Tölvuþjónusta sem Vestmannaeyjabær hefur keypt af einkaðilum hættir

Á fundi bæjarráð sl. miðvikudag, var samþykkt að auglýsa eftir kerfisfræðingi til starfa hjá Vestmannaeyjabæ til reynslu í 1 ár. Auk þess var bæjarstjóra falið að fjárfesta í búnaði til hýsingar gagna ásamt áhöldum og tækjum því tengdu. Þetta þýðir að þjónusta sem Vestmannaeyjabær hefur keypt af einkaaðilum í Eyjum hættir. (meira…)

Oddgeir, kvikmyndatónlist, jazz og jafnvel hörðustu rokkslagarar

Næskomandi laugardag 6. nóvember verða haldnir árlegir styrktarfélagstónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut. Viðburðurinn er liður í nótt safnanna eins og verið hefur undanfarin ár. Nafn tónleikanna kemur til af Styrktarfélagi Lúðrasveitar Vestmannaeyja en það er félagsskapur fólks sem lætur sér annt um Lúðrasveitina sína og styrkir hana árlega með föstu fjárframlagi. Sem þakklætisvott […]

Föruneyti GH í Kiwanis laugardagskvöld

Föruneyti GH, sem kemur fram í Kiwanis á laugardagskvöldið, var stofnað í nóvember á síðasta ári gagngert til þess að koma fram á þjóðlagahátíðinni, Reykjavik folkfestival sem haldin var á Kaffi Rosenberg í mars síðastliðnum. Þar á eftir hélt Föruneytið tónleika í Þjóðmenningarhúsinu á menningarnótt og svo aðra á Kaffi Rosenberg í október. Föruneytið hefur […]

Kjartan skrifar undir þriggja ára samning

Hinn ungi og efnilegi Kjartan Guðjónsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við félagið. Kjartan var lykilmaður 2. flokks félagsins sem hélt sæti sínu í B-riðli Íslandsmótsins í sumar en Kjartan getur spilað flestar stöður á vellinum. Eyjamenn eru nú byrjaðir að safna vopnum fyrir spennandi tímabil næsta sumar en samkvæmt heimildum Eyjafrétta verður […]

Reikna með 15 prósenta lækkun útvarstekna Vestmannaeyjabæjar, vegna óvissunar um stjórn fiskveiða

Í forsendum fyrir fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar árið 2011 sem var til umræðu í bæjarráði í gær, er gert ráð fyrir a.m.k. 15 prósent samdrætti í útvarstekjum bæjarins. „Þar ræður mestu sú staðreynd að pólitísk óvissa í sjávarútvegsmálum hefur dregið verulega úr þeim miklu sóknarfærum sem sú atvinnugrein gæti annars nýtt sér. Á meðan að yfir útgerðum […]

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar seinnipartinn á morgun

Stefnt er að því að Herjólfur hefji á ný siglingar í Landeyjahöfn, á morgun, föstudag. Fyrsta ferðin kl. 7.30 verður til Þorlákshafnar og þaðan kl. 11.15. Eftir þá ferð hefast siglingar til Landeyjahafnar, samkvæmt áætlun fyrir þá höfn og verður fyrsta ferðin kl. 17.00 og til baka frá Landeyjahöfn kl. 18.30. Síðan um kvöldið eins […]

Skattur á landsbyggðina

„Þetta er ekkert annað en fyrir­hugaður skattur á landsbyggðina sem mun veikja sjávarútveginn og þau byggðarlög sem byggja af­komu sína á sjávarútvegi og þar með gera lífskjörin verri í landinu enda virðist það vera einlægur ásetningur ráðherrans og ríkis­stjórnarinnar. Við verðum samt að vona að skynsemin muni á end­anum ná yfirhendinni hjá þeim sem stjórna […]

Opnar Landeyjahöfn fyrir helgi?

Samkvæmt nokkuð áræðanlegum heimildum hefur stefnan verið sett á að opna Landeyjahöfn fyrir helgi. Dæluskipið Perlan er nú á leið til Landeyjahafnar en Perlan beið af sér óveðrið í Þorlákshöfn. Ölduhæð er þó enn of mikil en öldudufl við Landeyjahöfn sýnir 1,6 metra ölduhæð. Hún fer hins vegar lækkandi en Perlan getur ekki dælt upp […]

Fyrningarleiðin er hafin

Aðalfundur LÍÚ sem haldinn var í Reykjavík 28. og 29. október 2010 mótmælti harðlega hugmynd sjáv­ar­útvegs- og landbúnaðarráðherra um að taka fyrirhugaða aukningu aflaheimilda í þorski, ýsu, gullkarfa, ufsa og síld af útgerðum og selja þær öðrum. Fréttir leituðu eftir við­brögðum forsvarsmanna stærstu út­gerðarfélaganna í Eyjum þ.e. Vinnslu­stöðvar og Ísfélagsins um hvaða þýðingu það hafi […]

