Fréttir koma út á morgun, – fimmtudag

Vegna Þjóðhátíðarinnar og frídags verslunarmanna sl. mánudag, seinkar venjubundinni útgáfu Frétta til fimmtudags. Blaðinu verður dreift til áskrifenda og í verslanir í Eyjum seinnipart fimmtudagsins. Meðal efnis í blaðinu er allt sem snertir nýafstaðna Þjóðhátið, bæði í máli og myndum. Þá verður gluggað í skattskrána og að þessu sinni eru reiknuð út meðallaun 1500 Vestmannaeyinga. […]

Hey fauk í Mýrdalnum

Að því er fram kemur á Fréttavef Suðurlands fauk töluvert af heyi í utanverðum Mýrdal sl. miðvikudag 30. júlí í hvassri austnorðaustanátt. Mikill breiskjuþurkur var búinn að vera og var hey því orðið skraufaþurrt og létt í sér. Þeir sem ekki sneru um morguninn sluppu betur. Hey fauk í það minnsta á 5 bæjum. Mikið […]

Viðgerð lokið á rafstrengnum

Á sama tíma og Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum var að fjara út náðist að ljúka viðgerð á 33 kV sæstreng VM2 til Vestmannaeyja. Viðgerðin hefur tekið alls um 26 daga, þar af fóru 12 dagar í bið í höfn vegna mikillar ölduhæðar á viðgerðarstað. Spenna var sett á strenginn í gærmorgun og verður hann væntanlega tekinn […]

Mikill pysjudauði í Bjarnarey

Lundastofninn virðist vera hætt kominn víðar en í Vestmannaeyjum. Dauðar lundapysjur í hundraðatali var sjón sem blasti við lundaveiðimönnum í Bjarnarey undan Vopnafirði fyrir skömmu. Líklegasta ástæðan fyrir þessu er talin vera skortur á æti en breyttar aðstæður í sjónum geta líka verið haft áhrif. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Náttúrustofnun Suðurlandi er mikill áhugi […]

Síðustu �?jóðhátíðargestirnir fóru í morgun

Síðustu Þjóðhátíðargestirnir fóru frá Vestmannaeyjum nú í morgun og má segja að þar með ljúki einni af stærstu Þjóðhátíðum frá upphafi. Þjóðhátíðarnefnd lét hafa eftir sér að líklega væru um 13 þúsund manns í Dalnum enda hafa líklega aldrei fleiri tekið þátt í Brekkusöng sunnudagsins og í ár. Þrátt fyrir að útlit fyrir flug hafi […]

Sýknaður af ákæru um árás á eiginkonu og dóttur

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af ákæru um líkamsárás gegn konu sinni og uppeldisdóttur á heimili þeirra í júlí í fyrra. Manninum var gefið að sök að hafa slegið konuna einu sinni í andlitið og hrint henni í gólfið og sparkað í hana þannig að hún hlaut sjáanlega áverka. Þá var hann ákærður fyrir […]

�?jóðhátíðarmyndirnar allar á netinu

Einni fjölmennustu, ef ekki þeirri fjölmennustu Þjóðhátíð frá upphafi lauk á mánudagsmorgunin en það er mál þeirra sem að hátíðinni komu að Þjóðhátíðin hafi ekki eingöngu verið ein sú fjölmennasta heldur einnig afar vel heppnuð. Það er ekki síst að þakka þeim fjölmörgu gestum Þjóðhátíðarinnar sem í flesta staði voru til fyrirmyndar. (meira…)

Sumar á Selfossi

Hin árlega sumarhátíð Sumar á Selfossi verður haldin laugardaginn 9. ágúst. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði nema hvað árlegum Sléttusöng hefur verið hnýtt aftan við dagskrána. Að venju bjóða fyrirtæki á Selfossi íbúum og gestum þeirra til morgunverðar og eftir hádegi verður dagskrá um allan bæ fyrir stóra og smáa fjölskyldumeðlimi. (meira…)

Mjög hlýr júlímánuður

Mjög hlýtt var í júlímánuði, sérstaklega síðustu 10 dagana, og voru þá hitamet slegin víða um land, m.a. á Þingvöllum, að því er fram kemur í yfirliti frá Veðurstofu Íslands. Góðviðrasamt var í mánuðinum og mældist meðalhitinn í Reykjavík 12,5 stig og er það 1,9 stigum ofan meðallags. Mánuðurinn er í hópi hlýrri júlímánaða, lenti […]

�?jóðhátíðargestir til vandræða í gær

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út seint í gærkvöldi en kveikt hafði verið í nokkrum tjöldum í Herjólfsdal. Enn voru nokkur hundruð Þjóðhátíðargestir í Dalnum en nokkrir þeirra léku sér að því að finna yfirgefin tjöld og kasta þeim á bálið. Lögregla hafði afskipti af nokkrum þeirra og fengu tveir að gista fangageymslu í nótt vegna […]

Loftbrú komst á um hádegið í dag

Eftir að gaf til flugs til Eyja um hádegið í dag, hefur mikið verið flogið, nánast loftbrú milli lands og Eyja. Flugfélag Vestmannaeyja gerir ráð fyrir að fljúga á annað hundrað ferða á Bakkaflugvöll, Flugfélag Íslands á þriðja tug ferða til Reykjavíkur og auk þess fjöldi einkaflugvéla. (meira…)

17 fíkniefnamál á þjóðhátíð

Alls komu upp sautján fíkniefnamál á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum í ár, að því er lögreglan greinir frá. Er þetta mun minna af málum en á hátíðinni 2005, þegar upp kom á fimmta tug mála. Mikil áhersla var lögð á eftirlit með fíkniefnaneyslu á hátíðinni að þessu sinni. Nú var um að ræða amfetamín, kókaín, kannabis […]

Glæsilegu unglingalandsmóti slitið með pompi og prakt

11. Unglingalandsmóti UMFÍ í Þorlákshöfn var slitið á miðnætti í gærkvöldi. Athöfnin var í senn mjög glæsileg í alla staði, stillt og þurrt veður og stemmingin einstök. Mikið fjölmenni var fyrir við lokaathöfnina og mörg þúsund áhorfendur nutu stundarinnar fram í fingurgóma. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, flutti keppendum og gestum kveðju og þakkaði framkvæmdaaðilum […]

Flug hafið milli lands og Eyja

Talið er að um 3000 manns bíði eftir flugi í Vestmannaeyjum. Ekki var hægt að fljúga þangað í morgun vegna þoku en henni hefur nú létt og er flug á Bakkaflugvöll að hefjast. Þá eru komnar vélar frá Flugfélagi Íslands til Eyja. Búast má við mikilli umferð á flugvellinum í Eyjum í dag ef þokan […]

�?fært með flugi og veðurspáin ekki hagstæð

Þjóðhátíð Vestmannaeyja lauk eins og venja er undir morgun í dag, mánudag og fara Þjóðhátíðargestir nú að huga að heimferðinni. Það gæti þó orðið erfitt um vik fyrir marga því enn er ófært með flugi og veðurspáin er ekki hagstæð. Flugfélag Íslands áætlaði að fljúga 23 ferðir til og frá Eyjum í dag, með rúmlega […]

Labbi með Bryggjusöng á Stokkseyrarbryggju

Fjölskyldudagar á Stokkseyri náðu hámarki í gærkveldi með varðeldi og Bryggjusöng Labba í Glóru (Karma) þar sem fjöldi fólks á öllum aldri kom saman í besta veðri til útiveru. Samkomunni á Stokkseyrarbryggju lauk með glæsilegri flugeldasýningu sem Hjálparsveit skáta í Hveragerði sá um. Sjá mynd undir -meira- . . (meira…)

Unglingalandsmótinu slitið í kvöld

Unglingalandsmóti UMFÍ í Þorlákshöfn verður slitið í kvöld með flugeldasýningu. Keppni lauk nú undir kvöld. Talið er að um 10 þúsund manns hafi sótt mótið en mótshaldarar segja, að mikill umferðarþungi hafi verið í bænum í dag. Næsta unglingalandsmót verður haldin í Grundarfirði að ári en unglingalandsmót hafa verið haldin undanfarin 11 ár, nú síðari […]

Brekkusöngurinn í beinni á Rás 2

Brekkusöngurinn margfrægi á Þjóðhátíð í Eyjum, hefst kl. 23 að venju. Og Árni Johnsen mun þar halda um stjórntaumana eins og undanfarin 30 ár. Brekkusöngnum verður útvarpað beint á Rás 2 og hefst útsending kl. 23 og stendur til miðnættis. (meira…)

Dagskrá hafin að nýju í Herjólfsdal

Nú er dagskrá hafin að nýju í Herjólsdal og eins og vera ber er byrjað á að skemmta allra yngstu Þjóðhátíðargestunum. Þegar þetta er skrifað er þurrt en þoka yfir Eyjunum og ólíklegt að gefist til flugs í dag. Gærdagurinn gekk að mestu stóráfallalaust fyrir sig en hér að neðan má sjá fjölmargar myndir frá […]

�?oka hamlar flugi til Eyja

Þoka er í Eyjum og gerir það að verkum að flug liggur niðri. Flugfélag Vestmannaeyja, sem flýgur á Bakka, hefur beint öllum farþegum sínum, sem ætluðu að fljúga með félaginu á Þjóðhátíð, til Þorlákshafnar, en þaðan siglir Herjólfur kl. 16.00. Flugútlit í dag er mjög tvísýnt. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.