Brynjar Gauti framlengir hjá ÍBV

Knattspyrnumaðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson hefur framlengt samningi sínum hjá ÍBV um eitt ár. Brynjar Gauti var í haust m.a. orðaður við uppeldisfélag sitt, Víking Ólafsvík en varnarmaðurinn sterki var þó samningsbundinn ÍBV út næsta tímabil. Hann hefur nú bætt einu ári við þann samning og spilar því væntanlega með ÍBV út tímabilið 2014. (meira…)
Dapatkan Agen Togel Terpercaya dalam Tampil Togel!
Dapatkan Agen Togel Terpercaya dalam Permainan Togel! Togel berjudi pada bentuk yang paling murni. Jika saya hajavascript:; rus menabalkan satu permainan untuk mewakili inti dari perjudian, itu hendak menjadi lotere. Tiada yang mengatakan judi lebih dari merebut tiket togel. Memilih2x nomor Anda serta berharap untuk lulus. Bukan hanya itu, tetapi lotere menunjuk-nunjukkan jackpot terbesar di […]
Skerðing á þjónustu héraðsdóms Suðurlands

Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum gærdag, mótmæli á þjónustuskerðingu Héraðsdóms Suðurlands hér í Eyjum. Í bókun bæjarráðs segir: „Meðal helstu breytinga er að regluleg dómþing í Vestmannaeyjum verður nú ekki haldið lengur í desember og janúar. Í þessu felst að birtar ákærur og stefnur fá ekki umfjöllun og framgang á þessum tíma.“ (meira…)
Jólarásin komin í loftið

Nú er Jólarásin komin í loftið en útvarpsstöðin hefur verið árlegur viðburður um áratugaskeið hjá félagsmiðstöðinni Rauðagerði, sem áður hét Féló. Hægt er að hlusta á útsendingu Jólarásarinnar á fm 104,7 og á netinu, á vefsíðunni Gufan.is. (meira…)
Aðeins fimm hundruð miðar í boði

Spennan fyrir leik ÍBV og B-liðsins í 16-liða úrslitum Símabikars karla í handbolta, vex með hverjum deginum. Nú er forsala miða á leikinn hafin en aðeins verða 500 miðar í boði. Forsalan fer fram í Tvistinum og því um að gera að tryggja sér miða í tíma, enda má búast við húsfylli á leiknum. Eins […]
Mótmæla hækkun fargjalda Herjólfs

Eins og áður hefur komið fram, hækka fargjöld Herjólfs um 10% um áramótin. Tilkynning þess efnis er að finna á heimasíðu Herjólfs en bæjarráð Vestmannaeyja tók málið fyrir á fundi sínum í gær. Bæjarráð mótmælir harðlega fyrirhugaðri hækkun á gjaldskrá Herjólfs og bendir á að kostnaður fyrir fjögurra manna fjölskyldu, sem ferðast milli Vestmannaeyja og […]
Silja Elsabet fetar í fótspor Lady Gaga

Eyjastelpan Silja Elsabet Brynjarsdóttir er frábær söngkona. Hún hefur undanfarin ár komið reglulega fram við hin ýmsu tækifæri og verður bara betri og betri eftir því sem árunum fjölgar. Silja Elsabet hefur sett inn nokkur myndbönd af sér syngja lög á youtube.com, m.a. nú síðast þar sem hún tekur lagið Edge of glory með Lady […]
Hafa tekið saman yfirlit yfir algenga smitsjúkdóma varna

Á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja má nú finna yfirlit sem hefur að geyma upplýsingar um algenga smitsjúkdóma hjá börnum, smithættu og hvenær barnið mætti fara aftur í leikskóla/skóla eða til dagforeldris. „Þetta er gert til að draga úr smithættu og hindra að börn séu of stutt eða óþarflega lengi heima í tengslum við veikindi,“ sagði Ágúst […]
Ný verslun opnuð á laugardag

Á laugardaginn verður opnuð ný verslun í Vestmannaeyjum, verslunin Tölva, í húsnæði við Skólaveg 13, eða þar sem Eyjaradíó var í fjölda ára. Eigandi nýju verslunarinnar er Guðbjörn Guðmundsson en hann rak um árabil verslunina Eyjatölvur í félagi við aðra en sú verslun lokaði og hætti rekstri á dögunum. (meira…)
Kristín Erna og Gordon á toppnum yfir stoðsendingar

Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu kynnti bók sína, Íslensk knattspyrna 2012 í vikunni. Bókina hefur Víðir gefið út undanfarna áratugi og nýtur hún alltaf mikilla hylli meðal knattspyrnumanna og – áhugamanna. Í tilefni útgáfunnar voru veittar viðurkenningar fyrir árangur sumarsins 2012, m.a. fyrir þá leikmenn sem gáfu flestar stoðsendingar í efstu deild karla og kvenna. […]
Vill kaupa og reka eigin bifreið til að aka fötluðum og öldruðum

Á fundi Fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, sem haldinn var í vikunni, lagði framkvæmdastjóri til eftirfarandi þætti varðandi akstursþjónustu Vestmannaeyjabæjar fyrir fatlað fólk og aldraða; – að bærinn kaupi og reki sjálfur sérútbúna bifreið. – að ráðinn verði starfsmaður sem sinnir akstrinum. – að starfsmaðurinn og rekstur bifreiðarinnar verði í umsjón þjónustumiðstöðvar. (meira…)
Spurningar til Skipstjóra Herjólfs

Þar sem Siglingastofnun telur Landeyjahöfn hreint listaverk sem ekki megi hreyfa við langar mig að fá ykkar skoðun á því hvort þið séuð sammála meisturunum. Spurningarnar eru: (meira…)
Sögufölsun Siglingastofnunar

Alveg er þetta magnað að lesa fréttina um Herjólf og Landeyjahöfn frá Siglingastofnun á mbl.is 12.12.2012 heldur sú stofnun að íbúar á Heimaey séu með gullfiskaminni eða þeir séu svona heimskir, það muna allir sem voru á fundi um samgöngumál með þeim í Höllinni haustið 2008 þegar tilkynnt var að smíðin á nýju skipi hefði […]
Ísfélagið greiðir landverkafólki auka jólabónus

Ísfélag Vestmannaeyja mun greiða út viðbótar jólabónus til starfsmanna sinna í landi, að upphæð 250.000 kr. Þetta staðfesti Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en bónusinn er hrein viðbót við þann 50.000 kr. jólabónus sem bundinn er í kjarasamningum. (meira…)
Bílskúrinn verður rifinn

Nú standa yfir framkvæmdir við Eldheima sem er gosminjasafn þar sem húsið númer 10 við Gerðisbraut verður þungamiðjan. Er verið að grafa það upp úr vikrinum í vesturhlíðum Eldfells. Húsið lítur ótrúlega vel út en Eyjafréttir fengu ábendingu um að bílskúr við húsið yrði rifinn. Finnst þeim sem rætt hafa við blaðið að nokkur skaði […]
Málið litið alvarlegum augum

Fyrir nokkrum vikum uppgötvaðist að skotið hafði verið á rúðu á skrifstofu framkvæmdastjóra Ísfélags Vestmannaeyja sem er á þriðju hæð. Gat er á tvöfaldri rúðunni en hvorki kúlan eða annað sem skýrt gæti hvað gerðist hefur fundist. Lögreglan er með málið til rannsóknar og fékk aðstoð úr Reykjavík við rannsókn á vettvangi. (meira…)
Í undirbúningi eru mælingar með radar í landi

„Vegna óhapps Herjólfs í innsiglingu sigldi Baldur um tíma milli lands og Eyja. Er það í annað skipti frá opnun Landeyjahafnar, en í fyrrahaust leysti Baldur af um 5 vikna skeið á meðan Herjólfur var í slipp. Þá var enn mikill efnisburður vegna eldgossins í Eyjafjallajökli en þó þurfti aldrei að fella niður ferðir Baldurs […]
Stelpurnar spila í deildarbikarnum

Kvennalið ÍBV tekur þátt í Deildarbikarnum í ár en fjögur efstu lið deildarinnar taka þátt í keppninni. Liðin fjögur byrja á að leika í undanúrslitum þar sem Valur og Stjarnan eigast við annars vegar og hins vegar Fram og ÍBV. Báðir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði fimmtudaginn 27. desember. Leikur Vals […]
Stefnir allt í frábæra tónleika

Fimmtudaginn 13. desember næstkomandi klukkan 20.00 fara fram hinir árlegu jólatónleikar kórs Landakirkju. Tónleikarnir hafa í huga margra verið ómissandi hluti aðventunnar og mikilvægur liður í því að komast í hið eina sanna jólaskap. (meira…)
Herjólfur siglir næstu daga til �?orlákshafnar

Nú er Herjólfur á leið sinni til Þorlákshafnar en skipið hélt frá Hafnarfirði stuttu eftir hádegi í dag. Skipið mun sigla frá Þorlákshöfn klukkan 19:15 í dag en í tilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila Herjólfs kemur fram að þar sem ölduspá við Landeyjahöfn er óhagstæð, þá verður áfram siglt til Þorlákshafnar næstu daga. (meira…)