

Slæmt ástand lundans í Bjarnarey

Pétur Steingrímsson og Ómar Stefánsson, lundaveiðimenn í Bjarnarey fóru í skoðunarferð út í eyna á dögunum en tilgangurinn var að athuga með lundavarpið. Óhætt er að segja að þeir félagar hafi orðið fyrir vonbrigðum enda lítið af pysju og lítið af ungfugli. Á einum staðnum voru allar holur fullar af pattaralegum pysjum um miðjan júlí […]

Um gabb var að ræða

Útkall björgunarsveita í Víkurfjöru við Vík í Mýrdal hefur verið afturkallað. Í tilkynningu segir að um gabb hafi verið að ræða. Björgunarsveitarmenn í Víkverja í Vík voru kallaðir út auk lögreglu og þá var björgunarbáturinn Þór í Vestmannaeyjum kallaður út. (meira…)

KNH ef. með lægsta tilboðið í Suðurstrandarveg

Alls bárust 13 tilboð í Suðurstrandarveg kaflann milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar en tilboð voru opnuð í dag 12. ágúst að viðstöddum samgönguráðherra og vegamálastjóra. KNH efh, Ísafirði, átti lægsta tilboðið og hljóðaði það upp á rétt ríflega 697 milljónir króna sem er 73,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Öll tilboðin utan eitt voru undir áætluðum kostnaði […]

Leitað að manni í Víkurfjöru

Björgunarsveitin í Vík í Mýrdal leitar nú manns sem talið var að væri í sjónum við Víkurfjöru. Björgunarbáturinn Þór í Vestmannaeyjum var kallaður út og er á leið á vettvang. Útkallið kom klukkan 15:31 og var Þór lagður af stað átta mínútum síðar. (meira…)

Sveitarfélög tefja vegabætur

Framkvæmdir við tvöföldun Suðurlandsvegar hefjast á næsta ári. Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að ástæðu þess að ekki hafi verið ákveðið að ráðast fyrst í vegabætur milli Hveragerðis og Selfoss, þar sem flest slysin verða megi rekja til þess að sveitarstjórnir á svæðinu hafi ekki lokið sinni skipulagsvinnu. Undirbúningur að tvöföldun vegarkaflans sé þó í […]

Hermann og Gunnar Heiðar á sínum stað

Eyjamennirnir Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Esbjerg, eru báðir í leikmannahópi íslenska landsliðsins í knattspyrnu, sem mætir Azerbaijan í vináttulandsleik á Laugardalsvelli miðvikudaginn 20. ágúst. Alls voru 20 leikmenn valdir í verkefnið en leikmannalistann má sjá hér að neðan. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.