Nýr Herjólfur

Fundurinn um hönnun og smíði nýrrar ferju var að mörgu leiti ágætur og upplýsandi, en ég hef svona aðeins þurft að melta með mér allt það sem kom fram á fundinum. Það fyrsta sem vakti athygli mína var þegar ég fékk flash back sem skeði þegar Sigurður Áss fór að tala um útreikningana varðandi það, […]

Eldað fyrir Ísland

Rauðakrossdeild Vestmannaeyja stendur fyrir fjöldahjálparæfingu, í tilefni af landsæfingu þar sem sjálfboðaliðar standa vaktina rétt eins og raunverulegt neyðarástand hafi skapast. Hefur Rauðakrossdeildin aðsetur í Barnaskólanum. Rauði krossinn segir að skapist alvöru neyð sé mikilvægt fyrir alla landsmenn og erlenda gesti að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í […]

Ekki Eyjadagur í handboltanum

ÍBV er úr leik í EHF-keppni kvenna í hand­knatt­leik eft­ir tap gegn ít­alska liðinu Jomi Sal­erno, 34:25, í síðari leik liðanna sem fram fór á Ítal­íu í dag en liðin átt­ust við á sama stað í gær. Ítalska liðið vann ein­vígið sam­an­lagt, 61:49. Jóna Sig­ríður Hall­dórs­dótt­ir var marka­hæst í liði ÍBV en hún skoraði 8 […]

Nýr Herjólfur kominn í hönnunarferli

nýr herjólfur

Í gær stóð stýrihópur um byggingu nýs Herjólfs fyrir kynningarfundi í Höllinni. Var fundurinn vel sóttur, sennilega vel á þriðja hundrað manns. Í upphafi fundar kynnti Friðfinnur Skaftason, formaður stýrihópsins verkefni hópsins sem væri að átta sig þörfunum fyrir skipið; að setja af stað hönnun og síðan smíði skips sem sigla myndi milli Vestmannaeyja og […]

ÍBV tapaði fyrir Jomi Salerno

Meistaraflokkur kvenna ÍBV í handbolta lék fyrri leik sinn í Evrópukeppninni við ítalska liðið Jomi Salerno í dag. Jomi vann með 27 mörkum gegn 24 eftir staðan í hálfleik var jöfn, 14-14. Mörk ÍBV skoruðu Jóna S Halldórsdóttir 7, Telma Amado 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 4, Andrade Lopes 3, Ester �?skarsdóttir 2 og Elín Anna […]

Herjólfur siglir, en með bilaða veltiugga

Herjólfur siglir frá Eyjum kl. 19.00 og frá Landeyjahöfn kl. 20.30. �?að er síðasta ferð dagsins. Ekki er hægt að nota veltiugga skipsins vegna bilunar og segir á heimasíðu skipsins að búast megi við nokkrum veltingi á leiðinni þessvegna. Samkvæmt vef Samgöngustofu er ölduhæð við Landeyjahöfn um 2 metrar nú um 6 leytið. (meira…)

Blind bargain á Dillon í kvöld

�?eir Eyjamenn sem einhverra hluta vegna eru að þvælast í höfuðborginni í dag þurfa ekki að láta sér leiðast því eyjahljómsveitin Blind Bargain heldur tónleika í kvöld á Dillon, að laugarvegi 30 og hefjast tónleikarnir kl. 22.00 og er frítt inn. Á morgun spila þau svo í Hafnafirði á Íslenska Rokkbarnum ásamt tveimur örðum sveitum, […]

Annar veltiuggi Herjólfs bilaður

Á heimasíðu Herjólfs segir að vegna bilunar í öðrum veltiugga skipsins hafi skipið ekki siglt frá Eyjum kl. 11.30, en vonandi takist að laga hann svo hægt verði að sigla frá Eyjum kl. 14.30. Vinna við viðgerð er þegar hafin en óvissa um stöðu mála á þessari stundu. �?egar skipið var á leið frá Landeyjahöfn […]

Kvennalið ÍBV leikur fyrri leik sinn í dag

Fyrri leikur kvennaliðs ÍBV í handbolti verður í dag við ítalska liðið Jomi Salerno og hefst leikurinn kl. 16.30 að íslenskum tíma. Í gær fóru ÍBV stelpurnar í skoðunarferð m.a. til Pompei, þar sem meðfylgjandi mynd er tekin. Salerno er borg sem stendur við sjó, skammt sunnan Napolí og myndin sem hér fylgir er tekin […]

Fundur um nýjan Herjólf í Höllinni í dag kl. 17

Stýrihópur um hönnun og smíði nýs Herjólfs boðar til kynningarfundar í Höllinni í dag kl. 17.00. �?ar mun Friðfinnur Skaftason formaður stýrihópsins flytja inngang. Jóhannes Jóhannesson, skipaverkfræðingur kynna hönnun á nýju ferjunni, en hann er ráðgjafi hópsins. �?á mun fulltrúi frá Polarkonsult, hönnuður ferjunnar, kynna fyrirtækið. Vestmannaeyingar eru hvattir til að mæta á fundinn og […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.