�?etta er ævi mín í músík

Stella Hauksdóttir, trúbador, stendur fyrir stórtónleikum í Alþýðuhúsinu í kvöld, föstudag en henni til halds og trausts verður úrval tónlist­armanna bæði frá Eyjum og Reykjavík. Þetta eru fyrstu alvöru tónleikarnir sem hún heldur hér heima og kominn tími til, því hún hefur samið fjöldann allan af textum og lögum sem eru hluti af tónlistar­sögu og […]

Frostrósir hætta við komuna til Eyja

Frostrósir hafa sungið inn jólin fyrir Íslendinga undanfarin ár og nú síðustu ár heimsótt fjölda staða á landsbyggðinni við mjög góðar undirtektir. Þetta er mikið ferðalag og talsvert álag á listamenn og aðra sem að þessu koma og því mikilvægt að engar óvæntar uppákomur trufli eða setji strik í ferðaáætlunina. Áætlaðir voru tónleikar í Höllinni […]

ESB á ekki heima í stjórnarskránni

Það má vel vera að ég sé ekki alltaf í takt við raunveruleikann, eflaust einhverjir sem taka heils hugar undir það en það breytir því ekki að aga­lega finnst mér óviðeigandi þegar fólk er að blanda saman stjórnar­skránni og Evrópusambandinu. Sumir setja nánast samasem merki á milli þessara tveggja hluta. Hvað á það að þýða? […]

Nálgumst málið af festu

„Bæjarstjórn sem slík hefur ekki fjallað sérstaklega um stöðuna hjá Fasteign. Á sínum tíma var bæjar­stjórn klofin í afstöðu sinni til inngöngu Vestmannaeyjabæjar í félagið. Við sjálfstæðismenn vorum mjög andvígir samningum við Fast­eign hf. og töldum þá slæman kost, en V- listi og B-listi töldu inngöngu hins vegar góðan kost. Þar sem V og B […]

Kristileg gildi eru samofin íslenskri menningarhefð

Ég er einn þeirra rúmlega 500 einstaklinga sem gefa kost á sér til stjórnlagaþings og jafnframt sá elsti í hópnum. Stjórnarskráin á að vera stuttorð og auðskilin. Ég nefni hér nokkur atriði sem mér finnst skipta miklu máli: Ég tel að sú hugmynd að gera landið að einu kjördæmi (sem vissulega hefur ýmsa kosti) muni […]

Loðnukvótinn verði 200 þúsund tonn

Hafrannsóknastofnunin leggur til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2010/2011 verði samtals 200 þúsund tonn. Jafnframt leggur stofnunin til að ekki verði gerðar breytingar á núgildandi reglum um takmörkun á notkun flotvörpu við veiðarnar. Þetta er lagt til á grundvelli niðurstöðu haustmælinga á loðnu. (meira…)

Vestmannaeyingar eru með fjórðung síldarkvótans

Samanlagður kvóti Ísfélgs­ins, Vinnslustöðvar og Hugins VE er um 10.000 tonn í Suðurlands­síldinni en í heildina er kvótinn 40.000 tonn. Leitast er við að vinna sem mest til manneldis. „Við erum rétt að byrja,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðsstjóri Vinnslu­stöðvarinnar, þegar hann var spurður út í veiðar og vinnslu á síld en Vinnslustöðin er með fjögurþúsund […]

Kemur forsvarsmönnum Tölvunar í opna skjöldu

Í vikublaðinu Fréttum auglýsir Vestmannaeyjabær eftir tölvustjóra til að sinna almennri tölvuþjónustu, tölvukerfum, uppbyggingu og viðhaldi þeirra sem og endurnýjun. Einnig á hann að hafa umsjón með símkerfi sveitarfélagsins, heimasíðum og kynningu og kennslu starfsmanna. Leitað er eftir háskólamenntuðum starfs­manni. (meira…)

Sló flötum í innsiglingunni

Herjólfi sló næstum flötum við hafnarmynnið í Landeyjahöfn þegar skipið kom þangað um klukkan 11.00 í morgun. Allt fór þó vel en ekki voru farnar fleiri ferðir í Landeyjahöfn í dag. Síðdegisferðin var farin í Þorlákshöfn og einnig verður siglt þangað á morgun meðan málið er rannsakað. (meira…)

Af hverju ekki Landeyjahöfn?

