Gleymum ekki smáfuglunum

Lesandi Eyjafrétta sendi ritstjórn póst þar sem fólki er bent á að gleyma ekki smáfuglunum. Þessa dagana gengur ýmislegt á í veðri og í nógu að snúast fyrir flesta en lesandinn hafði gefið fuglunum og virtust þeir mjög svangir. (meira…)
Nefnd skoðar heimavinnslu
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað nefnd til ráðuneytis um hvernig best megi standa að og greiða fyrir þróun heimavinnslu og sölu afurða hjá bændum. Nefndina skipa: (meira…)
Vill koma upp söluhúsi við Vesturbúðarhólinn
Á síðasta fundi í Skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Árorgar var ma. tekið fyrir erindi frá Regínu Guðjónsdóttur á Eyrarbakka þar sem hún óskar eftir stöðuleyfi fyrir upplýsinga og söluhús fyrir ferðamenn við Vesturbúðarhólinn á Eyrarbakka. (meira…)
Fjölsóttir tónleikar í Sunnulækjarskóla
Hljómsveitir og samspilshópar Tónlistarskóla Árnesinga héldu sína árlegu tónleika í Sunnulækjarskóla laugardaginn 1. mars. Starf hljómsveita hefur vaxið mjög á liðnum árum og voru hljómsveitatónleikarnir sl. vetur mjög eftirminnilegir, enda rúmaðist sá fjöldi sem þar kom fram varla í sal Fjölbrautaskólans. Í ljósi þess var tekin ákvörun um að skipta hljómsveitatónleikunum upp og voru þeir […]
Árshátíð 11. apríl nk. í Súlnasal Hótel Sögu.
Árshátíð Landssamtaka sauðfjárbænda verður haldin föstudaginn 11. apríl nk. í Súlnasal Hótel Sögu. … og hefst kl 19.00 með fordrykk. Skemmtiatriði verða fjölmörg og koma frá öllum landshornum!. Að loknum mat og skemmtiatriðum mun dansinn duna langt fram á nótt. Veislustjóri verður Jóhannes Kristjánsson og hljómsveitin Skógarpúkarnir úr Dalasýslu leikur fyrir dansi . Frekari upplýsingar […]
�?ak farið að síga á Fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar

Í dag kom í ljós að þak skemmunnar á fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar, Gúanó, er farið að síga undan snjóþunganum. Sigurður Friðbjörnsson, verksmiðjustjóri segir starfsmenn hafa mokað mesta snjónum af en að þakið hafi sigið um eina 20 sentimetra þar sem mest er. (meira…)
Lagt til að kvótinn verði aukinn um 50 þúsund tonn

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur verið við loðnurannsóknir fyrir Suðaustur- og Austurlandi frá því að mælingum lauk vestan við Ingólfshöfða þann 27. febrúar. Á svæðinu austan við Ingólfshöfða mældist loðna einkum í Lónsdjúpi, Litladýpi og á Papagrunni. Á öðrum svæðum sem skoðuð voru fannst einungis lítilsháttar magn. Samtals mældust um 56 þús. tonn af loðnu austan […]
Von á snjóruðningstækjum með Herjólfi í dag

Snjómokstur í Vestmannaeyjum gengur hægt en örugglega en búið er að opna allar stoðbrautir í bænum. Ekkert hefur verið flogið til Eyja í dag enda er flugbrautin á kafi í snjó. Von er á tveimur snjóruðningstækjum með Herjólfi í dag til að ryðja flugbrautirnar en þetta er í fyrsta sinn síðan í eldgosinu 1973 sem […]
Eyjamenn steinlágu gegn Breiðablik

Eyjamenn steinlágu gegn Breiðablik í Lengjubikarnum í gær en lokatölur urðu 7:0. ÍBV hafði áður tapað gegn Val 6:0 helgina áður og er liðið í neðsta sæti riðilsins með ekkert stig og 13 mörk í mínus eftir tvo leiki. Leikurinn gegn Breiðablik fór fram í Kórnum í Kópavogi en staðan í hálfleik var 4:0. (meira…)
Myndir af fannferginu

Það er óhætt að segja að segja að fannfergið sem er í Eyjum þessa stundina hafi riðlað ýmsu og enn á fólk erfitt með að komast til vinnu og fara margir fótgangandi þar sem ekki er búið að ryðja allar götur bæjarins. Óskar Pétur Friðriksson myndaði í gær það sem fyrir augu bar, m.a. þegar […]
Ekki meira fannfergi í Eyjum í 15 ár