Upphafskvóti í síld ákveðinn 40.000 tonn

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld og er upphafskvótinn 40.000 tonn, sem þýðir að 25.000 tonnum verður úthlutað að þessu sinni. Er það til viðbótar þeim 15.000 tonnum sem voru gefin út 15. október 2010. Ákvörðunin er tekin í framhaldi af nýrri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar þar […]

Glæsileg dagskrá á Safnahelgi í Eyjum

Nú liggur fyrir endanleg dagskrá Safnahelgarinnar í Eyjum en Safnahelgi er haldin sameiginleg um allt Suðurland. Setning hátíðarinar fer fram í Stafkirkjunni á föstudag kl. 18:00 en eftir það tekur hver dagskrárliðurinn við á fætur öðrum. M.a. sýnir Eyjamaðurinn Erlendur Bogason ljósmyndir og kvikmyndir teknar neðansjávar, Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir Konung ljónanna, rithöfundar lesa úr verkum […]

Arnór Eyvar framlengdi um tvö ár

Miðjumaðurinn Arnór Eyvar Ólafsson skrifaði nú í dag undir nýjan tveggja ára samning hjá ÍBV. Eyjamenn eru nú að vinna að því að tryggja sér áframhaldandi starfskrafta þeirra sem léku með liðinu í sumar en Anton Bjarnason skrifaði á dögunum undir þriggja ára samning. Arnór hefur alla tíð verið í herbúðum ÍBV og oftar en […]

Konukvöld Volare á fimmtudaginn

Nú er komið að enn einu konukvöldi Volare en þetta er fjórða árið í röð sem slíkt kvöld er haldið. Að þessu sinni verður konukvöld Volare í verslun fyrirtækisins að Vesturvegi 10 fimmtudaginn 4. nóvember frá kl. 20-22. Eins og áður verður margt um að vera. Boðið verður upp á kynningu á Volare, og munu […]

Daði Steinn í 2. – 3. sæti

Um síðustu helgi fór fram Íslandsmeistaramót drengja og stúlkna í Reykjavík. Tveir strákar frá Taflfélagi Vestmannaeyja tóku þátt í mótinu, þeir Daði Steinn Jónsson og Kristófer Gautason. Daði Steinn gerði sér lítið fyrir og varð í 2.-3. sæti í mótinu en hann og Jón Kristinn Þorgeirsson frá Akureyri voru jafnir með sjö vinninga hvor. En […]

Skelfilegt að missa Landeyja­höfn út vegna lélegra tækja

„Bæði bæjarfulltrúar og þingmenn hafa þá einörðu skoðun að siglingar milli Vestmannaeyja og Landeyja­hafnar séu framtíðar samgöngur milli lands og Eyja. Þingmenn full­vissa okkar um að þeirra stuðningur sé alger og allt verði gert til að vinna Landeyjahöfn út úr byrjunarörðug­leikum,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri eftir fund bæjarstjórnar með fjórum þingmönnum Suður­kjördæmis á mánudaginn. (meira…)

Fimm ökumenn teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna

Það voru ýmis verkefni sem komu inn á borð lögreglu í vikunni en engin alvarleg mál sem upp komu. Helgin fór ágætlega fram og fá útköll í tengslum við skemmtanahald helgarinnar. Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um að hann væri undir áhrifum ávana- og fíkniefnum við aksturinn. Er þetta fimmti ökumaðurinn á einni viku […]

�?líklegt að hægt verði að opna Landeyjahöfn í vikunni

Ekkert hefur verið hægt að dæla upp sandi við Landeyjahöfn síðan í gærmorgun. Eins og kom fram hér á Eyjafréttum var rörinu, sem brotnaði af dæluskipinu Perlunni í síðustu viku, náð upp á laugardag en rörið hamlaði því að hægt væri að opna höfnina. Eftir að rörið var komið upp þurfti um það bil sólarhing […]

Hvassviðri í Eyjum

Nú er hvassviðri í Eyjum en vindur á Stórhöfða er 25 metrar á sekúndu en mestu hviður fara upp í 31 metra á sekúndu, samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands. Talsverður munur er hins vegar á vindhraða á Stórhöfða og í Vestmannaeyjabæ en þar er 14 metrar á sekúndu og mestur vindur fer upp í 21 metra. […]

Rörið komið upp úr

Nú rétt í þessu var verið að ná dælurörinu upp úr sjávarbotninum við Landeyjahöfn en þar hefur rörið verið í rúma viku eftir að rörið brotnaði þegar unnið var að dýpkun við hafnarmynni Landeyjahafnar á dæluskipinu Perlunni. Ekki var talið ráðlegt að opna höfnina fyrr en rörið væri komið upp en óstaðfestar fregnir herma að […]

Fóru út á ystu nöf

Það má segja að blóð, sviti og tár hafi runnið í íþróttamiðstöðinni í dag, þó aðallega sviti en í dag fór þar fram síðasta mótið í Intersport Þrekmeistaramótinu 2010, svokallað 5×5 mót. Alls vorum keppendur á annað hundrað en keppt var í einstaklingskeppnum karla og kvenna, liðakeppnum og parakeppni. Keppendur fóru út á ystu nöf […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.