Orðrómur þess efnis að sr. Kristján Björnsson hafi fengið nýja stöðu innan kirkjunnar og sé tekinn við Mosfellsprestakalli hefur gengið um bæinn undanfarið. Kristján sagði í samtali við Vaktina það ekki alveg sannleikanum samkvæmt. “Staða sóknarprests í Mosfellsprestakalli er laus og ég hef velt því fyrir mér að sækja um. Ég er hins vegar ekki búinn að því en umsóknarfrestur er til 28. ágúst. Ég veit að það eru nokkrir góðir umsækjendur en það verður ekki ljóst fyrr en í september hver fær stöðuna.
“
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst