Eyjamenn fara austur í dag

Topplið ÍBV mætir í dag liði Fjarðarbyggðar en leikurinn fer fram á knattspyrnuvellinum á Eskifirði. Gengi austfirðinga á heimavelli hefur verið þeirra akkilesarhæll, liðið hefur aðeins unnið einn heimaleik af sjö í sumar, gert fimm jafntefli og tapað einum leik. Liðinu hefur gengið ágætlega í síðustu fimm leikjum, gert þrjú jafntefli og unnið tvo. ÍBV […]
Í ökkla eða eyra hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum

Það er ekki hægt að segja að það hafi verið mikill erill hjá lögreglu þessa fyrstu viku eftir Þjóðhátíð, enda hefð fyrir því hér í bæ að fólk taki sér sumarfrí í ágúst. Lögreglan hefur þó haft nóg að gera við að svara fyrirspurnum gesta Þjóðhátíðar sem hringt hafa á lögreglustöðina til að kanna með […]
GV upp í 1. deild

Sveit Golfklúbbs Vestmannaeyja vann sér um helgina sæti í 1. deild í sveitakeppni í golfi að ári en GV lék í 2. deild um helgina. GV var búið að tryggja sér sæti í efstu deild þegar kom að úrslitaleiknum gegn Golfklúbbi Akureyrar en mótið var einmitt haldið á golfvellinum á Akureyri. Heimamenn höfðu betur með […]
Flugtök einungis bönnuð milli kl. 23:00 og 7:00
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi 4. september s.l. að breyta reglum um takmörkun á flugumferð á Selfossflugvelli þannig að einungis flugtök verði bönnuð milli 23:00 og 7:00 og fól bæjarritara að láta auglýsa breytinguna 1. gr. samþykktarinnar orðist því svo: Næturtakmarkanir: Á milli 23:00 og 07:00 eru flugtök bönnuð. Heimilt er að víkja frá þessu […]
Tríkót spilaði til hádegis á mánudeginum í VKB tjaldinu

Eyjahljómsveituin Tríkót lék á Tjarnarsviðinu síðustu klukkutímana á síðustu Þjóðhátíð. Kl. 6 að morgni mánudagsins, fannst Þjóðhátíðarnefndinni komið nóg og óskuðu eftir því að hljómsveitin hætti að spila. En Tríkótarar voru sjálfir ekki búnir að fá nóg. Þeir brugðu sér í tjald Vina Ketils bónda og héldu áfram spilamennsku og fjöri fram undir hádegi. Hér […]
�?trúleg endurkoma Selfyssinga á Akureyrarvelli
EYJAMENN og Selfyssingar eru áfram í efstu sætum 1. deildar karla í knattspyrnu en 15. umferð fór fram í gærkvöld. ÍBV vann 3:1-sigur á Víkingi Ó. eftir að hafa lent undir og Selfoss vann 2:3-sigur á Þór eftir að hafa lent 2:0 undir. Njarðvík vann 1:0-sigur á Víkingi R. líkt og Fjarðabyggð gerði gegn KS/Leiftri […]
�?g hef heyrt fréttir af einhverjum pysjudauða frá sumum veiðifélögunum

Það er mjög undarlegt að lesa stöðugar frásagnir í fjölmiðlunum um mikinn pysjudauða og hrun í lundastofnum, og ég velti því fyrir mér, hvort að hér sé í gangi einhvers konar gúrkutíð, því mikið af þessum fréttum virkar á mig eins og einhverskonar æsifréttamennska. (meira…)
1. deild úrslit og markaskorarar í kvöld
Heil umferð fór fram í 1. deild karla í kvöld þar sem topplið ÍBV lagði Víking frá Ólafsvík og er ÍBV með 37 stig. Selfoss sem er í öðru sæti deildarinnar kom til baka eftir að hafa lent 2-0 undir gegn Þór á Akureyri og vann góðan 2-3 sigur og er Selfoss með 34 stig. […]
�?urfum að hafa mikið fyrir hverju einasta stigi sem við fáum

Albert Sævarsson, markvörður ÍBV var sannarlega þyngdar sinnar virði í leiknum gegn Víkingi frá Ólafsvík en hann þurfti nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum. Meðal annars varði hann vítaspyrnu, alveg út við stöng í stöðunni 2:1 fyrir ÍBV og bjargaði sínu liði fyrir horn. Albert var þó hógværðin uppmáluð þegar blaðamaður Eyjafrétta ræddi […]
Erfið fæðing gegn Víking �?lafsvík

Eyjamenn lentu í óvæntum vandræðum gegn ferskum Ólafsvíkingum þegar ÍBV tók á móti Víkingi Ó. á Hásteinsvellinum í kvöld. Gestirnir komust óvænt yfir strax á 10. mínútu en eftir það sóttu Eyjamenn nánast látlaust en jöfnuðu ekki fyrr en í uppbótartíma í fyrri hálfleik. Heimamenn voru svo stálheppnir á upphafsmínútum síðari hálfleik að lenda ekki […]
Grænlendingar heimsækja Landbúnaðarsýninguna á Hellu

