Eyjamenn voru stálheppnir að komast í 32ja liða úrslit VISA bikarkeppninnar. Þegar aðeins um fjórar mínútur voru eftir var staðan 1:2 gestunum í vil og fátt í spilunum sem benti til þess að ÍBV myndi jafna. En þá tók við ótrúlegur kafli. Fyrst skoraði Ingi Rafn Ingibergsson með skalla á 87. mínútu og þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og allt stefndi í framlengingu, skoraði Viðar Örn Kjartansson sigurmarkið úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst