Pétur Blöndal í Ásgarði í kvöld

Önnur tilraun verður gerði kvöld, að halda fund með Pétri Blöndal, alþingismanni. Pétur ætlaði að koma síðastliðinn laugardag, en ekki gaf til flugs, og því varð að aflýsa fundinum. Flugfært er til Eyja eins og er og góður horfur, þannig að ákveðið er að halda fundinn með Pétri í kvöld kl. 20.00 í Ásgarði. (meira…)
Okurgjaldskrá og undarleg vinnubrögð
Undarlegt hefur verið að fylgjast með framgangi mála varðandi væntanlegar siglingar í nýja Landeyjahöfn á komandi sumri. Framganga samgönguyfirvalda hefur óneitanlega slegið aðeins á þær miklu væntingar sem gerðar hafa verið til þessarar umbreytingar í samgöngumálum Vestmannaeyja. Samgönguyfirvöld hafa slegið á hendur heimamanna um aðkomu að þessu mikilvæga hagsmunamáli og á laun virðist samningur við […]
�?ljóst með skip Ísfélagsins í Chile
Ísfélagið er með tvö skip í smíðum í borginni Concepcion sem er skammt frá upptökum skjálftans mikla í Chile á sunnudaginn. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, sagði hjón sem eru úti á vegum félagsins vera óhult og allt í standi hjá þeim. „Við réðum vélstjóra til að hafa eftirlit með skipinu og kona hans kom út […]
Verður bæði uppsjávar- og bolfiskskip

Gandí VE 171, skip sem Vinnslustöðin festi nýlega kaup á, verður tilbúinn á veiðar í apríl. Um er að ræða vinnsluskip á uppsjávarafla og grálúðu. Einnig er hægt að gera hann út á ísfisk. Mikil ásókn er í pláss á Gandí. Guðni Ingvar Guðnason, útgerðarstjóri VSV, segist sannfærður um að kaupin á Gandí, sem áður […]
Átta skip með fullfermi til Vestmannaeyja í dag

Loðnubátarnir streymdu með fullfermi til Eyja í dag af miðunum í Faxaflóa. Samtals átta skip með um 9000 tonn og vinnsluskipið Huginn kom inn til að losa sig við hrat. Vinnsluskipið Guðmundur var á miðunum að frysta loðnu. Öll loðnan fer í hrognavinnslu og var búið að vinna hátt í 2000 tonn af hrognum sem […]
Sjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunar

Stöðug umferð loðnuskipa var inn í Vestmannaeyjahöfn í morgun en sjö skip bíða nú löndunar eða eru í löndun. Gærdagurinn var mjög góður hvað veiði varðar en flest skipanna voru við veiðar í Faxaflóa. Hrognavinnsla er í fullum gangi, bæði í Vinnslustöð og Ísfélag og vonast menn til að loðnan sem nú kemur að landi, […]
Jón Vídalín í vorralli Hafró
Verkefnið Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, eða svokallað vorrall, hófst síðustu helgina í febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu; togararnir Bjartur, Ljósafell og Jón Vídalín og rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson. Alls verður togað á um 600 stöðvum vítt og breitt á landgrunninu á 20-500 m dýpi. (meira…)
Ásókn í störf á nýjum frystitogara
Útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir mikla ásókn í störf um borð í nýjum frystitogara sem fyrirtækið hefur keypt af þrotabúi dótturfélags Nýsis. Ráða þarf í rúmlega tuttugu stöður um borð og segir Guðni Ingvar Guðnason útgerðarstjóri að nú þegar hafi tvöfalt fleiri fyrirspurnir borist eftir að auglýst var eftir skipstjóra. (meira…)
58 fiskiskip skráð með heimahöfn í Vestmannaeyjum
Í lok árs 2009 voru 1.582 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fjölgað um 53 á árinu en það eru allt opnir fiskibátar. Flest fiskiskip voru skráð á Vestfjörðum eða 326 skip, sem eru um 21% fiskiskipastólsins. Fæst fiskiskip voru skrá á Suðurlandi eða 86 sem samsvarar 5% af heildafjölda þeirra. Í Vestmannaeyjum […]
Kjörstaður �?jóðaratkvæðagreiðslu er í Barnaskólanum
Nú styttist óðum í að þjóðin fái að láta álit sitt á Icesave samningnum í ljós í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem áætlað er að fari fram laugardaginn 6. mars. Kjörstaður í Vestmannaeyjum verður í Barnaskóla Vestmannaeyja og er gengið inn um norður- og suðurdyr. Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr. Kjörfundur hefst klukkan 9.00 árdegis og lýkur […]
Tilboð opnuð í smíði ekjubrúar og farþegalandgangs
Í síðustu viku voru opnuð tilboð í ekjubrú og farþegalandgang fyrir Herjólf, í Land-Eyjahöfn. Lægsta tilboðið kom frá fyrirtækinu Stál og suða, að upphæð kr. 29.993.936. Kostnaðaráætlun hönnuða hljóðaði hinsvegar uppá kr. 50.727.547. Farþegabrúin er 15 metra löng, og ekjubrúin 19.3 metrar og á að bera 25 tonn. skal verkinu lokið að fullu eigi síðar […]
Í nógu að snúast vegna ófærðarinnar
Lögreglan hafði í nógu að snúast í sl. viku og þá mest í tengslum við ófærðina sem var á götum bæjarins sl. fimmtudag og föstudag. Töluvert var um beiðnir frá fólki um að komast leiðar sinnar og naut lögreglan aðstoðar Björgunarsveitar Vestmannaeyja við að koma fólki á milli staða. (meira…)
Ísfélagsskip í Chile talið óskemmt
Annað tveggja skipa Ísfélags Vestmannaeyja, sem eru í smíðum í Chile, virðist vera óskemmt. Ingvar Kristjánsson, skipatæknistjóri Landhelgisgæslunnar, hefur eftir dönskum starfsmönnum gæslunnar á svæðinu að skipið sem var lengra komið standi enn í braut skipasmíðastöðvarinnar, um fjögur hundruð metra frá varðskipinu Þór. (meira…)
�?urftu að bíða í bílnum í sex klukkustundir

Óskar Elías Óskarsson og sonur hans þurft að bíða í sex klukkustundir í bíl sínum á bryggjunni í Þorlákshöfn á fimmtudag. Þeir áttu pantað far með fyrri ferð Herjólfs á fimmtudag en vegna óveðurs var ferðinni aflýst. Þeir voru hins vegar ekki látnir vita af því og eins og sjá má á myndunum sem fylgir […]
�?víst með skip Ísfélagsins
Óvíst er með ástand tveggja skipa sem eru í smíðum fyrir Ísfélag Vestmannaeyja í Chile. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, segir erfitt að fá upplýsingar um stöðu mála en skipin séu í smíðum í sömu skipasmíðastöð og varðskipið Þór. Samkvæmt fréttum frá Landhelgisgæslunni virðist skipasmíðastöðin vera ónýt og varðskipið mjög illa farið. (meira…)
Varla aukið við loðnukvótann
Hafrannsóknastofnun er nú hætt formlegri loðnuleit og er Árni Friðriksson kominn til hafnar. Það er því varla von til þess að frekar verði aukið við kvótann, sem er óvenju lítill í ár. Þó munu veiðiskip, í samráði við Hafrannsóknastofnun fylgjast með hvort vesturganga lætur á sér kræla, en dæmi eru um að loðna komi að […]
�?ar sem bæjarstjórinn sveiflar sér jakkafataklæddur í berginu

Í vefriti Financial Times gerir blaðamaðurinn Sophy Roberts grein fyrir Íslandsferð sinni. Hún kom hingað að vetrarlagi, sá norðurljósin og Búrfellsvirkjun. Stór hluti greinarinnar fjallar hins vegar um heimsókn hennar til Vestmannaeyja þar sem bæjarstjórinn sveiflaði sér jakkafataklæddur í spröngunni. (meira…)
Hjón á vegum Ísfélagsins heil á húfi
Hjón á vegum Ísfélagsins í Vestmannaeyjum eru stödd í Chile en afar harður jarðskjálfti skók landið í gær. Jarðskjálftinn var 8,8 stig á Richter kvarðanum en harður eftirskjálfti gekk yfir landið í morgun. Jarðskjálftinn átti upptök sín nærri borginni Concepcion en þar eru hjónin staðsett. Í skipasmíðastöð í borginni er verið að smíða skip fyrir […]
Heilsuefling í Íþróttamiðstöðinni
Heilsueflingardagur er haldinn í dag, 27. febrúar, í Íþróttamiðstöðinni. Dagskrá hófst klukkan 10.00 og verður til klukkan 15.00. M.a. er boðið upp á mælingar sem Hjúkrunarfélag Vestmannaeyja sér um í andyri Íþróttamiðstöðvarinnar, íþróttakennarar sjá um mælingar á liðleika í öxlum og aftanverðum fótleggjum. Eva Margrét er í þessum töluðu orðum að segja frá hlaupareynslu sinni […]
Ekki nógu gott gegn KR

Karlalið ÍBV í knattspyrnu náði ekki að fylgja eftir stórsigri sínum á ÍR í 1. umferð Deildarbikarsins þegar Eyjamenn léku gegn KR í 2. umferð keppninnar. Lokatölur urðu 4:1 en Eyjamenn léku ekki vel í leiknum og var sigur KR-inga fyllilega verðskuldaður. Eina mark ÍBV gerði Eiður Aron Sigurbjörnsson úr vítaspyrnu en hann minnkaði muninn […]