Von er á 29 manna hóp grænlenskra bænda á Landbúnaðarsýninguna á Hellu. Um er að ræða hóp frá Vatnahverfi á Suður-Grænlandi sem kemur til Íslands gagngert til að heimsækja sýninguna. Vatnahverfi er nálægt bæjunum Narsarsuaq og Qassiaruk. (meira…)
MK hæstur með 27,6 milljónir króna

Um mánaðamótin síðustu lauk álagningu opinberra gjalda á einstaklinga í Vestmannaeyjum árið 2008. Samtals nema álögð gjöld 2.4 milljörðum á 3196 gjaldendur auk 896 þúsunda á 89 börn. Nemur hækkunin 6,21 prósenti frá fyrra ári. Þar af er tekjuskattur 986 milljónir króna sem er 0,36% hækkun frá fyrra ári og útsvar er 1230 milljónir og […]
Stofna stýrihóp um málefni �?jóðhátíðar
Bæjarráð fjallaði um málefni þjóðhátíðar. Ljóst er að nýafstaðin þjóðhátíð er um leið ein sú fjölmennasta og ein sú best lukkaðasta hingað til. Áætla má að fjöldi gesta hafi verið um 13.000 manns og þannig fjölgaði íbúum á Heimaey rúmlega þrefalt þessa daga. Ástæða er til að þakka mótshöldurum sérstaklega fyrir umgjörðina. Þá er einnig […]
Bæjaryfirvöld draga fyrri samþykkt til baka

Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að fella úr gildi fyrri samþykkt varðandi lundaveiði en samkvæmt fyrri samþykkt mátti veiða til 15. ágúst. Á fundi bæjarráðs var hins vegar sú samþykkt dregin til baka og ákveðið að stunda megi lundaveiði til klukkan 20.00 þann 10. ágúst. Enn fremur felur bæjarráð bæjarstjóra að óska eftir […]
Leikurinn klukkan 18.00 í kvöld

Karlalið ÍBV tekur í dag á móti Víkingi frá Ólafsvík á Hásteinsvellinum en leikur liðanna hefst á óvenjulegum tíma eða klukkan 18.00. Eyjamönnum hefur ekki vegnað eins vel í seinni umferð Íslandsmótsins og þeirri fyrri, hafa unnið einn leik af þremur, gert eitt jafntefli og tapað einum. Engu að síður er ÍBV í efsta sæti […]
Annar kjálkabrotinn eftir �?jóðhátíð

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur fengið kæru vegna líkamsárásar á Þjóðhátíð þar sem hálfþrítugur maður var kjálkabrotinn með hnefahöggi. Maðurinn er annar tveggja sem kjálkabrotnuðu í líkamsárásum á Þjóðhátíð. Hefur hann gefið skýrslu hjá lögreglu og er málið í athugun. Hitt tilvikið hefur ekki verið kært. (meira…)
Heil umferð í 1. deild í kvöld
1. deild karla: 18:00 ÍBV – Víkingur Ó. (Hásteinsvöllur) 19:00 Njarðvík – Víkingur R. (Njarðvíkurvöllur) 19:00 KS/Leiftur – Fjarðabyggð (Ólafsfjarðarvöllur) 19:00 Leiknir R. – Stjarnan (Leiknisvöllur) 19:15 Þór – Selfoss (Akureyrarvöllur) 19:15 Haukar – KA (Ásvellir) (meira…)
Kærum á séra Gunnar fjölgar
Fimmta kæran á hendur séra Gunnari Björnssyni hefur borist lögreglu. Lögreglan í Árborg var búin að senda málið til ríkissaksóknara sem óskaði frekari upplýsinga. Málið verður sent ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort séra Gunnar verði ákærður og þá fyrir hversu alvarlegt brot. (meira…)
Nýr seðlabankastjóri í vetur?
Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, segist hafa heimildir fyrir því „að nú liggi fyrir nýtt stjórnarfrumvarp um Seðlabankann og samkomulag liggi fyrir um að skáldið Davíð fari á eftirlaun á komandi vetri,“ á bloggi sínu. Aðspurður um málið segist Bjarni hafa „heyrt þetta úr ýmsum áttum“ og að heimildarmennirnir hafi hingað til reynst traustir. (meira…)
Lífsreynsla Bubba Morthens í Bakkafjöru

Talsvert hefur verið rætt um ferð Björgunarbátsins Þórs með Bubba Morthens, Pál Magnússon og fleiri í Bakkafjöru, á mánudeginum eftir þjóðhátíð. Haft er eftir einum áhafnarmeðlim Þórs, að kóngurinn hafi jú blotnað. Sjálfur hefur Bubbi sagt að hann hafi verið í lífsháska. (meira…)