Eins og frétt mbl.is ber með sér hefur snjóað mikið í Vestmannaeyjum í nótt. Strax í gærkvöldi var orðið blint og frá miðnætti hefur snjóað látlaust. Veðurathugunarmenn á Stórhöfða mældu 50 sm snjódýpt kl. 09 í morgun. Með ofankomunni hefur verið hvasst af austsuðaustri í Eyjum í nótt og snjórinn því sest til í verulega […]
Fólksfjölgun á milli mánaða 0.34%
Á síðasta fundi Framkvæmda og veitustjórnar í Sveitarfélaginu Árborg sem haldinn var 28. febrúar sl. kom eftirfarandi fram um íbúafjölda i sveitarfélaginu og í hinum ýmsu hverfum þess. 26. febrúar 2008 eru 7.637 skráðir íbúar í Árborg Dreifingin er þessi: (meira…)
Messufall vegna fannfergis og skafhríðar

Sú óvanalega staða kom upp í dag, að fella þurfti niður messur í Landakirkju, vegna fannfergis og skafhríðar. Barnaguðsþjónstan kl. 11 féll niður og líka guðsþjónusta kl. 14 núna sunnudaginn 2. mars. Sem betur er verður stutt í næstu messu, en það verður kaffihúsamessa fimmtudagskvöldið 6. mars í Safnaðarheimilinu. (meira…)
Áskorun til bæjarstjórnar Vestmannaeyja

Frá því að ákveðið var að sameina grunnskólana (þrátt fyrir efasemdir margra) þá hefur komið greinilega í ljós, að vegirnir og aðkeyrslurnar að skólunum þola ekki það álag sem því fylgir þegar börnunum er keyrt í skólana. (meira…)
Hvar er þessi hnattræna hlýnun – ekki í Vestmannaeyjum
Hvernig skyldi hin pólitíska veðurfræði skýra kaldan vetur á Íslandi í ár þar sem meðalhiti þeirra vetrarmánaða sem liðnir eru, er lægri en í meðalári. Mér er sagt að elstu menn í Vestmannaeyjum muni ekki annan eins harðræðisvetur og þennan. (meira…)
Vont veður í Vestmannaeyjum

Ófært er milli húsa í Vestmannaeyjum sökum mikillar snjókomu og blindbylur gerir það að verkum að skyggni er mjög lítið. Lögreglan biður fólk um að vera ekki á ferli nema nauðsynlegt sé. „Það eru komnir tveggja til þriggja metra háir skaflar sumstaðar og björgunarsveitin er búin að festa sína öflugu bíla við að aðstoða fólk, […]
Poppmessa í Selfosskirkju kl. 20:00 í kvöld 2. mars
Í kvöld sunnudaginn 2. mars verður haldin poppmessa í Selfosskirkju kl. 20:00. Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Þorlákshöfn, flytur hugleiðingu. Tónlistinni stjórnar hinn góðkunni söngvari og leikprédikari, Þorvaldur Halldórsson. (meira…)
Eyjamenn komnir í fyrsta sæti B-riðils

Körfuknattleikslið ÍBV tók í dag á móti Mostra í B-riðli 2. deildar en Mostri, sem er frá Stykkishólmi, var í efsta sæti fyrir leikinn, tveimur stigum á undan ÍBV. Eyjamenn voru hins vegar mun sterkari aðilinn í leiknum, náðu þægilegu forskoti í 2. leikhluta þegar liðið lék stífa pressuvörn sem skilaði liðinu auðveldum hraðaupphlaupskörfum sem […]
Sverrir Stormsker verður heiðursgestur á herrakvöldi ÍBV

Það er orðin löng hefð fyrir herrakvöldi handknattleiksáhugamanna innan ÍBV. Fyrr á árum var það haldið um borði í Herjólfi. En eftir að skipið fór að sigla tvær ferðir alla daga var það ekki lengur hægt. Síðan hefur það verið í Höllinni. Og svo verður nú. Að þessu sinni verður það haldið laugardaginn 8. mars. […]
Guðmundur Steingrímsson og Guðni Ágústsson kváðust á í þingveislu í gærkvöldi
Þingveisla var haldin í gærkvöldi en þar er þingmönnum bannað að taka til máls nema í bundnu máli. Þetta var fyrsta þingveisla nýs kjörtímabil og kom í ljós að áhyggjur af því að kveðskapur þingmanna væri verri en áður eru ástæðulausar. Það er ekki einu sinni sjónarmunur á því sem kveðið var í gær og […]