Í kvöld verður stærsti brekkukór allra tíma í Herjólfsdal

Þjóðhátíðarhaldið í Eyjum hefur gengið framúrskarandi vel. Þrátt fyrir mikinn mannfjölda hefur ekkert vandamál komið uppá sem orð er á gerandi. Reyndar svo lítið, að sumir fjölmiðlar eru í hreinustu vandræðum með að segja fréttir af Þjóðhátíðinni, af því það vantar einhverjar skandalfréttir. (meira…)
Um viðurnefni, uppnefni og einelti

Eða bara skítkast, eins og ég kalla það oft og tíðum. Þar sem ég hef verið mikið uppi í fjöllum að undanförnu og kannski ekki mikið fylgst með umræðunni hér í bæ, þá hefur það vakið athygli mína hörð gagnrýni á bók Sigurgeirs Jónssonar, sem hann kallar Viðurnefni í Vestmannaeyjum. (meira…)
Central Park í Gallerí Gónhól
Nýlega opnaði Sigurjón Guðjónsson ljósmyndasýningu í Gallerí Gónhól á Eyrarbakka. Yfirskrift sýningarinnar er Central Park í Gallerí Gónhól en Sigurjón hefur undanfarin tvö ár stundað nám í ljósmyndun við School of Visual Arts í New York. Á sýningunni eru abstrakt landslagsljósmyndir sem teknar voru haustið 2007 í Central Park í New York en þær sýna […]
Talsvert um hraðakstur þrátt fyrir þétta umferð
Tveir ökumenn voru teknir á 148 km hraða á Suðurlandsvegi í umdæmi Selfosslögreglunnar í dag. Segir lögreglan að þrátt fyrir að umferð hafi verið þétt hafi talsvert verið um hraðakstra. Ökumennirnir sem stöðvaðir voru á þessum ofsahraða mega búast við að missa ökuréttindi í mánuð og fá 130.000 króna sekt. (meira…)
Pétur Kr. Hafstein á Stokkalæk er hæstur
Á Suðurlandi trónir efstur á lista skattakónga hæstarréttardómarinn fyrrverandi, Pétur Kr. Hafstein, sem býr á Stokkalæk eftir að hann hætti sem dómari. Greinilegt er að afkoma hans er góð því hann greiðir yfir 150 milljónir króna í gjöld. (meira…)
�?jóðhátíð fer vel af stað

Óhætt er að segja að Þjóðhátíðin hafi farið einstaklega vel af stað í dag en einmuna veðurblíða er nú í Vestmannaeyjum, sól, hlýtt og hægur vindur. Vindurinn var reyndar öllu meiri á Setningarhátíðinni í dag en það kom ekki að sök vegna hlýindanna. Talið er að um sex þúsund manns séu nú í Herjólfsdal en […]
Herjólfsdalur netvæddur

Þjóðhátíð í Eyjum verður netvædd í fyrsta sinn í ár, en nýlega opnaði Síminn fyrir 3G sendi í Vestmannaeyjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, kynnti þetta á blaðamannafund í tjaldi sínu að Lundaholu 6 í Herjólfsdal þar sem hann vígði 3G-sambandið með formlegum hætti. Þetta felur í sér að viðskiptavinir Símans geta nýtt sér ýmsa þjónustu […]
Vígsluathöfn nýrra íþróttamannvirkja í �?orlákshöfn í gær
Í gær fór fram vígsluathöfn nýrra íþróttamannvirkja í Þorlákshöfn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðaherra og Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri í Þorlákshöfn, klipptu á borðann og tóku þar með mannvirkin formlega í notkun. Hjörtur Már Ingvarsson, sundmaður, tók fyrsta sundsprettinn í nýju 25 metra lauginni. Nýi íþróttavöllurinn var gefið nafn og heitir Þorlálksvöllur. (meira…)
Dragnótarafli í júlí
Þeir fiska sem róa, málsháttur sem á vel við um strákanna á Þorleifi EA, báturinn er komin í 3ja sætið og jafnframt sá þriðji sem yfir 100 tonn kemst. Aldan ÍS er næst á eftir, en saman tókst þessum tveimur bátum að komast í gegnum bátanna sem höfðu setið þarna frá því þeir hættur veiðum. […]
Herjólfsdal lokað klukkan 13.00

Heimamenn leggja í dag lokahönd á búferlaflutningana inn í Herjólfsdal og er að vanda öllu til tjaldað. Heilu búslóðirnar skipta um heimilisfang og færast á Lundaholur, Sigurbraut, Týsgötu eða aðrar götur í Herjólfsdal. Búferlunum verður hins vegar að vera lokið fyrir klukkan 13.00 í dag því lokað verður fyrir bílaumferð klukkan 13.00. (meira…)
�?jóðhátíðargestir streyma til Eyja

Þjóðhátíðargestir streyma nú sem aldrei fyrr til Eyja en áætla má að um 3000 gestir séu komnir á hátíðina. Húkkaraballið var haldið í gærkvöldi í Týsheimilinu og eins og alltaf var troðið út að dyrum. Eftir því sem næst verður komist fór dansleikurinn vel fram en Land og synir héldu uppi stuðinu. Nú eru heimamenn […]
Nokkur erill hjá lögreglu í nótt en ekkert stórvægilegt

Töluverð ölvun var í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og alla nótt og erill hjá lögreglu, án þess að nokkuð stórvægilegt kæmi upp. Svonefnt húkkaraball var í gærkvöldi en þjóðhátíðin verður formlega sett í dag. Einn hátíðargestur var gripinn i Þorlákshöfn í gærkvöldi á leið um borð í Herjólf, þar sem han var með marijuana í fórum […]
Unglingalandsmótið hefst í �?orlákahöfn í dag
Unglingalandsmót UMFÍ hefst í Þorlákshöfn í dag föstudag. Allt stefnir í metþátttöku af HSK-svæðinu og voru skráningar komnar yfir 120 í gær. Búist er við 8-12.000 manns á mótið sem verður án efa hið glæsilegasta. Undirbúningur hefur gegnið vel og mikið lagt í góðar aðstæður. HSK sér um framkvæmd mótsins. (meira…)
Um 6.500 manns til Eyja

Samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá aðilum sem flytja fólk til Eyja þá eru um 6.500 manns staddir í Vestmannaeyjum á Þjóðhátíð eða á leið til Eyja. Hjá Herjólfi fengust þær upplýsingar að fullt væri í sex fyrstu ferðir Herjólfs eftir Þjóðhátíð, það eru tvær á mánudag, ein aðfaranótt þriðjudags, tvær ferðir á þriðjudag og […]
Unglingalandsmót UMFÍ
Skráningu í Unglingalandsmótið lauk um miðnætti í gær og eru keppendur tæplega 1200 talsins. Gert er ráð fyrir að tímaseðlar og keppnisfyrirkomulag íþróttagreinanna verði tilbúin þegar líður á kvöldið. Tímaseðill í frjálsum íþróttum er tilbúinn og kominn á síðuna undir -meira- auk þess sem mótið er komið í mótaforrit FRÍ. Rásraðir í golfi liggja fyrir […]
Unglingalandsmót UMFÍ haldið á �?orlákshöfn.
Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.r 11. – 18. ára geta verið með og tekið þátt í skemmtilegri dagskrá. (meira…)
Magnús Kristinsson skattakóngur Eyjanna

Magnús Kristinsson, forstjóri, greiðir hæstu opinberu gjöld í Vestamannaeyjum í ár. Samkvæmt upplýsingum frá skattstjóra Vestmannaeyja greiðir Magnús 27.644.483 krónur í heildargjöld. Ragnheiður Alfonsdóttir greiðir næsthæstu gjöld í umdæminu eða 26.568.570 krónur. (meira…)
Um verslunarmannahelgina verður 11. Unglingalandsmót UMFÍ haldið á �?orlákshöfn.
Um verslunarmannahelgina verður 11. Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Þorlákshöfn. Þetta er því í 11. sinn sem mótið er haldið en nú eru Unglingalandsmótin haldin á hverju ári. Íþrótta- og fjölskylduhátíð (meira…)
Anton og Egill hjá ÍBV til 2010

Þeir Anton Bjarnason og Egill Jóhannsson, ungir og efnilegir knattspyrnumenn í herbúðum ÍBV, framlengdu samningi sínum hjá félaginu til ársins 2010. Báðir hafa þeir komið talsvert við sögu í sumar, Egill hefur leikið ellefu af fjórtán leikjum ÍBV í 1. deild og Anton tíu. Frá þessu er greint á heimasíðu ÍBV og má lesa fréttatilkynningu […]
Tveir teknir við að reykja hass við Herjólf

Tveir piltar voru handteknir í Þorlákshöfn í nótt, eftir að hafa verið staðnir að því að reykja hass áður en þeir færu um borð í Herjólf, sem sigldi til Eyja klukkan þrjú í nótt. Ekkert bendir þó til að þeir hafi ætlað að smygla fíkniefnum til Eyja. Mikið eftirlit er við komu ferjunnar þangað í […]