Flestir Eyjamenn klóra sér í hausnum þessa stundina yfir þeirri staðreynd að farþegaferjan Herjólfur siglir til Þorlákshafnar en ekki í Landeyjahöfn. Klukkan 17:00 sýndi vindmælir á Stórhöfða norð-austan einn metra á sekúndu og ölduhæð við Landeyjahöfn 1,6 metri, aðstæður sem öllu jöfnu væru ákjósanlegar. Ívar Gunnlaugsson, skipstjóri Herjólfs segir hins vegar að einhverjar breytingar hafi […]

Farvegi Markarfljóts ekki breytt í fyrsta sinn

Í tilefni frétta um að breyta eigi farvegi Markarfljóts og viðbrögð ýmissa aðila og stofnanna í kjölfarið rifjar Kristinn R. Ólafsson „okkar maður í Madrid“ upp sögu sem Ási í Bæ skrifaði í bókina Skáldað í skörðin. Þar segir frá Ögmundi Ögmundssyni í Auraseli, þann galdramann sem lék sér m.a. að því að breyta árfarvegi […]

Ekki siglt meira til Landeyjahafnar í dag

Herjóflur siglir ekki meira til Landeyjahafnar í dag en skipið er statt í höfninni og siglir þaðan til Eyja klukkan 12:30. Síðdegis verður svo siglt til Þorlákshafnar og verður brottför frá Eyjum klukkan 15:15 og frá Þorlákshöfn 18:45. „Spár hafa breyst þannig að miklar líkur eru á að siglt verði á Þorlákshöfn á morgun líka,“ […]

Fer fram á öryggisúttekt

Elliði Vignisson, bæjarstjóri fer fram á það við Geir Gunnlaugsson, landlækni að gerði verði öryggisúttekt fyrir þjónustusvæði Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja vegna boðaðra niðurskurðaraðgerða. Óskað er eftir því að gerð verði grein fyrir því hvaða áhrif boðaður niðurskurður kæmi til með að hafa á getu stofnunarinnar til að veita bráðaþjónustu, sem og almenna lækningaþjónustu, fæðingaþjónustu, gegna hlutverki […]

Herjólfur kominn á �??fésið�??

Í vikunni var sett upp Facebook síða fyrir Herjólf. Síðunni er ætlað að mæta að einhverju leyti auknum kröfum um aðgengi upplýsinga en allar fréttir sem fara inn á heimasíðu Herjólfs, www.herjolfur.is verða settar inn á Facebook-síðuna. Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að á einum sólarhring hafi verið komnir 140 fylgjendur án þess að […]

Konukvöldi Hallarinnar frestað

„Því miður verðum við að fresta konukvöldinu þangað til í vor, forsala er ekki nógu mikil til að við getum treyst á að aðsókn væri næg til að standa undir kostnaði. En ballið með hljómsveitinni Í svörtum verður á laugardagskvöldið,“ sagði Bjarni Ólafur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hallarinnar. (meira…)

Heiðraði fimm Eyjamenn

Fimm Eyjamenn voru heiðraðir á 40 ára afmæli Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands um síðustu helgi, fyrir góð störf í þágu knattspyrnunnar. Gísli Magnússon og Viktor Helgason voru sæmdir gullmerki félagsins og þeir Sigurlás Þorleifsson, Heimir Hallgrímsson og Jón Ólafur Daníelsson voru sæmdir silfurmerki félagsins. (meira…)

�?sáttir við færslu ósa Markarfljóts

Skipulagsstofnun hefur ekki borist erindi frá Siglingastofnun um færslu ósa Markarfljóts vegna Landeyjahafnar. Að mati Skipulagsstofnunar er framkvæmdin tilkynningaskyld. Bóndinn á Seljalandi er ósáttur við að hafa ekki fengið upplýsingar um málið og óttast flóðahættu verði af framkvæmdinni. Samgönguráðherra samþykkti í gær þrjár tillögur Siglingastofnunar vegna framkvæmda við Landeyjahöfn. (meira…)

Byrjað að �??tyrfa�?? í fjölnota íþróttahúsinu

Nú er lokafrágangur hafinn á nýju fjölnota íþróttahúsi við Hásteinsvöll en í húsinu verður m.a. aðstaða fyrir frjálsar íþróttir og hálfur knattspyrnuvöllur. Í morgun var hafist handa við að leggja gervigrasið en það er þýska fyrirtækið Polytan sem sér um verkið. Þrír Þjóðverjar komu sérstaklega til landsins til að leggja grasið en hingað komu þeir […]

Bingó í kvöld

Í kvöld klukkan 19.30 verður bingó í Týsheimilinu við Hamarsveg. Bingóið er hluti af fjáröflun krakka í 4. flokki handboltans hjá ÍBV sem stendur fyrir bingóinu en verið er að safna fyrir utanlandsferð flokkanna. Stefnan er tekin á þátttöku í Partille Cup í Svíþjóð í sumar en áætlað er að halda í það minnsta fjögur […]

Bæjarráð vill að Herjólfur sigli strax til �?orlákshafnar í vondu veðri

Bæjarráð Vestmannaeyja fjallaði um málefni Landeyjahafnar á fundi sínum í dag og fagnaði tillögum Siglingastofnunar og samþykki ráðherra sem kynntar voru í gær. Bæjarráð leggur hins vegar til að þegar ófært er í Landeyjahöfn, sigli Herjólfur umsvifalaust til Þorlákshafnar en bíði ekki af sér veðrið. Ákvörðun um slíkt liggi þó hjá skipstjóra Herjólfs. Bæjarráð leggur […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.