Lögregla minnir á endurskinsmerkin

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og ekkert um alvarleg mál sem upp komu. Rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins og þurfti lögregla ekki að hafa teljanleg afskipti af gestum staðanna. Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni en í báðum tilvikum um minniháttar óhöpp að ræða. Tvær kærur liggja fyrir vegna brota á […]
Opnað fyrir netbókanir Herjólfs

Í fréttatilkynningu frá Eimskip, sem send var til fjölmiðla klukkan 9:25 í morgun er greint frá því að nú sé aftur hægt að bóka í ferðir Herjólfs á netinu. Þegar hins vegar farið er inn á bókunarsíðu Herjólfs núna, tveimur klukkustundum eftir að tilkynningin var send út, birtist tilkynning á síðunni þar sem greint er […]
Íþróttakrakkar safna fyrir utanlandsferð með bingói

Ár hvert fer hópur af stelpum og strákum frá ÍBV á íþróttamót í Svíþjóð. Handboltinn og fótboltinn skiptast á að fara á mót annað hvert ár. 4. flokkur í handbolta fer nú í sumar á Partille Cup en 3. flokkur í fótbolta fór á Gothia Cup sl. sumar. Bingó er einn af föstu fjáröflunaliðunum fyrir […]
Rautt eða ekki?

Eyjamenn eru ósáttir við dómgæsluna í lokakafla viðureignar ÍBV og HK í N1 deild kvenna um síðustu helgi. ÍBV hafði af miklu harðfylgi snúið nánast töpuðum leik í jafnan og spennandi leik og voru yfir 27:26 þegar rétt um mínúta var eftir. Hornamaður HK fór inn úr horninu í næstu sókn gestanna en Renata Horvath, […]
Herjólfur siglir ekki í kvöld

Herjólfur siglir ekki síðustu ferð sína í kvöld en samkvæmt áætlun átti skipið að fara frá Eyjum klukkan 20:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 21:30. Í fréttatilkynningu frá Eimskip kemur fram að mikil hreyfing sé í innsiglingu Landeyjahafnar. (meira…)
Vignir braut 200 marka múrinn

Þegar ÍBV sigraði FH-u núna á laugardaginn náði Vignir Stefánsson merkum áfanga. Mark hans nr. 4 í leiknum var mark númer 200 fyrir ÍBV. Vignir hefur leikið 74 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 205 mörk sem þýðir 2,77 mörk í leik. Hann hefur á þessu tímabili leikið 6 leiki og skorað í þeim […]
Sunnlendingar afhenda ráðherrum undirskriftalista gegn niðurskurði

Mikill kraftur og samhugur er meðal Sunnlendinga í baráttunni gegn blóðugum niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á landsbyggðinni. Undanfarna daga hefur verið safnað undirskriftum meðal íbúa á Suðurlandi undir mótmælaskjal þar sem áformuðum niðurskurði er mótmælt og skorað á ríkisstjórn og Alþingi að tryggja að sjúkrahúsunum á Selfossi, Vestmannaeyjum og Höfn verði ekki lokað eins og ætlunin […]
Bæjarstjóri ekki sáttur við upplýsingagjöf í tengslum við Herjólf

Eins og komið hefur fram sigldi Herjólfur ekki klukkan 10:30 í morgun eins og áætlun gerir ráð fyrir vegna ölduhreyfinga og óhagstæðrar sjávarstöðu. Talsverð óánægja hefur verið með upplýsingagjöf til farþega en Elliði Vignisson, bæjarstjóri segist hafa komið á framfæri þeirri óánægju til viðkomandi aðila. „Já ég hef fyrir nokkru farið fram á úrbætur og […]
�?rettándagleðin verður föstudaginn 7. janúar

Komin er nokkurra ára hefð fyrir því að halda þrettándagleði Vestmannaeyja um helgi. Þetta hefur gefist vel og er hátíðin farin að lokka aukin fjölda gesta til Eyja til ánægju og hagsbóta fyrir hátíðina og samfélagið allt. Með samgöngum um Landeyjahöfn gefast enn á ný aukin tækifæri. Næstkomandi Þrettándagleði verður haldin föstudaginn 7. janúar 2011. […]
Herjólfur siglir ekki 10:30

Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að Herjólfur muni ekki sigla til Landeyjahafnar 10:30 og frá Landeyjahöfn 12:30. Veður í Vestmannaeyjum þessa stundina er mjög gott en á Stórhöfða er meðalvindhraði 3 metra á sekúndu. Guðlaugur Ólafsson, skipstjóri á Herjólfi segir hins vegar að talsverð ölduhæð sé við Landeyjahöfn og í hádeginu er fjara. Því […]
Jákvæðni er valkostur

Við í Grunnskóla Vestmannaeyja stöndum fyrir jákvæðri viku hjá stofnunum Vestmannaeyjabæjar dagana 8. til 12. nóvember nk. Hugmyndin er að æfa okkur í innihaldsríkum samskiptum. Öll erum við í miklum samskiptum við annað fólk bæði í vinnunni og utan hennar og til þess að samskiptin skili sem mestu þurfa þau að vera jákvæð. Við vitum […]
Barnshafandi kona sótt til Eyja

Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar kl. 18:19 í kvöld við að sækja barnshafandi konu til Vestmannaeyja. Vegna veðurfræðilegra aðstæðna var ekki hægt að lenda sjúkraflugvél á flugvellinum í Eyjum og var því óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. (meira…)
Herjólfur siglir ekki í dag vegna veðurs

Vegna veðurs falla ferðir Herjólfs niður í dag . Reiknað er með að skipið fari samkvæmt áætlun í fyrramálið til Landeyjahafnar. (meira…)
Stjórnarskránni verði ekki breytt í flýti eða reiði

Tryggvi Hjaltason er lærður í alþjóðlegum öryggismála- og greiningarfræðum Hann stundar nú meistaranám í fjármálum og ætlaði upphaflega ekki að koma nálægt framboði til stjórnlagaþings. „Ég tel persónulega að nú sé alls ekki rétti tíminn til slíkra framkvæmda, hvorki peningalega séð né stjórnsýslulega séð og að við þurfum að einbeita okkur að brýnni verkefnum. Eftir […]
Baráttustig hjá stelpunum

ÍBV og HK skildu jöfn í N1 deild kvenna í dag en liðin áttust við í Eyjum. Lokatölur urðu 27:27 en HK jafnaði úr víti þegar tæp mínúta var eftir. Það gaf hins vegar alls ekki rétta mynd af gangi mála í leiknum í dag því HK var nánast með leikinn í hendi sér fyrstu […]
Eyjamenn einir í efsta sæti

Eyjamenn skelltu sér á toppinn í 1. deild karla í handbolta með því að leggja ungmennalið FH að velli í Hafnarfirði í dag. Lokatölur urðu 27:28 en staðan í hálfleik var 12:15. Eyjamenn eru nú einir á toppi deildarinnar þegar sex umferðir eru búnar af mótinu með 10 stig en ÍR og Grótta koma næst […]
Landsliðið í gríni mætir

Hláturinn lengir lífið er yfirskrift skemmtikvölds sem Björgvin Rúnarsson stendur fyrir í Höllinni í kvöld, laugardag. Þar mætir landslið grínara með Ladda og Þorstein Guðmundsson fremsta meðal jafningja. Auk þeirra skemmta Freyr Eyjólfsson og strákarnir úr Mið- Íslandi sem hafa komið með ferska vinda inn í íslenskt uppistand. (meira…)
Þetta er alfarið mitt barn

Í gær opnaði í Vestmannaeyjum ný og glæsileg tískuvöruverslun, Salka við Bárustíg. Eigendur verslunarinnar eru hjónin Bertha I. Johansen og Elliði Vignisson. Verslunarrýmið er svo til nýtt en húsnæðið, sem áður var tvískipt hefur fengið hressilega andlitslyftingu. Verslunin er öll hin glæsilegasta en blaðamaður Eyjafrétta ræddi við Berthu við opnun verslunarinnar. (meira…)
Efnilegasti Selfyssingurinn yfir til ÍBV

Nú stendur yfir blaðamannafundur á Hótel Cabin þar sem efnilegasti knattspyrnumaður Selfoss og einn af efnilegri leikmönnum landsins, Guðmundur Þórarinsson er að skrifa undir samning hjá ÍBV. Guðmundur gerir eins árs samning við Eyjamenn en hann lék 16 leiki með Selfyssingum í úrvalsdeild í sumar, skoraði eitt mark og fékk eitt gult spjald. Guðmundur lék […]
�?trúleg snilli

Vel þjálfað fólk getur gert ólíklegustu hluti. Myndbandið hér sýnir okkur ótrúlega snilli og fífldirfsku fólks víða að úr heiminum og sem eflaust er ekki að gera þetta í fyrsta skipti. (meira…)